Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 109
LAUGARDAGUR 5. desember 2009 77
Hún er ein af átta íslenskum konum sem
bera nafnið Ellisif og er stolt af því. Af þeim
eru sjö konur sem bera það að fyrra nafni
og ein sem millinafn. „Þegar ég var yngri
bölvaði ég stundum þessu nafni og var for-
eldrum mínum ekki þakklát fyrir að skíra
mig því. Ég lét mig dreyma um að heita
einhverju venjulegra nafni eins og systur
mínar,“ segir Ellisif Sigurjónsdóttir og brosir.
Hún kveðst þó aldrei hafa orðið fyrir að-
kasti vegna nafnsins í æsku. „Ég held að
krakkarnir hafi ekkert verið að spá í það, ég
var bara Ellisif rétt eins og Jón var Jón. Það
fór bara í taugarnar á mér að fólk gat aldrei
stafsett nafnið mitt rétt, skrifaði það oft sem
Ellen Sif eða Ellý Sif og oft hafði ég það á
tilfinningunni að fólki fyndist ég tala óskýrt.
Þá bar fólk nafnið mitt fram með alls konar
hætti en verst þótti mér þegar það kall-
aði mig „elli“ eins og í merkingunni gam-
all. Þetta gerist auðvitað enn í dag en nú er
þetta alveg hætt að fara í taugarnar á mér.
En það er stundum fyndið hvað fólk getur
orðið vandræðalegt,“ segir hún og hlær.
Spurð um uppruna nafnsins segir hún
það norskt. „Það er víst norræn útgáfa af
nafninu Elísabet. Ég á vinkonu sem er frá
Noregi en systir mömmu hennar heitir ein-
mitt Ellisif.“ Hún segir útlendinga í engum
vandræðum með að bera fram nafnið sitt.
„Ég hef bæði verið í London og búið í Dan-
mörku og þar var það ekkert mál. Það eru
helst Íslendingar sem hiksta á því.“ Í frjálsa
alfræðiritinu Wikipedia kemur fram að
nafnið Ellisif er í fyrsta skipti gefið stúlku
hér á landi um 1963 og þá sem seinna
nafn. Um 1965 fékk stúlkubarn það fyrst að
fyrra nafni. Fram á níunda áratuginn voru
Ellisifjar orðnar fimm, síðan bættust þrjár
við til ársins 1990. Fallbeyging nafnsins er:
Ellisif - Ellisif- Ellisif - Ellisifjar.
NAFNIÐ MITT: ELLISIF SIGURJÓNSDÓTTIR
Stolt yfir að heita sérstöku nafni
Ellisif Sigurjónsdóttir segir Íslendinga helst
hiksta á nafninu sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
MOSAIK
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
og heiðruðu minningu elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Sigurðar Jónssonar
frá Kastalabrekku,
sem lést 9. nóvember síðastliðinn.
Steinunn Guðný Sveinsdóttir
Sveinn Sigurðsson Gróa Ingólfsdóttir
Þórunn Sigurðardóttir
Sigurveig Þóra Sigurðardóttir Lárus S. Ásgeirsson
Hildur Sigurðardóttir Aðalsteinn Stefánsson
Guðlaug Sigurðardóttir Agnar R. Agnarsson
Hjördís Sigurðardóttir
Jóna Sigurðardóttir S. Kolbeinn Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir
og afi,
Valbjörn J. Þorláksson
íþróttamaður, Ránargötu 13, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtudaginn
3. desember. Starfsfólk í Vesturbæ fá innilegar þakkir
fyrir góða umönnun, nærgætni og hæfni í starfi sínu.
Bryndís Valbjarnardóttir Gunnar Ragnar Gunnarsson
Ástríður S. Valbjörnsdóttir Árni Ingi Garðarsson
Guðrún Linda Valbjörnsdóttir Friðgeir Guðmundsson
Herdís Valbjörnsdóttir Lúðvík Guðjónsson
Brynhildur Olgeirsdóttir
Reinharð V. Sigurðsson Kristín Helgadóttir
Stella B. Þorláksdóttir Helgi Ólafsson
Páll Róbert Þorláksson Irena Maria Piernicka
og afabörn.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og
útför elskulegrar móður okkat, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Lilju Guðrúnar
Pétursdóttur
áður til heimilis að Kirkjubraut 52,
Akranesi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilisins
Höfða, Akranesi.
Guðmundur Smári Guðnason Kristín Guðjónsdóttir
Eufemía Berglind Guðnadóttir Kjartan Björnsson
Júlíus Víðir Guðnason Fanney Björnsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Guðrún
Magnúsdóttir
Norðurbrún 1, Reykjavík,
lést mánudaginn 30. nóvember á Landspítala Fossvogi.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
7. desember kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Berglind Baldursdóttir Ingvi Þór Guðjónsson
Davíð Löve Jóna Alexandersdóttir
Karl Löve
María Anna Löve
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fanney Jónsdóttir
frá Gunnlaugsstöðum í
Stafholtstungum, Hjallaseli 55,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 24. nóvember á dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Seljahlíð. Útförin fer fram frá Seljakirkju
miðvikudaginn 9. desember kl. 13.
Erlendur Guðmundsson Guðlaug Hróbjartsdóttir
Ólafur Þ. Guðmundsson Eybjörg D. Sigurpálsdóttir
Gísli Guðmundsson Katrín Ásgrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
amma og systir,
Sólveig Traustadóttir
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
mánudaginn 30. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag-
inn 9. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Magnús Þór Jónsson Helga Lind Hjartardóttir
Drífa Þöll Arnardóttir Gunnlaugur Erlendsson
Örn Arnarson Harpa Sif Þráinsdóttir
Lucinda Hulda Fonseca
Trausti Magnússon Hulda Jónsdóttir
systkini og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför
Kristínar Friðriksdóttur
frá Norður-Hvoli í Mýrdal.
Bjarni Kristjánsson Snjólaug Bruun
Elínborg Kristjánsdóttir Baldur Jóhannesson
Ester Kristjánsdóttir Bjarni Gestsson
Friðrik Kristjánsson Auður Sigurðardóttir
Magnús Kristjánsson Tordis A. Leirvik
Þórarinn Kristjánsson
Sigríður Kristjánsdóttir Guðmundur Antonsson
Sigurður Kristjánsson Alfa V. Sigurðardóttir Hjaltalín
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Guttorms Ármanns
Gunnarssonar
Marteinstungu, Holtum.
Elke Gunnarsson
Hanna Regína Guttormsdóttir Sigurður Ólafsson
Guðný Kristín Guttormsdóttir Kristinn Lund
Helga María Guttormsdóttir
Gréta Friðrika Guttormsdóttir Trausti Valdimarsson
Gunnar Guttormsson
Áslaug Berta Guttormsdóttir Egill Sigurgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, sonur, tengdasonur og afi,
Agnar Þór Hjartar
Heiðargerði 23, Reykjavík,
lést laugardaginn 28. nóvember. Útförin fer fram frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 7. desember
kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi.
Guðrún Anna Antonsdóttir
Hörður Agnarsson
Haukur Agnarsson Kolbrún Benediktsdóttir
Birna Björnsdóttir
Anna Katrín Jónsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi okkar,
Kjartan G. Waage
Skipasundi 37,
lést fimmtudaginn 3. desember. Útförin fer fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Oddný M. Waage
Jóna Jenný Waage Arnbjörn Ólafsson
Vilborg Heiða Waage Óskar Sveinn Gíslason
Árdís Waage
barnabörn og barnabarnabörn.