Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 10
9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Ringjarar
þurfa ekki
skæri.
Við sendum
tilboð beint
í símann.
Tilboð dagsins:
Gláp
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
Gildir í dag,
miðvikudag
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
16
3
50%
afsláttur
í bíó hjá
Senu fyrir 1
Ringjarar fara inn á ring.is
og óska eftir að fá MMS með
tilboðum send í símann.
Ath. Gildir ekki í lúxussal, á íslenskar
myndir og myndir sýndar í digital þrívídd.
Tilboðið gildir í tilteknum bíóum Senu:
Ekkert vesen með afsláttarmiða,
þú sýnir bara GSM símann í afgreiðslunni.
Bíó á hálfvirði í dag á ring.is
STJÓRNMÁL Eftirlit Fjármálaeftir-
litsins (FME) með starfsemi banka
og stórum lántakendum verður
stóraukið, samkvæmt frumvarpi
til breytinga á lögum um fjármála-
fyrirtæki.
Tekur frumvarpið á flestu því
sem fór úrskeiðis í rekstri og
umgjörð bankakerfisins á undan-
förnum misserum, að sögn Gylfa
Magnússonar
ráðherra sem
kynnti frum-
varpið í ríkis-
stjórn í gær. Má
segja að mörg-
um veigamikl-
um köflum gild-
andi laga verði
kollvarpað.
Auk þess sem
nýju lögin kveða
á um strangara og umfangsmeira
eftirlit FME en áður verður fjár-
málafyrirtækjunum sjálfum gert
að breyta starfsháttum sínum og
skipulagi frá því sem nú er mögu-
legt. Er tekið á krosseignatengsl-
um, möguleikum fyrirtækja á að
eiga hluti í sjálfum sér og nán-
ast lagt bann við lánveitingum
með veði í eigin hlutabréfum eða
stofnfjárbréfum. Þá verður FME
gert að þrengja reglur um hvernig
bankar geta lánað með veði í hluta-
bréfum eða skuldabréfum útgefn-
um af öðrum fjármálafyrirtækj-
um. Einnig verða settar þröngar
skorður við lánveitingum til stjórn-
armanna og lykilstarfsmanna og
er FME falið víðtækt hlutverk við
eftirlit með slíkum viðskiptum.
Reglur verða settar um hvata-
kerfi, kaupaukakerfi og starfsloka-
samninga. „Þar verður svigrúm
til að fara langt yfir strikið skorið
niður og bankarnir þvingaðir til að
Kollvarpa lögum til
að treysta bankana
Eftirlit Fjármálaeftirlitsins verður stóraukið og margvíslegar heimildir bank-
anna þrengdar samkvæmt nýju frumvarpi um fjármálafyrirtæki. Lög verða
sett um launabónusa og starfslokasamninga og tekið á krosseignatengslum.
GYLFI MAGNÚSSON
KAUPÞINGSMENN Kaupaukakerfin sem viðhöfð voru í bönkunum voru utan
velsæmismarka að mati ráðherra. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi Kaupþings-
forstjóri, hefur lýst sig sammála því mati og sagt bónusana vera eitt af því sem
hafi farið úr böndunum í bankanum.
■ Bankarnir haldi miðlæga skrá um
stóra lántakendur.
■ Stórir lántakendur upplýsi FME
um skuldbindingar og stöðu sína.
■ Skerpt verður á ákvæðum um
heilbrigða og eðlilega viðskipta-
hætti.
■ Tímamörk fjármálafyrirtækja til að
selja eignir sem þau eignast vegna
þrots fyrri eigenda verða þrengd.
■ Skilyrði fjármálafyrirtækja fyrir að
eiga eigin hluti verða þrengd.
■ Nánast er lagt bann við lánveit-
ingum með veði í eigin hlutabréfum.
■ Mjög þröngar skorður verða settar
við lánveitingum til stjórnarmanna,
framkvæmdastjóra og lykilstarfs-
manna.
■ FME setji þröngar reglur um lán
með veði í hlutabréfum eða skulda-
bréfum annarra fjármálafyrirtækja.
■ Reglur um stórar áhættuskuld-
bindingar verða þrengdar.
■ Reglur verða settar um hvatakerfi,
kaupaukakerfi og starfslokasamn-
inga.
MEÐAL EFNIS Í FRUMVARPINU
hafa þau mál í eins eðlilegu horfi
og hægt er að gera kröfu um,“
segir Gylfi Magnússon. Vissulega
sé samningsréttur – sem almennt
er frjáls – þrengdur en gæta verði
þess að fyrirtæki viðhafi ekki
kerfi sem hvetji til óhóflegrar
áhættu.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra segir frumvarpið
taka á mjög veigamiklum þáttum
í því sem leiddi til bankahrunsins
og því sé mikilvægt að það hljóti
afgreiðslu sem fyrst. Ekki er þó
búist við að af henni verði fyrr en
á nýju ári. bjorn@frettabladid.is
VIÐSKIPTI „Það eru óþolinmóðir
Íslendingar og óþolinmóðir útlend-
ingar, sem voru lokaðir inni með
gjaldeyrishöftunum sem hafa farið
þarna út,“ segir Þórólfur Matthías-
son prófessor, spurður hvað hann
lesi út úr upplýsingum sem fram
hafa komið á Alþingi um að fjár-
hæðir meintra gjaldeyrissvika,
sem Seðlabankinn rannsakar nemi
57,5 milljörðum króna á 10 mánaða
tímabili. Hann segir að erlendu
aðilarnir geti verið jöklabréfaeig-
endur. „En að því marki sem þetta
eru óþolinmóðir Íslendingar, gætu
það verið útrásarvíkingar sem ótt-
ast frystingu eigna sinna.“
Skráð gengi
evru var í gær
um 183 krónur
en þá var sölu-
gengi á hinum
óskráða aflands-
markaði komið í
291 krónu. Þór-
ólfur segir það
háa verð til
marks um að
lítið framboð
sé á nú krónum til að koma á við-
skiptum á aflandsmarkaðnum.
Þórólfur segir að ávinningur
þeirra sem standa á bak við
gjaldeyrissvikin sé í mesta lagi
helmingur af heildarfjárhæð-
inni og líklega mun minna. „Það
er rétt að hafa í huga að tölurn-
ar verða fljótt mjög stórar ef
litið er á brúttóupphæð viðskipt-
anna, en í leiðinni er verið að selja
vöru og þjónustu,“ segir hann.
„Ávinningur inn er í hæsta lagi
helmingur og sennilega töluvert
undir því.“
Ásbjörn Óttarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segir að það
hafi komið sér á óvart hve upphæð
meintra gjaldeyrissvika var há.
„En maður hefur heyrt að margir
hafi grætt ótrúlegar fjárhæðir á
þessu,“ segir Ásbjörn. - pg
Hagfræðiprófessor um upphæðir í gjaldeyrissvikamálum:
Gætu verið útrásarvíkingar
sem óttast frystingu eigna
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra á ekki von á að
neitt komi fram í nýrri meðferð
fjárlaganefndar á Icesave-málinu
sem breyti því að ráði eða bæti.
Flestallt, ef ekki allt, liggi þegar
fyrir.
Að kröfu stjórnarandstöðunnar
var gert samkomulag í sextán
liðum um málsmeðferðina. Kalla
á eftir álitsgerðum á lagalegum og
efnahagslegum atriðum, auk þess
sem ræða á við Geir H. Haarde og
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir áfram stefnt
að því að ljúka lögfestingu máls-
ins fyrir áramót en stjórnin hafi
ekki sett sér tiltekna dagsetningu.
Reynt sé að tryggja að ekki hljót-
ist skaði af þegar orðnum drætti og
er Bretum og Hollendingum haldið
upplýstum um gang mála.
Steingrímur telur, líkt og
Jóhanna, að málið sé þaulkannað
en fjárlaganefnd muni gera allt
sem hún geti til að mæta óskum
stjórnarandstöðunnar. „Það er rétt
og skylt að mæta öllum málefna-
lega rökstuddum sjónarmiðum en
ekki öðrum,“ segir hann. Mikið sé
til af gögnum sem nægi til að svara
mörgum af spurningum stjórnar-
andstöðunnar og raunar séu þau
fyrirliggjandi á upplýsingavefnum
island.is. - bþs
Forsætisráðherra telur fjárlaganefnd ekki þurfa langan tíma til að fara yfir Icesave:
Flest liggur fyrir og margt á island.is
AÐ LOKNUM RÍKISSTJÓRNARFUNDI
Steingrímur og Jóhanna tjáðu sig um
Icesave-skilmála stjórnarandstöðunnar í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞÓRÓLFUR
MATTHÍASSON