Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 62
46 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur
sent Fréttablaðinu yfirlýsingu
vegna deilna hans við Fíladelfíu-
söfnuðinn sem Séð og heyrt greindi
fyrst frá. Þar kemur fram að hann,
ásamt tónlistarstjórum safnaðar-
ins og forstöðumanni, hafi reynt að
lægja öldurnar og umræðuna sem
varð í þjóðfélaginu á fundi í síðustu
viku og þeir hafi ætlað að senda
frá sér sameiginlega yfirlýsingu.
Ekki hafi hins vegar tekist sam-
komulag um orðalag. Hins vegar
er Friðrik ánægður með að heyra
að samkynhneigðir séu velkomn-
ir í Fíladelfíusöfnuðinn eins og
kom fram í yfirlýsingu Fíladelfíu
sem send var fjölmiðlum í síðustu
viku. „Það þykja mér góð tíðindi
og fagna ég þeim.“
Friðrik segir það jafnframt
rangt sem fram kemur í yfirlýs-
ingu Fíladelfíusafnaðarins að
aldrei hafi borist beiðni um að hann
kæmi fram á tónleikunum. „Sann-
leikurinn er sá að ég hef haft sam-
skipti við tónlistarstjóra safnaðar-
ins varðandi tónlistarflutning með
kórnum en þau sjá um skipulagn-
ingu tónleikanna. Árið 2007 ræddi
ég við tónlistarstjóra í tengslum við
að ég kæmi fram með kór safnaðar-
ins. Á þeim tíma var mér tjáð af
tónlistarstjórunum að mín samkyn-
hneigð „gæti farið fyrir brjóstið á
fólki innan safnaðarins, hneykslað
einhverja“ og þess vegna gæti ekki
af því orðið. […] Þetta hef ég bæði
munnlegt og skriflegt,“ segir Frið-
rik í yfirlýsingunni.
Friðrik vísar því á bug að hann
hafi komið fram með þetta mál
sökum einhverrar athyglissýki.
„Ég harma það mjög að samkyn-
hneigð geti farið fyrir brjóstið á
sumu fólki eins og tónlistarstjórar
kirkjunnar tjáðu mér á sínum
tíma. Ég túlka yfirlýsingu Hvíta-
sunnukirkjunnar þannig að með
henni hafi orðið viðhorfsbreyting
gagnvart samkynhneigðum. Þetta
er greinleg breyting miðað við
reynslu mína af kirkjunni sem ég
fagna,“ segir Friðrik.
freyrgigja@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. fíkniefni, 6. kusk, 8. þunnur vökvi,
9. ról, 11. þurrka út, 12. kál, 14.
gimsteinn, 16. grískur bókstafur, 17.
angan, 18. kerald, 20. horfði, 21.
glufa.
LÓÐRÉTT
1. asi, 3. bor, 4. alls, 5. fyrirboði, 7.
eilífð, 10. nögl, 13. kjáni, 15. lítill, 16.
krot, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hass, 6. ló, 8. lap, 9. ark,
11. má, 12. salat, 14. tópas, 16. pí, 17.
ilm, 18. áma, 20. sá, 21. rifa.
LÓÐRÉTT: 1. flas, 3. al, 4. samtals, 5.
spá, 7. óratími, 10. kló, 13. api, 15.
smár, 16. pár, 19. af.
Inntökupróf í KG Club verður
haldið á veitingastaðnum Ömmu
Habbý á Ísafirði í kvöld. „Þetta
var fyrst óformlegur klúbbur
þar sem menn fengu útrás fyrir
græðgina. Svo bara ákváðum við
að taka þetta skrefinu lengra og
halda inntökupróf fyrir gesti og
gangandi,“ segir Þorsteinn Más-
son í KG Club. Þeir sem vilja
komast í klúbbinn í kvöld þurfa
að innbyrða eitt kíló af nauta-
kjöti á innan við einni og hálfri
klukkustund. Einnig þarf að
borða hnefafylli af meðlæti með.
Ekki má kasta upp kjötinu meðan
á þolrauninni stendur og kjötið
verður að vera eitt kíló að þyngd
eftir eldun.
„Þetta er samfélag einstaklinga
sem hafa klárað að éta eitt kíló af
kjöti í einni máltíð. Þetta eru með-
limir af öllum stærðum og gerð-
um,“ segir Þorsteinn um KG Club.
Sex eru nú þegar í klúbbnum en í
kvöld geta fimmtán til viðbótar,
átján ára og eldri, bæst við upp-
fylli þeir inntökuskilyrðin. „Við
höfum allir gengið í gegnum þetta
á mismunandi tímum. Sumir
gerðu þetta fyrir nokkrum árum
og svo eru aðrir sem hafa verið
í banastuði á jólahlaðborðum.
Þeir hafa þá fengið staðfestingu
frá kokknum um að það væri búið
að bera í þá kíló af kjöti,“ segir
hann.
Lærifaðir klúbbsins og heiðurs-
meðlimur er Þorsteinn Jónínu-
son, sem hefur veitt núverandi
meðlimum mikinn innblástur
með frammistöðu sinni. „Þegar
hann var í heimavistarskóla á
Núpi gengu sögur um að hann
hafi torgað gríðarlegu magni af
kjöti og það var kveikjan að því
að við stofnuðum þennan klúbb.
Það má segja að hann hafi sett
standardinn og svo reyna aðrir
að fylgja í fótspor hans.“
Þegar hafa ellefu skráð sig í
inntökuprófið í kvöld kl. 20.00,
allt karlmenn. „Þetta er ekki
hollt og það er ekkert sem mælir
með þessu. Það er samt ekki held-
ur neitt sem mælir með því að
drekka mikið brennivín eða labba
á Everest. Þetta er bara upplyft-
ing í skammdeginu og sprell.“
- fb
Borða kíló af kjöti á mettíma
NÝJASTI MEÐLIMURINN Þór Sveinsson,
nýjasti meðlimur KG Club, heldur á
úrbeinaða lærinu sem kom honum í
hóp hinna útvöldu.
„Ég fæ mér oftast banana,
ab-mjólk og múslí. Yfirleitt gríp
ég morgunmatinn með mér
á leiðinni út því ég er alltaf á
síðustu stundu. Svo fæ ég mér
kaffibolla.“
Auður Lind Aðalsteinsdóttir hannaði
endurskinsmerki ásamt dóttur sinni,
Hönnu Maríu.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
FRIÐRIK ÓMAR: ÁTTI FUND MEÐ VERÐI LEVÍ
Friðrik segir Fíladelfíusöfn-
uðinn fara með rangt mál
Erlendir fjölmiðlar
skiptast í tvo hópa
gagnvart kvikmynd
Sigurjóns Sighvats-
sonar, Brothers. Sumir
telja hana meðal
bestu mynda ársins
á meðan öðrum
þykir hún ekki ná
að skapa sömu
stemningu og forveri hennar sem er
danska myndin Brödre eftir Susanne
Bier. Ef marka má erlendar kvik-
myndasíður eru þó fleiri jákvæðir
en neikvæðir því samkvæmt imdb.
com fær hún 7,8 í einkunn. Rotten
Tomatoes er ekki alveg jafn jákvæð
en síðan gefur henni 58 prósent af
hundrað.
Björn Hlynur Haraldsson er einn
af bestu leikurum þjóðarinnar en
hann hefur jafnframt
sýnt að hann kann að
skrifa. Björn er nú með
tvö kvikmyndahandrit
í smíðum, annað er
um Bæjarins verstu
en hitt heitir Klara
miðill. Unnusta
Björns, Rakel
Garðarsdóttir,
er með honum
í skrifunum ásamt sjálfum Sjón en
kvikmyndin fjallar víst um spíritisma
á fyrri hluta síðustu aldar.
Lay Low semur tónlistina við
nýjustu kvikmynd Valdísar Óskars-
dóttur. Hún hefur hingað til heitið
Kóngavegur 7 en samkvæmt nýleg-
um lista yfir styrki úr kvikmyndasjóði
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands heitir
hún nú bara Kóngavegur. Annars
vekur það athygli á þeim lista að
aðeins þrjár kvikmyndir fá vilyrði
fyrir styrk; Mannerheim
eftir Renny Harlin sem
Júlíus Kemp og Ingvar
Þórðarson eru með í að
framleiða, Grafarþögn
eftir Baltasar Kormák
og Gauragangur
Gunnars Björns
Guðmundssonar.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Við erum búnir að finna marga sem
eru til í þetta,“ segir Arnar Freyr
Sigurðsson, fjórtán ára. Hann og
vinur hans Gísli Snær Guðmunds-
son skora á Sambíóin að gefa öllum
frítt í bíó sem mæta í gervi Georgs
Bjarnfreðarsonar þegar kvikmynd-
in Bjarnfreðarson verður frumsýnd
26. desember næstkomandi. Til að
uppfylla skilyrðin þurfa viðkomandi
að raka á sig skalla líkt og Georg er
með í Vaktaseríunni vinsælu.
„Við erum miklir aðdáendur þátt-
anna. Við eigum þá alla á DVD og
Georg er auðvitað uppáhaldskar-
akterinn okkar. Okkur datt þetta
svo bara í hug af því að þetta hefur
verið gert áður fyrir aðra kvik-
myndir, svo sem Hitman og The
Incredible Hulk,“ segir Arnar en
báðir eru þeir Gísli í 9. bekk í Víði-
staðaskóla.
Í tengslum við áskorunina stofn-
uðu þeir félagar Facebook-hóp þar
sem fjöldi fólks hefur skráð sig.
„Það eru komnir yfir 200 manns
á einum sólahring,“ segir Arnar.
Aðspurður segir hann þá félaga
að sjálfsögðu ætla að mæta í gervi
Georgs taki Sambíóin áskoruninni.
„Við ákváðum að við myndum báðir
raka á okkur skalla og skilja eftir
hár á hliðunum. Klæða okkur svo
í einhverja skyrtu líkt og Georg
myndi klæðast,“ segir hann.
Aðspurður segir Þorvaldur Árna-
son, framkvæmdastjóri Samfilm,
hugmyndina skemmtilega. „Ég mun
klárlega koma þessari hugmynd á
framfæri við Sagafilm, framleið-
anda myndarinnar, og þetta verður
án efa rætt. Það kryddar tilveruna
að menn séu tilbúnir að gera svona
skemmtilega hluti,“ segir Þorvaldur.
- ag
Vilja Georgsþema í bíó
„Mér finnst ofboðslega dapurlegt hvernig Friðrik hefur komið fram í þessu
máli og ég skil ekki hvað honum gengur til. Friðrik er frábær söngvari en hann
passaði einfaldlega ekki inn í þetta prógramm,“ segir Vörður Leví Traustason,
forstöðumaður Fíladelfíusafnaðarins við Hátún. Hann vísar því alfarið á bug að
söfnuðurinn prediki fordóma gagnvart samkynhneigðum
eins og hafi verið látið í veðri vaka í fjölmiðlum. Hann
bendir jafnframt á þá staðreynd að samkynhneigðir
hafi komið fram með gospelkórnum og bendir
meðal annars á skrif ungs manns á Facebook sem
kallar sig Höddi Svansson, hann sé samkynhneigður
meðlimur Fíladelfíu og hafi sungið með kórnum en
verði ekki með í ár þar sem hann sé í námi erlendis.
„Ég er stoltur af að vera hvítasunnumaður, ég tilheyri
kirkju, sem er sameinuð og kærleiksrík, ég á trúsyst-
kini, vini og fjölskyldu sem elska mig og virða eins og
ég er, en ekki eins og þau vilja að ég sé,“ skrifar Höddi.
Vörður segir jafnframt að mikil viðhorfsbreyting hafi átt
sér stað gagnvart samkynhneigðum innan safnaðarins
undanfarin ár. „Umræðan hefur hins vegar verið
mjög einhliða, okkur hafa verið lögð orð í
munn og við dæmd fyrirfram.“
SKIL EKKI HEGÐUN FRIÐRIKS
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 12.
1 Um 4,4 prósent.
2 2,9 milljörðum króna.
3 Snigill.
ÆTLA Í GERVI GEORGS Þeir Arnar Freyr
og Gísli Snær segjast báðir ætla að
mæta í gervi Georgs Bjarnfreðarsonar
taki Sambíóin áskorun þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI