Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 142
110 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Kristján Gauti Emilsson.
2 Þorbjörn Jensson.
3 Miðjan.is.
Halldór Baldursson, einn fremsti
skopmyndateiknari landsins,
fagnaði útgáfu á nýrri bók sinni,
Skuldadaga, með smáteiti á
bóhemstaðnum Boston við
Laugaveg. Halldór hafði útbúið yfir
hundrað manna lista með þeim
fyrirsætum sem bregður
fyrir í bókinni og
höfðu þeir allir
fengið boðskort.
Eins og gefur að
skilja voru forkólf-
ar úr viðskipta- og
stjórnmálalífinu
áberandi á þeim
lista en fæstir úr
þessum hópi
létu sjá sig.
Af öðrum þekktum andlitum
má nefna að ráðherrarnir Ragna
Árnadóttir og Árni Páll Árnason
ákváðu að láta sjá sig. Enda hafa
þau kannski ekki verið vinsælt
fallbyssufóður hjá skopmynda-
teiknaranum. Svandís
Svavarsdóttir var
einnig meðal
gesta á Boston
sem og Atli
Gíslason. Gísli
Marteinn Baldurs-
son var einn
örfárra úr borg-
armálapólitíkinni
sem létu sjá sig
en hann var
meðal fyrstu
manna.
Ungfrú Reykjavík, Magdalena
Dubik, hefur spilað á fiðlu með
fjölda íslenskra poppara, eins
kom nýverið fram í Fréttablaðinu.
Björgvin Halldórsson, Raggi Bjarna
og strákarnir í Skítamóral hafa
allir notið liðssinnis hennar. Litlu
munaði að Magdalena myndi
spila á nýjustu plötu
Hjaltalín, Termin-
al, og yrði þar
hluti af fjörutíu
manna sinfóníu-
hljómsveit. Því
miður kom
babb í bátinn
því svínaflensan
bankaði á dyrnar
hjá dísinni og
þurfti hún að
afboða komu
sína á síðustu
stundu.
- fgg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Marvin
Valdimarsson
Aldur: 28 ára.
Starf: Starfar
við auglýsinga-
og skiltagerð.
Foreldrar:
Valdimar Braga-
son prentari
og Hafdís
Marvinsdóttir,
starfsmaður hjá
Strók á Selfossi.
Fjölskylda: Kærastan heitir Arna
Jónasdóttir, skrifta hjá Stöð 2, og
þau eiga nýfætt barn.
Búseta: Kleppsvegur í Reykjavík.
Stjörnumerki: Ljón.
Marvin, leikmaður Hamars, hefur
slegið í gegn Iceland Express-deildinni
í körfubolta og er stigahæsti íslenski
leikmaðurinn.
LÁRÉTT
2. nef, 6. úr hófi, 8. klettasprunga, 9.
meðal, 11. strit, 12. frumefni, 14. losti,
16. í röð, 17. meiðsli, 18. til viðbótar,
20. komast, 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. einnig, 4. fúslega, 5.
varkárni, 7. harðsnúinn, 10. rotnun,
13. slöngu, 15. morð, 16. húðpoki,
19. núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gogg, 6. of, 8. gjá, 9. lyf,
11. at, 12. flúor, 14. girnd, 16. hi, 17.
mar, 18. enn, 20. ná, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. og, 4. gjarnan,
5. gát, 7. fylginn, 10. fúi, 13. orm, 15.
dráp, 16. hes, 19. nú.
„Þetta er svo góður hundur og
vel upp alinn. Hann fer létt með
þetta,“ segir töframaðurinn fyrr-
verandi, Baldur Brjánsson.
Tíkin hans, bolabíturinn Mjöll,
leikur í söngleiknum Oliver!
sem verður settur á fjalirnar í
Þjóðleikhúsinu annan í jólum í
leikstjórn Selmu Björnsdóttur.
„Selma heimsótti mig einhvern
tímann fyrir ári. Hún vissi að ég
átti hund. Svo hringdu þeir frá
Þjóðleikhúsinu og spurðu hvort
þetta væri einhver möguleiki. Ég
gaf náttúrlega grænt ljós á það
með vissum skilyrðum,“ segir
Baldur.
Mjöll verður í áberandi hlut-
verki sem hundur vonda karlsins
Bills Sikes, sem Þórir Sæmunds-
son leikur, og verður hún ansi
ófrýnileg með lepp fyrir öðru
auganu. „Hún er mjög meðfæri-
leg og stillt,“ segir Baldur og er
sannfærður um að hún eigi eftir
að slá í gegn í söngleiknum. „Hún
er voðalega hlýðin og hún getur
velt sér yfir og gert einhverjar
kúnstir.“
Baldur er mikill hundavinur og
ekki er langt síðan hann átti tvo
bolabíta og fimm hvolpa. Hafði
hann í nógu að snúast á heimil-
inu við umönnun þeirra eins og
Fréttablaðið greindi frá í fyrra.
Síðan hefur ýmislegt breyst því
bæði bolabítarnir og hvolparnir
eru horfnir á braut. „Annar bola-
bíturinn dó og hinn fór á gott
heimili. Í millitíðinni skipti ég um
parket á allri íbúðinni því það var
orðið svo illa farið,“ segir Bald-
ur, sem í framhaldinu eignaðist
hina þriggja ára Mjöll sem hann
er ákaflega ánægður með.
Hún verður reyndar ekki eini
hundurinn í sýningunni því stað-
gengill hennar verður nágranna-
hundur sjálfs Þjóðleikhússtjór-
ans, Tinnu Gunnlaugsdóttur.
freyr@frettabladid.is
BALDUR BRJÁNSSON: MJÖLL Á EFTIR AÐ SLÁ Í GEGN
Töframannshundur í Oliver
BALDUR OG MJÖLL
Baldur Brjánsson
ásamt tíkinni Mjöll
sem fer með hlutverk
í söngleiknum Oliver! í
Þjóðleikhúsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Það var nú bara einhver pródús-
er við myndina sem gróf upp þetta
lag. Það er eldgamalt. Ég vissi ekki
neitt fyrr en þeir höfðu samband
og vildu nota það í myndinni,“ segir
raftónlistarmaðurinn Jónas Þór
Guðmundsson, eða Ruxpin eins og
hann kallar sig. Lag hans „Watch
the Packard“ er notað í heimild-
armynd Juliens Temple, Requi-
em for Detroit, sem verður sýnd
á BBC 2. janúar. Julien er bresk-
ur kvikmyndagerðarmaður sem
á að baki verk eins og The Future
Is Unwritten um Joe Strummer
úr The Clash og The Filth and the
Fury um Sex Pistols.
„Þetta er heimildarmynd um
hvernig Detroit blómstraði með
bílaiðnaðinum og hvernig borgin
sökk svo í sæ. Þeir ætla að senda
mér DVD fyrir frumsýninguna.“
Jónas getur ekki svarað því
hvort BBC borgi almennilega.
„Plötufyrirtækið sem gaf þetta út
sér um það allt. Þeir borguðu mér
bara ákveðnar fyrirframgreiðslur
á sínum tíma og það kemur í ljós
hvort greiðslan fari yfir það. Ég fæ
ekki að vita neitt. Svona er þetta
bara.“
Margt fleira er í gangi hjá Rux-
pin. „Fljótlega eftir jól kemur út
safnplata með endurhljóðblöndun-
um listamanna á lögunum mínum.
Þetta eru listamenn eins og Biogen,
Worm Is Green, Galaktlan og
Leon Somov, sem á dögunum var
tilnefndur til „MTV EMA Best
European Act“-verðlaunanna. Svo
ætlar bandaríska plötufyrirtækið
n5MD að gefa út plötuna Where
Do We Float from Here? á disk um
mánaðamótin mars/apríl.“ - drg
Ruxpin í mynd Juliens Temple
ALLT Í GANGI Jónas Þór Guðmundsson
er Ruxpin. Lag með honum hefur ratað
inn í heimildarmynd eftir Julien Temple.
MYND/ERNIR EYJÓLFSSON
Bandaríska sjónvarpsfyrirtækið HBO hefur
keypt dreifingarréttinn að íslensku heimildar-
myndinni Sólskinsdrengnum eftir Friðrik Þór
Friðriksson. Myndin verður frumsýnd á einni
af sjónvarpsrásum fyrirtækisins en HBO er eitt
stærsta sjónvarpsfyrirtæki Bandaríkjanna, til-
heyrir Warner-fjölmiðlaveldinu og nær til yfir
38 milljóna áskrifenda.
Margrét var auðvitað í skýjunum þegar
Fréttablaðið náði tali af henni en það var fyrir
tilstilli Rosie O’Donnell, sjónvarpskonunnar
frægu, að hjólin fóru að snúast fyrir alvöru og
HBO-samningurinn komst í höfn. Að sögn Mar-
grétar kom hún á fundi við æðstu menn HBO
en slíkt er víst nánast ógjörningur. „Rosie sá
myndina og heillaðist algjörlega af henni. Þetta
er náttúrlega ótrúlegt en Rosie er mjög stórt
nafn hérna úti,“ segir Margrét sem sjálf hafði
ekki hugmynd um hvers slags völd og áhrif
sjónvarpskonan hefur.
HBO stefnir á að senda Sólskinsdreng-
inn í Óskarsforvalið fyrir þetta ár en
slíkt kostar mikla peninga. Þeir gera
sér vonir um að myndin kunni hljóta
náð fyrir augum Akademíunnar. Mar-
grét segir að bæði Rosie
og Kate Winslet, sem talar
inn á ensku útgáfuna af
myndinni, ætli að leggja
sitt á vogarskálarnar. „Þær
vilja ljá þessum einhverfu
börnum rödd og styðja við
bakið á myndinni þegar
hún verður frumsýnd.“
Sólskinsdrengurinn segir
sögu Kela sem er einhverfur
og baráttu móður hans, Margrét-
ar, við að skilja bæði sjúkdóminn
og þann hulda heim sem einhverfir
búa við. - fgg
HBO kaupir Sólskinsdrenginn
Í STJÖRNUFANS Sólskinsdrengur-
inn Keli heillar alla upp úr skón-
um, hvar sem hann stígur niður
fæti. Nú hefur HBO keypt heim-
ildarmyndina og ætlar sér stóra
hluti með hana. Sjónvarps konan
Rosie O’Donnell hafði milligöngu um
samninginn.