Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 75
LAUGARDAGUR 5. desember 2009 9
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og
höfuðsafn á sviði þjóðminjavörslu og rannsókna á menn-
ingarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að
auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðar-
innar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli safnalaga
nr. 106/2001 og þjóðminjalaga nr. 107/2001.
Þjóðminjasafn Íslands auglýsir lausa til umsóknar
Rannsóknarstöðu í nafni dr. Kristjáns Eldjárns
Við Þjóðminjasafn Íslands er sérstök rannsóknarstaða til rann-
sókna á sviði þjóðminjavörslu, tengd nafni dr. Kristjáns Eldjárns,
fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands.
Staðan er auglýst til eins árs og er ætluð fræðimönnum sem
sinna rannsóknum á íslenskum þjóðminjum eða öðrum þáttum
íslenskrar menningarsögu sem falla undir starfssvið Þjóðminja-
safns Íslands. Rannsóknaverkefnum sem unnið er að í rann-
sóknarstöðu Kristjáns Eldjárns er ætlað að efl a rannsóknastarf-
semi Þjóðminjasafns Íslands almennt. Við ráðningu í stöðuna er
m.a. tekið mið af rannsóknastefnu Þjóðminjasafnsins og kemur
til greina að tengja sjálfstæða rannsókn við stór rannsóknaverk-
efni sem þegar er unnið að innan safnsins.
Fræðimaður skal senda inn umsókn, þar sem verkefnið er vand-
lega skilgreint og hvernig það verði til að efl a menningarsögu-
legar rannsóknir. Verkefnið skal skilgreint sem eins árs verkefni.
Umsókn skal fylgja greinargerð um menntun og reynslu af
fræðistörfum.
Verkefni, eins og það er afmarkað, lýkur með formlegum
verklokum að rannsóknartíma liðnum. Stefnt skal að því að
niðurstöður rannsókna verði birtar á viðurkenndum fræðilegum
vettvangi en auk þess skulu þær kynntar með fyrirlestri, sýningu
eða öðrum hætti innan Þjóðminjasafns Íslands.
Fræðimaður sem gegnir rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns
hefur aðstöðu hjá og starfar innan rannsókna- og varðveislu-
sviðs Þjóðminjasafnsins. Fræðimaður skal leggja sitt af mörkum
til að efl a rannsóknarstarf safnsins og taka þátt í að veita nýjum
straumum inn í fræðilega umræðu.
Í reglugerð nr. 896/2006 segir: “Við Þjóðminjasafn Íslands
skal vera sérstök rannsóknarstaða, tengd nafni dr. Kristjáns
Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Staðan er
ætluð fræðimönnum, er sinna rannsóknum á sviði íslenskrar
menningarsögu sem fellur undir starfssvið Þjóðminjasafns
Íslands. Þjóðminjavörður ræður í stöðuna til allt að tveggja
ára. Þjóðminjavörður ákvarðar um launakjör fræðimannsins,
innan marka kjarasamninga og fjárheimilda. Fræðimaður skilar
áfanga- eða rannsóknarskýrslum árlega. Skal stefnt að því, að
niðurstöður rannsókna hans meðan hann gegndi stöðunni
birtist á viðurkenndum vísindalegum vettvangi að ráðningartíma
loknum. Skulu þær rannsóknarniðurstöður jafnframt varðveittar
í Þjóðminjasafni Íslands, eins þótt óbirtar séu.”
Umsókn með verkefnislýsingu og ferilskrá sendist Þjóðminja-
safni Íslands, Suðurgötu 43, 101 Reykjavík, fyrir 6. janúar 2010.
Upplýsingar eru veittar í síma 530 2200, eða í tölvupósti hjá
Önnu Lísu Rúnarsdóttur sviðstjóra rannsókna- og varðveislu-
sviðs (anna.lisa@thjodminjasafn.is) eða Önnu G. Ásgeirsdóttur
sviðstjóra fjármála- og þjónustusviðs (anna@thjodminjasafn.is).
Starfsfólk óskast.
Mjöll-frigg hf. er íslenskt framleiðslufyrirtæki
sem hefur þróað og framleitt hreinlætisvörur
fyrir Íslendinga í áratugi.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og skemmtilegt
starfsumhverfi hjá fyrirtæki sem fer stöðugt
vaxandi.
Finnst þér gaman að vinna?
Ertu stundvís og með frumkvæði?
Þá gætir þú verið sá/sú sem við leitum af.
Okkur vantar starfsfólk í eftirfarandi störf:
-Framleiðslu
-Lager
-Bílstjóra með meirapróf
Áhugasamir sendið inn umsókn ásamt
ferilskrá á netfangið richard@mjollfrigg.is
Mjöll-frigg hf.
Norðurhellu 10
221 Hafnarfjörður
S: 512-3000
mjollfrigg@mjollfrigg.is
Camp America er í samstarfi við sumarbúðir víðsvegar um Bandaríkin
sem leita eftir leiðbeinendum í 9-15 vikur yfir sumartímann.
Umsóknarfrestur fyrir sumarið
2010, rennur út 10. janúar 2010.
Allar nánari upplýsingar á
www.namsferdir.is
Ef þér finnst gaman að vinna með fólki, ert hress og til í
að prófa eitthvað nýtt, þá er Camp America fyrir þig!
Ævintýralegt sumar í Bandaríkjunum
Klapparstíg 25 • Sími 578 99 77
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar.
Ertu besta mamma í heimi?
Starfssvið Hæfniskröfur
· Þátttaka í almennum störfum
· Ábyrgð á þjónustu og gæðum á
sinni vakt
· Skipulags- og leiðtogahæfileikar
· Rík þjónustulund og hæfni í
mannlegum samskiptum
· Dugnaður og metnaður í starfi
Veitingastaðakeðja óskar eftir að ráða ábyrgan og metnaðarfullan einstakling
í starf veitingastjóra kvöld- og helgarvakta.
Unnið er á tvískiptum vöktum 2 daga aðra vikuna og 5 daga hina.
Um 72% starf er að ræða.
Sérfræðingur í
Fyrirtækjaráðgjöf
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans. Leitað
er að kraftmiklum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni á
fjármála markaði.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sinnir fjölbreytt um verk efnum sem eiga það sam-
merkt að tengjast umbreyt ingu og þróun fyrirtækja. Helstu verk efni Fyrir tækja-
ráðgjafar eru ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja, ráðgjöf við fjárhags lega endur-
skipulagningu fyrirtækja, umsjón með útboðum á hlutabréfum og skuldabréfum,
skráning fyrirtækja í Kauphöll og ráðgjöf við fjármögnun fyrirtækja og verkefna.
Helstu verkefni:
• Stjórnun og skipulagning verkefna
• Ráðgjöf og samskipti við fjárfesta og fyrirtæki
• Greining á fjárfestingakostum
• Umsjón með samningagerð
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun, t.d. í viðskiptafræði, hagfræði eða verkfræði
• Haldgóð reynsla af fjármálamarkaði eða rekstri fyrirtækja
• Frumkvæði í starfi
• Færni í samskiptum og þægilegt viðmót
• Markviss og sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veita:
Steingrímur Helgason,
forstöðumaður Fyrirtækja-
ráðgjafar í síma 410 7349 og
Ingibjörg Jónsdóttir á Starfs-
mannasviði í síma 410 7902.
Umsókn merkt „sérfræðingur
í Fyrirtækjaráðgjöf“, fyllist út
á vef bankans www.lands-
bankinn.is. Umsóknarfrestur er
til og með 13. desember nk.