Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 6
6 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Ert þú bjartsýn(n) á útkomu
loftslagsráðstefnu Sameinuðu
Þjóðanna í Kaupmannahöfn?
Já 31,7%
Nei 68,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Styrkir þú góðgerðarsamtök
fyrir jólin?
Segðu þína skoðun á visir.is
tökum notuð barnaskíði og skó upp í ný
SKÍÐASKIPTIMARKAÐUR
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
189.000kr.
ÍRAK, AP Á annað hundrað manns fórust í fimm
sprengjuárásum í Bagdad í gærmorgun. Hundruð
manna særðust.
Talsmaður írakska hersins segir árásirnar
runnar undan rifjum Al Kaída og meðlima
í Baath-flokknum, sem var stjórnarflokkur
Saddams Hussein en hefur verið bannaður árum
saman.
Tvær árásanna voru sjálfsvígsárásir. Allar
beindust þær að byggingum stjórnvalda, þar á
meðal eftirlitsstöð lögreglu. Þetta er í þriðja sinn
frá því í ágúst sem uppreisnarmenn gera sam-
hæfðar árásir á opinberar byggingar með miklu
blóðbaði.
Árásirnar þykja sýna fram á veikleika í örygg-
ismálum Íraks. Þing landsins var kallað saman til
neyðarfundar og kröfðust þingmenn skýringa á
því sem ábótavant þykir í öryggismálum.
Þrátt fyrir að uppreisnarmenn hafi hert árásir
sínar á stjórnarbyggingar síðustu mánuði hefur
dregið úr mannfalli í Írak undanfarið ár.
Þann 25 október voru gerðar svipaðar árásir í
Bagdad, sem kostuðu að minnsta kosti 155 manns
lífið, og í ágúst gerðu sjálfsvígsmenn árásir á
tvö ráðuneyti með þeim afleiðingum að hundrað
manns fórust. - gb
Fimm samhæfðar sprengjuárásir á stjórnarbyggingar í Bagdad:
Al Kaída og Baath kennt um
EYÐILEGGING Bandarískir hermenn á vettvangi einnar
sprengjuárásarinnar í Bagdad. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Setning neyðarlaganna
6. október á síðasta ári var eina
úrræði íslenskra stjórnvalda til
að sporna við algjöru hruni efna-
hagslífsins.
Þetta er bráðabirgðamat ESA,
Eftirlitsstofnunar EFTA, á rétt-
mæti neyðarlaganna gagnvart
EES-samningnum og öðrum laga-
legum skilyrðum.
ESA upplýsti stjórnvöld um
þessa niðurstöðu á föstudag og var
hún opinberuð í gær.
Hópur kröfuhafa á hendur gömlu
bönkunum, Spron og Sparisjóða-
bankanum óskaði álits ESA á lög-
mæti þeirrar ráðstöfunar Alþingis
að setja neyðarlögin en með þeim
voru innstæður varðar og settar í
forgang fram yfir aðrar hugsan-
legar kröfur á fallna banka.
Í erindi kröfuhafanna var því
haldið fram að stjórnvöldum
hefðu verið aðrar leiðir færar en
ESA fellst ekki á þá skoðun.
Kröfuhafarnir geta gert
athugasemdir við þessa bráða-
birgðaniðurstöðu ESA til 15. jan-
úar en verði niðurstaðan endan-
leg hafa þeir ekki möguleika á
að skjóta málinu til EFTA-dóm-
stólsins. Lyki því meðferð þess
innan EES. Hins vegar er bent
á í tilkynningu forsætisráðherra
að íslenskur dómstóll sem fjall-
aði um sambærilegt mál tengt
bankahruninu óskaði eftir ráð-
gefandi áliti EFTA-dómstólsins.
- bþs
Eftirlitsstofnun EFTA telur neyðarlögin standast EES-samninginn og önnur skilyrði:
Neyðarlögin eina úrræðið
NEYÐARLÖGIN KYNNT Geir H. Haarde
sagði frá áforum stjórnvalda um setn-
ingu neyðarlaga sama dag og frumvarp
þar um var samþykkt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMFÉLAGSMÁL Fjölskylduhjálp
Íslands gerir ráð fyrir að á bil-
inu 1.000 til 1.200 fjölskyldur
muni sækja jólaaðstoð félagsins í
desember.
Jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar-
innar mun fara fram miðvikudag-
ana 9. og 16. desember, og mánu-
daginn 21. desember frá klukkan
15 til 18 í Eskihlíð 2 til 4 í Reykja-
vík. Ekki þarf að sækja um jóla-
aðstoðina fyrirfram.
Í tilkynningu frá Fjölskyldu-
hjálpinni kemur fram að úthlutað
verði jólaaðstoð til allt að 400
fjölskyldna hvern úthlutunardag
til jóla, eða til samtals 1.200 fjöl-
skyldna. - bj
Fjölskylduhjálp Íslands:
Búast við 1.200
fram að jólum
REYKJAVÍK Algerlega óásættanlegt
er að borgarstjórnarmeirihlutinn
fari í sársaukafulla hagræðingu í
velferðarmálum, þvert á það sem
talað hafi verið um, segir borgar-
fulltrúi Vinstri grænna.
„Við viljum að við þessar erf-
iðu aðstæður sé forgangsraðað
í þágu velferðar, með áherslu á
börnin,“ segir Þorleifur Gunn-
laugsson, borgarfulltrúi Vinstri
grænna í Reykjavík.
Þorleifur segir að þó að sam-
kvæmt fjárhagsáætlun renni
fleiri krónur til velferðarmála í
Reykjavík á næsta ári en í ár séu
bætur til einstaklinga síður en
svo að hækka.
Í raun þurfi
að draga úr
útgjöldum og
hagræða í vel-
ferðarmálum.
Samkvæmt
fjárhagsáætlun
velferðarsviðs
aukast fjár-
framlögin um
815 milljónir
milli ára. Þor-
leifur segir að sú aukning fari að
megninu til í að greiða fleiri ein-
staklingum húsaleigubætur.
Þá hafi ekki verið tekið tillit
til verðlagsbreytinga milli ára,
annað árið í röð. Eðlilegt væri að
reikna verðbætur á útgjöldin þar
sem verðhækkanir hafi augljós-
lega áhrif á útgjöld til velferðar-
mála. Þar sem það hafi ekki verið
gert sé framlagið í raun að lækka
milli ára.
„Vegna þessa verður að hag-
ræða á velferðarsviði, og starfs-
fólk hefur staðið í ströngu við að
skera niður útgjöldin,“ segir Þor-
leifur. „Það er búið að skera alla
fituna fyrir löngu, nú er komið að
sársaukafullri hagræðingu.“
Þorleifur segir að útgjöld
borgar innar myndu aukast um
230 til 240 milljónir króna á ári
ef hækka ætti hámarks fjárhags-
aðstoð til einstaklinga um átján
þúsund krónur á mánuði, eins og
borgarfulltrúar Vinstri grænna
hafa lagt til. Aðstoðin er nú að
hámarki 115.567 krónur á mán-
uði.
Fjár fyrir þessari útgjaldaaukn-
ingu megi afla með því að hækka
útsvarið í leyfilegt hámark, 13,28
prósent. Það myndi auka tekjur
borgarinnar um 720 til 740 millj-
ónir króna á ári, en hækka skatt-
greiðslur einstaklings með 500
þúsund krónur í mánaðartekjur
um 1.250 krónur á mánuði.
Ekki náðist í Jórunni Frímanns-
dóttur, formann velferðarráðs
Reykjavíkurborgar, við vinnslu
fréttarinnar í gærkvöldi.
brjann@frettabladid.is
Sársaukafull hagræð-
ing í velferðarmálum
Starfsfólk á velferðarsviði stendur í ströngu við að skera niður útgjöld þrátt
fyrir að borgaryfirvöld segi ekki dregið úr framlögum, segir borgarfulltrúi VG.
Ekki hefur verið tekið tillit til verðlagsbreytinga á fjárhagsáætlun næsta árs.
FORGANGSRÖÐUN Í erfiðum efnahagsaðstæðum verður að forgangsraða í þágu
velferðar með áherslu á börnin, segir borgarfulltrúi VG. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞORLEIFUR
GUNNLAUGSSON
KJÖRKASSINN