Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 56
40 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Sölvi Geir Ottesen var í enskum fjöl- miðlum í gær orðaður við ensku úrvalsdeildarfélögin Fulham og Sunderland. Hann er einnig orð- aður við hollenska félagið Twente sem Steve McClaren, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, stýrir. Útsendarar frá bæði Fulham og Sunderland voru staddir á síð- asta leik SönderjyskE, sem Sölvi leikur með, í þeim tilgangi að skoða íslenska landsliðsmanninn. Frammistaða Sölva Geirs með danska félaginu hefur vakið mikla athygli en hann hefur farið á kost- um og er fyrirliði liðsins. „Það voru menn þarna að skoða mig. Ég er ekkert að æsa mig yfir þessu enda ekki komin nein tilboð frá neinum. Á meðan er ég ekk- ert að stressa mig. Ég veit ekki til þess að þessi félög hafi áður sent menn til þess að skoða mig,“ segir Sölvi Geir, sem er staddur í Dubai í fríi. Hann er með tvo umboðsmenn á sínum snærum, einn sem sér um England og annan sem sér um allt sem er utan Englands. „Auðvitað væri gaman að fara til Englands. Úrvalsdeildin er auðvitað draumurinn en ég myndi líka alveg sætta mig við að byrja aðeins neðar. Ég hef ekkert heyrt í umboðsmanninum mínum enda vil ég ekki að hann sé að láta mig vita fyrr en það sé komin einhver alvara í málin,“ segir Sölvi Geir, sem á eitt og hálft ár eftir af samn- ingi sínum við SönderjyskE þannig að ekki fer hann frítt. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sölvi er orðaður við stór félög. Er það ekkert pirrandi að lesa frétt- ir af sínum málum og svo gerist ekki neitt? „Ég reyni að spá voða lítið í þessu. Ef eitthvað gerist þá gerist það. Á meðan held ég bara mínu striki. Það er ekkert annað hægt að gera,“ segir Sölvi sem unir hag sínum vel í Danmörku. „Okkur líður öllum mjög vel í Danmörku. Við höfum það rosa- lega gott. Auðvitað langar mann að komast lengra áfram og ég yrði örugglega fúll ef það myndi ekkert gerast. Sú fýla myndi samt örugg- lega ekki standa lengi yfir. Þá myndi maður bara reyna að gera eitthvað í næsta glugga.“ Eins og áður segir hefur gengið afar vel hjá Sölva í Danmörku og hann er sáttur við eigin frammi- stöðu. „Það gengur rosalega vel. Ég get ekki kvartað yfir neinu. Svo er fínt að komast í smá vetrarfrí núna. Þetta er svolítið sérstakt að fara í frí núna alveg fram í mars. Svo þegar tímabilinu lýkur eru bara nokkrar vikur í næsta tíma- bil. Maður er eiginlega að kveðja menn núna en tímabilið er samt bara hálfnað,“ segir Sölvi Geir og svo er spurning hvort hann verður keyptur þegar markaðurinn opnar í janúar. henry@frettabladid.is Yrði fúll ef ekkert gerðist Ensku úrvalsdeildarfélögin Fulham og Sunderland fylgjast grannt með Sölva Geir Ottesen þessa dagana sem og hollenska félagið Twente. Sölvi Geir segir að draumurinn sé að komast að hjá liði á Englandi. EFTIRSÓTTUR Sölvi Geir Ottesen hefur víða vakið athygli með frammistöðu sinni í Danmörku. Hann er hér í landsleik. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP > Arnar fékk tveggja leikja bann Aganefnd HSÍ dæmdi Arnar Birki Hálf- dánsson, leikmann meistaraflokks Fram, í tveggja leikja bann í gær. Arnar beitti svokölluðu Júggabragði á Jón Karl Björnsson, leikmann Gróttu, og segir í dómi aganefndar að bragðið sé stór- hættulegt heilsu andstæðingsins. Aganefndin lítur því þannig á að um grófa, óíþróttamanns- lega framkomu sé að ræða. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, skaut umdeildum ummælum Arnars um Jón Karl í Fréttablaðinu ekki inn á borð aganefndar þar sem leikmaðurinn baðst afsökunar á hegðun sinni. U-21 landsliðsmaðurinn Bjarni Þór Viðarsson hefur gert það gott með belgíska úrvalsdeildarfélaginu KSV Roeselare síðan hann kom til félagsins í sumar. Alls hefur hann skorað sex mörk í ellefu leikjum með liðinu. Það eina sem skyggir á er að liðið er í botns- æti deildarinnar. „Það er búið að ganga rosalega vel hjá mér,“ sagði Bjarni Þór. „Enda felast okkar vandamál ekki í markaskorun eða sóknarleik. Það er fyrst og fremst varnarleikurinn sem hefur reynst okkur erfiður. Við höfum fengið of mörg mörk á okkur úr föstum leikatriðum og markvarslan mætti vera betri. En það er öll seinni umferðin eftir og ég hef fulla trú á því að okkur takist að safna nógu mörgum stigum til að bjarga okkur frá falli.“ Bjarni Þór kom til hollenska félagsins Twente árið 2008 eftir fjögurra ára dvöl hjá Everton í Englandi. Fljótlega eftir komuna til Hollands meiddist Bjarni illa á hné og missti hann þar af leiðandi af öllu síðasta tímabili. Hann fékk heldur ekkert að spreyta sig hjá Everton og segist hann því afar ánægður með að fá loksins að spila reglulega. „Ég er rosalega ánægður í Belgíu. Hér er spilaður fínn bolti, margir áhorfendur á leikjum og nýtt fyrir mig að fá að spila í hverri viku. Það var kominn tími til að fá að sýna sig.“ Hann segir að hann hafi einhverja athygli fengið í belgískum fjölmiðlum síðan hann kom í haust en fyrst og fremst fyrir að vera yngri bróðir Arnars Þórs Viðarssonar sem hefur leikið í Belgíu í rúman áratug. „Ég er nú yfirleitt kallaður „Kleine Vidarsson“ hér í Belgíu,“ segir hann í léttum dúr. „Vissulega hefur maður einhverja athygli fengið út á mörkin en mér skilst að ég sé markahæsti miðjumaðurinn í deildinni nú.“ Þess má einnig geta að Collins John, fyrrum leikmaður Fulham, er samherji Bjarna hjá Roeselare. Þó svo að hann sé ekki nema 24 ára gamall segir Bjarni að hann sé nú langt frá sínu besta. „Þetta er algjör toppmaður en hann hefur enn ekki náð að skora. Hann fær há laun en félagið mun örugglega reyna að losa sig við hann í janúar og fá 2-3 góða leikmenn í staðinn. Ég tel að það væri góð lausn fyrir liðið enda er óhætt að segja að hann hafi ekki staðið undir væntingum.“ BJARNI ÞÓR VIÐARSSON: MARKAHÆSTI MIÐJUMAÐURINN Í BELGÍSKU ÚRVALSDEILDINNI „Kleine Viðarsson“ slær í gegn í Belgíu MEISTARADEILDIN Í KVÖLD E-riðill Lyon - Debrecen 19.45 Liverpool - Fiorentina 19.45 Staðan: Fiorentina 12, Lyon 10, Liver- pool 7, Debrecen 0. F-riðill Dynamo Kiev - Barcelona 19.45 Inter - Rubin Kazan 19.45 Staðan: Barcelona 8, Inter 6, Rubin Kazan 6, Dynamo Kiev 5. G-riðill Sevilla - Rangers 19.45 Stuttgart - Unirea Urziceni 19.45 Staðan: Sevilla 10, Unirea Urziceni 8, Stuttgart 6, Rangers 2. H-riðill Standard Liege - AZ Alkmaar 19.45 Olympiakos - Arsenal 19.45 Staðan: Arsenal 13, Olympiakos 7, Standard Liege 4, AZ Alkmaar 3. FÓTBOLTI Síðustu leikirnir í riðla- keppni Meistaradeildar Evrópu fara fram í kvöld en þá ræðst endanlega hvaða sextán lið kom- ast áfram í næstu umferð en hún verður háð með útsláttarfyrir- komulagi. Enn eru fjögur laus sæti fyrir leiki kvöldsins, þar af tvö í F-riðli sem hefur verið jafn og spenn- andi hingað til. Þar eru Evrópu- meistarar Barcelona á toppnum en þeir gætu dottið niður í þriðja sæti riðilsins í kvöld ef liðið tapar fyrir Dynamo Kiev í Úkraínu með minnst tveggja marka mun og leik Inter og Rubin Kazan lyktar ekki með jafntefli. Þó má gera ráð fyrir því að Börsungar séu í lykilstöðu í riðlin- um og að leikur Inter og Rubin sé úrslitaleikur um hvort liðið fylgi þeim spænsku áfram í sextán liða úrslitin. „Þetta verður okkar mikilvæg- asti leikur á tímabilinu til þessa,“ sagði Pep Guardiola, stjóri Barcelona, í spænskum fjöl- miðlum. „Ég er sannfærður um að við munum spila vel. Við megum alls ekki við því að falla úr leik og við verð- um að ná efsta sæti riðils- ins.“ Barcelona hefur verið á frá- bærum skriði að undanförnu og unnið Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni og Inter í Meistaradeild- inni á síðustu vikum. Úrslit í E-riðli eru ráðin að öllu leyti nema að Lyon getur enn náð efsta sæti riðilsins af Fiorent- ina, sem sá til þess fyrir tveimur vikum að Liver- pool komst ekki áfram í næstu umferð. Í G-riðli er Sevilla öruggt áfram en Stuttgart og spútnikliðið Unirea Urziceni mætast í hreinum úrslitaleik í Þýskalandi um hvort liðið fylgir Sevilla áfram. Þar nægir Unirea jafntefli. Arsenal hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lið í H-riðli og er öruggt áfram. Olympiakos er í góðri stöðu en þarf helst stig á heima- velli gegn þeim ensku í kvöld. - esá Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld með átta leikjum: Barist um síðustu sætin í kvöld PEP GUARDIOLA Vill ná efsta sæti riðilsins. NORDIC PHOTOS/AFP Fyrirtæki á Höfuðborgar svæðinu og Akureyri. Bjóðum upp á örugga og hraða sendingar þjónustu fyrir jólin. Pakkar, bögglar og nafnamerkt blöð. Nánari upplýsingar veiti r Pósthúsið í síma 585-8300 eða á posthusid.is FÓTBOLTI Ítalinn Alberto Aquil- ani verður líklega í byrjunar- liði Liverpool í fyrsta sinn síðan hann kom til félagsins frá Roma í sumar. Hann kostaði tuttugu milljónir punda en Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur verið ansi spar á að nota hann eftir að hann jafnaði sig á ökklameiðslum í síð- asta mánuði. „Við ákváðum að tefla ekki á tvær hættur með hann,“ sagði Benitez. „Við munum sjá vel um hann og hann verður tilbúinn þegar hann spilar. Vonandi verður það í dag.“ - esá Alberto Aquilani: Loksins í byrj- unarliðinu AQUILANI Fær loksins tækifæri til að sýna hvað hann getur – ekki bara á æfingasvæðinu. NORDIC PHOTOS/GETTY HANDBOLTI Stjórn Handknattleiks- sambands Íslands ákvað á fundi sínum í gær að deildarbikar- keppni HSÍ færi fram á milli jóla og nýárs eins og á síðustu árum. Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, sagði við Fréttablaðið í síðustu viku að hann ætti von á því að keppnin yrði lögð af. Hún hafi verið sett á laggirnar eftir að úrslitakeppnin var aflögð á sínum tíma en sé nú óþörf fyrst úrslitakeppnin er komin aftur. „Í hreyfingunni ríkja mjög skiptar skoðanir um þessa keppni,“ sagði Einar svo um málið í gær. „En menn voru sam- mála um að hætta þyrfti við keppnina með lengri fyrirvara. Það var því ákveðið að keppnin færi fram í ár og málið yrði svo tekið fyrir á næsta ársþingi.“ Fjögur efstu lið N1-deild karla og kvenna taka þátt í deildar- bikarnum. Ljóst er að Valur, Stjarnan, Fram og Haukar taka þátt í keppni kvenna. Karlamegin eru Haukar öruggir áfram en það ræðst um helgina hvaða þrjú lið komast áfram með þeim. Valur, Akureyri, FH, Grótta og HK bít- ast um þau sæti. Tvö fyrstnefndu liðin standa þó mjög vel að vígi. Undanúrslitin fara fram sunnu- daginn 27. desember og úrslita- leikirnir mánudagskvöldið 28. september. - esá Deildarbikarkeppni HSÍ: Fer fram í ár þrátt fyrir allt VERJA EKKI TITILINN Fram hefur orðið deildarbikarmeistari tvö ár í röð en mun ekki verja titilinn í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL MYND/ KSVROESELARE.BE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.