Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2009 5leikur í höndum ● fréttablaðið ● ● ALLT UM ALTERNATORINN Alternator er eitt af þessum bílaorðum sem sveipa vélina undir húdd- inu dulúð. Jeppar þurfa stærri alternatora en fólksbílar og stór- ar gröfur eiga það til að steikja þá. Sumir lemja alternatora ef þeir haga sér illa, en þá eru þeir hættir að hlaða rafgeyminn. Alt- ernator þýðir rafall eða spennu- gjafi sem getur af sér riðstraum. Hann er tengdur við vélina með reim og hlutverk hans er að halda rafgeyminum fullhlöðnum og vega upp á móti spennufalli þegar rafgeymirinn afhleðst hratt. En rafgeymirinn má ekki tæmast, þá stöðvast bifreiðin. ● HVORU MEGIN? Sumir eiga endalaust erfitt með að muna hvoru megin bensínlokið er á bílnum. Það getur verið bagalegt og pirrandi en það er alveg óþarfi því að bensínmerkið í mælaborðinu sýnir hvoru megin þú átt að leggja upp við bensíndælu. Hjá bensínmælinum er táknmynd og þeim megin sem stútur og slanga er á þessari táknmynd, þeim megin er bensínlokið á bílnum. Svona er þetta í næstum því öllum bílum.Hér er bensínlokið á hægri hlið. Bifvélaviðgerðir eru ekki með- fæddur eiginleiki og við sumum bilunum er lítið annað hægt að gera en láta sérfræðing gera við þær. Sumt getur maður þó, góðu heilli, gert sjálfur. Til dæmis getur maður sjálfur athugað ástand hjólbarða og hjólbarðaþrýsting, skipt um dekk, athugað kælivökva, skipt um perur og kerti, athugað vatnsstöðu í raf- geymi, smurt hurðalamir, kann- að ástand og stillingu viftureim- ar, skipt um olíu, olíusíu og loftsíu, blettað í rispur á lakki og svo auð- vitað þrifið bíl- inn. Það er alveg með ólík- indum hvað bifreið getur tekið miklum stakkaskiptum við það eitt að vera þrifin. - nrg Að taka málin í sínar hendur ● MIKILVÆGT AÐ SKPTA UM REGLULEGA Tímareim er einn af þessum hlutum í bílnum sem mikilvægt er að skipta reglulega um. Ef það er ekki gert getur reiminn slitnað og þá getur viðgerðarkostnaður- inn orðið margfalt meiri en kostnaðurinn við að skipta henni út tíman- lega. Afleiðingarnar gætu orðið þær að stimpillinn rekst í ventlana og skekkir þá, eða vélin hreinlega eyðileggst. Þess vegna er gott að muna að yfirleitt þarf að skipta um tímareim á 100.000 kílómetra fresti. Með reglulegri meðhöndlun á vinnukonum má koma í veg fyrir skítugar framrúður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Stórbættu útsýnið og meðhönd- aðu vinnukonurnar á framrúð- unni: ● Reddaðu tjörueyði, ísvara eða kveikjarabensíni. ● Settu efnin í klút. ● Lyftu upp rúðuþurrkunum og strjúktu þeim vel upp og niður. ● Þrífðu líka framrúðuna. ● Leggðu rúðuþurrkurnar niður aftur. ● Nú eiga þurrkurnar að vinna betur. ● Skilji þurrkurnar eftir rákir á rúðunni í blautu veðri er kominn tími á nýjar. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.