Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 9. desember 2009 3 Stórhátíð með Elínu Ósk Óskars- dóttur sópransöngkonu verður haldin í fyrsta skipti í Víðistaða- kirkju á sunnudag en með henni koma fram þær Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sell- óleikari og Maríanna Másdóttir flautuleikari auk Drengjakórs Hafnarfjarðar og Óperukórs Hafnar fjarðar. „Það er búinn að vera draumur hjá mér í mörg ár að standa sjálf undir jólatónleikum. Söngvarar og listamenn eru gjarnan að koma fram á vegum annarra og þá sér- staklega klassískir listamenn. Það er gaman og þakkarvert en mig hefur hins vegar lengi langað til að gera þetta upp á eigin spýtur og fá eigin gesti.“ Elín Ósk, sem er mikið jólabarn, er búin að ganga með fjölmörg lög í maganum sem hún hlakkar nú til að geta sungið fullum hálsi. „Ég er mikill aðdá- andi stórsöngkonunnar Jessye Norman og verða nokkrar flug- eldasýningar úr smiðju hennar á dagskrá ásamt ljúfum íslenskum og erlendum jólalögum. Við verð- um öll í hátíðabúningi, skreytum kirkjuna og bjóðum upp á huggu- legheit í hléinu en markmiðið er að fólk fái hátíð, gleði og hlýju í hjartað.“ Elínu Ósk langar til að gera tónleikana að árlegum við- burði í Hafnar firði og jafnvel víðar ef vel gengur. Henni er Hafnarfjarðar bær, þar sem hún hefur verið búsett síðustu fjórtán ár, afskaplega kær en hún er bæjar- listamaður Hafnarfjarðar. „Ég vona að tónleikarnir geti orðið að stórhátíð í Hafnarfirði. Við byrj- um í Víðisstaðakirkju en sjáum svo hvert þetta leiðir.“ Áætlað er að tónleikarnir standi yfir í um tvo tíma með hléi og segir Elín Ósk miðaverði stillt í hóf til að sem flestir geti komið. Forsala aðgöngumiða fer fram í Eymunds- son í Kringlunni og í Eymundsson Hafnarfirði. Tónleikarnir hefjast klukkan fimm á sunnudag og verð- ur einnig hægt að kaupa miða við innganginn. vera@frettabladid.is Stórhátíð með Elínu Ósk Söngdívan Elín Ósk Óskarsdóttir stendur fyrir jólatónleikum í Víðistaðakirkju á laugardag. Þar verður hún jólakúlan í miðjunni umkringd öðrum listamönnum. Elín vonar að þetta verði árlegur viðburður. Elín Ósk verður miðpunktur tónleikanna en hún heldur að auki utan um alla framkvæmd þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GULL-ÚRIÐ • MJÓDDINNI Álfabakka 16 • sími 587 4100 Axel Eiríksson úrsmíðameistari Fallegt skart Gull – Silfur – Stál Silfurskartgripir með lituðum sirkonum. Grænn – Hvítur – Fjólublár – Bleikur Bæjarlind 6 - Eddufelli 2 Sími 554-7030 Sími 557-1730 www.rita.is Glæsilegur jólafatnaður - Munið gjafakortin - Nýtt - Nýtt - Nýtt Vorum að taka upp nýja sendingu af prjónuðum hettu- trefl um og hringtrefl um. Verð frá kr. 2500. Mikið úrval og margir litir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.