Fréttablaðið - 05.12.2009, Qupperneq 110
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
78 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jáhá, þessar kylfur
eru alveg skelfilega
ógnandi!!
Golf er erfið íþrótt!
Jæja, þá eru
þessar 24
klukkustundir
liðnar...
og þið megið taka
óléttu-bumbuna
af ykkur og hætta
að vera óléttir.
Takk fyrir sam-
vinnuna og áhuga
ykkar.
Nei, þú
fékkst
stelpu!
Og ykkar
góða húmor. Ó guð, hún
líkist þér!
Hannes, hefurðu séð
tangirnar mínar?
Nei.
Ertu viss, þær eru
langar og ég nota þær
í salatið?
Ó, já,
þessar
hérna!
Vissirðu
ekki að
þetta væru
tangir?
Ég hef
ekki haft
tíma
til að
hugleiða
það.
Mamma, Hannes
var að klípa mig
með töngunum
aftur.
„Mannætu-
húmor“
hah-
ahah
Borðaðu
mig
Helgi eina í byrjun október áttum við hjónaleysin erindi austur á Egilsstaði.
Illu heilli brast þó á með óveðri á föstu-
deginum og um kaffileytið varð ljóst að
ekkert yrði úr flugi. Þar sem erindið var
brýnt ákváðum við að keyra austur, enda á
þokkalega útbúnum fólksbíl með fjórhjóla-
drifi. Við lögðum af stað um fimmleytið og
gerðum ráð fyrir að ná áfangastað um tvö-
leytið um nóttina. Norðurleiðin varð fyrir
valinu, því veðurofsinn var mestur á sunn-
anverðu landinu.
Í FYRSTU gekk ferðin að óskum. Hálku-
blettir og skafrenningur á Holtavörðu-
og Öxnadalsheiði voru lítil fyrirstaða
fyrir okkar ágæta fjölskyldubíl. Síðasti
áfanginn, Möðrudalsöræfi og Jökuldals-
heiði, átti að vera skástur samkvæmt
upplýsingasíma Vegagerðarinnar. Þar
var þó slíkt snjófjúk að á löngum köflum
sáum við aðeins eina stiku fram
fyrir okkur þótt vegurinn væri
auður. Við ókum því lötur-
hægt. Skyndilega rann
bíllinn til og áður en ég
fékk rönd við reist sat
hann fastur. Nánari athug-
un leiddi í ljós að á u.þ.b. tíu
metra kafla hafði skafið í
hnédjúpan skafl þvert yfir
veginn, sennilega vegna
þess að til beggja handa
voru vegrið sem safnað höfðu snjó á milli
sín. Þarna sannaðist hið fornkveðna að
engin keðja er sterkari en veikasti hlekk-
urinn. Einn skafl nægir til að leiðin á milli
Akureyrar og Egilsstaða sé ófær.
NÚ VAR úr vöndu að ráða. Ekkert þýddi að
ýta bílnum. Við vorum pikkföst í skafli uppi
á heiði í svartamyrkri um hánótt og höfðum
ekki orðið vör mannaferða síðan á Mývatni.
Farsíminn kom okkur til bjargar. Hringt
var í 112 þar sem við fengum samband við
lögregluna á Egilsstöðum. Við höfðum verið
það forsjál að núllstilla kílómetramælinn
á Akureyri og gátum því gefið upp nokkuð
nákvæma staðarákvörðun. Tæpum hálf-
tíma síðar birtist bóndi af nálægum bæ eins
og frelsandi engill á fjallajeppa og kippti
okkur yfir hindrunina.
ÞVÍ er ég að deila þessu með ykkur að mér
finnst ekki vanþörf á að minna á að um allt
land er gott fólk, sem lætur sig ekki muna
um að vera dregið fram úr hlýju rúminu
um hánótt til að fara út í frost og fjúk til
aðstoðar kjánum eins og mér, sem asnast
til að ofmeta eigin getu og sýna þeim óblíðu
skilyrðum, sem landið okkar gerir okkur
að búa við og ferðast í, ekki tilhlýðilega
virðingu.
HAFI það allt Guðs þökk fyrir, ekki síst
bóndinn á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal.
Þú ert aldrei einn á ferð
Tilboð kr. 25.950*
Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með
stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.220 fylgir frítt með.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
Þú sparar
kr. 9.220
Opið í dag laugardag frá kl. 11:00-15:00
*tilboð gildir á meðan birgðir endast.