Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 58
42 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI Rafn Andri Haraldsson, leikmaður Þróttar, er samnings- laus og hefur verið undir smásjá nokkurra liða í Pepsi-deildinni. Hann er meðal annars sterk- lega orðaður við bikarmeistara Breiðabliks. „Ég hef alveg áhuga á að spila með Breiðablik en það er samt alveg óljóst hvað ég geri. Ég hef spjallað við Blikana og önnur lið,“ segir Rafn Andri sem æfir með Þrótturum þó svo að hann sé samningslaus. Hann ætlar þó ekki að leika með þeim í 1. deild- inni næsta sumar. „Ég stefni á að spila með liði í efstu deild. Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera en fer von- andi að klára það fljótlega. Það er svolítið pirrandi að vera í ein- hverri óvissu,“ segir Rafn Andri Haraldsson sem fór til reynslu hjá Vejle í Danmörku en fékk ekki samning. - hbg Rafn Andri Haraldsson Þróttari er samningslaus: Ætlar að spila í efstu deild næsta sumar 3.990kr.Verð frá Kraftar í kögglum Bolir 3.490kr.Verð frá Stuttbuxur 2.490kr.Verð frá Sippubönd 19.990kr.Verð frá Hlaupaskór HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL Maccabi Haifa - Bordeaux 0-1 0-1 Jussie (13.) Juventus - Bayern München 1-4 1-0 David Trezeguet (19.), 1-1 Hans-Jörg Butt, víti (30.), 1-2 Ivica Olic (52.), 1-3 Mario Gomez (83.), 1-4 Anatoli Tymoschuk (92.) STAÐAN Bordeaux 6 5 1 0 9-2 16 Bayern 6 3 1 2 9-5 10 Juventus 6 2 2 2 4-7 8 Maccabi Haifa 6 0 0 6 0-8 0 B-RIÐILL Wolfsburg - Manchester United 1-3 0-1 Michael Owen (44.), 1-1 Edin Dzeko (56.), 1-2 Michael Owen (83.), 1-4 Michael Owen (91.) Besiktas - CSKA Moskva 1-2 0-1 Milos Krasic (41.), 1-1 Bobo (86.), 1-2 Evgeni Aldonin (90.). STAÐAN Man. United 6 4 1 1 10-6 13 CSKA Moskva 6 3 1 2 10-10 10 Wolfsburg 6 2 1 3 9-8 7 Besiktas 6 1 1 4 3-8 4 C-RIÐILL Marseille - Real Madrid 1-3 0-1 Cristiano Ronaldo (5.), 1-1 Lucho Gonzalez (11.), 1-2 Raul Albiol (60.), 1-3 C. Ronaldo (80.). Zürich - AC Milan 1-1 1-0 Milan Gajic (29.), 1-1 Ronaldinho (65.). STAÐAN Real Madrid 6 4 1 1 15-7 13 AC Milan 6 2 3 1 8-7 9 Marseille 6 2 1 3 10-10 7 Zürich 6 1 1 4 5-14 4 D-RIÐILL Atletico Madrid - FC Porto 0-3 0-1 Alves (2.), 0-2 Falcao (14.), 0-3 Hulk (76.). Chelsea - APOEL Nicosia 2-2 0-1 C. Charalambides (6.), 1-1 M. Essien (19.), 2-1 D. Drogba (26.), 2-2 N. Mirosavljevic (87.) STAÐAN Chelsea 6 4 2 0 11-4 14 Porto 6 4 0 2 8-3 12 APOEL 6 0 3 3 4-7 3 Atletico 6 0 3 3 3-12 3 Enska B-deildin Swansea - Plymouth 1-0 Kári Árnason lék allan leikinn fyrir Plymouth. Reading - Crystal Palace 2-4 Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru í byrjunarliði Reading. Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður og skoraði síðara mark Reading úr vítaspyrnu á 80. mínútu. Sænska úrvalsdeildin Sundsvall - Södertälje 82-81 Jakob Sigurðarson var stigahæstur hjá Sundsvall með 24 stig sem er á toppi deildarinnar. ÚRSLIT FÓTBOLTI James Beattie, leikmaður Stoke, var sagður hafa beðið stjór- ann sinn, Tony Pulis, afsökunar á hegðun sinni eftir leikinn gegn Arsenal um helgina. Pulis tjáði þá leikmönnum að það yrði æfing á mánu- dagsmorgninum. Beattie brást ókvæða við enda hafði hann skipulagt mikla jóla- gleði fyrir leikmenn liðsins í London. Var það með þeim for- merkjum að leikmenn fengju tvo daga til þess að jafna sig. Svo reiður varð Beattie að hann rauk í stjórann og þeir ku hafa skipst á höggum eftir því sem fram kom í enskum fjölmiðlum. Pulis gaf sig ekki og æfingin fór fram á mánudeginum. Enskir fjölmiðlar fullyrtu fyrst í gær að Beattie hefði beð- ist afsökunar en BBC greindi svo frá því að það væri rangt og að Beattie væri að íhuga fram- tíð sína hjá Stoke. Málið væri því alls ekki leyst. - hbg Enn um deilur Tony Pulis og James Beattie: Baðst Beattie afsökunar? JAMES BEATTIE Gaf stjóranum sínum einn á lúðurinn. AFP FÓTBOLTI Juventus varð í gær að bíta í það súra epli að komast ekki áfram í sextán liða úrslit Meist- aradeildar Evrópu eftir að liðið tapaði fyrir Bayern München á heimavelli, 4-1. Þeir þýsku voru hreint frábærir í leiknum frá fyrstu mínútu og létu það ekki á sig fá að þeir lentu undir snemma í leiknum. Ivica Olic hafði reyndar átt skalla í stöng fyrir Bayern en á átjándu mínútu komst Juventus yfir með marki David Trezeguet. Vörn Bayern svaf þá á verðin- um og missti boltann til Claudio Marchisio, sem gaf boltann um leið inn í teig. Þar var Trezeguet mættur og skoraði með viðstöðu- lausu skoti. Þar með voru Ítalirn- ir komnir í kjörstöðu enda höfðu þeir eins stigs forystu á Bayern fyrir leikinn. Bayern náði þó að svara fyrir sig á 30. mínútu. Martin Caceres braut þá á Olic í vítateignum og vítaspyrna dæmd. Markvörður- inn margreyndi Hans-Jörg Butt skoraði af mikilli yfirvegun og öryggi. Þeir þýsku fengu svo tvö færi í kjölfarið til að komast yfir en það tókst þeim þó ekki að nýta. Stað- an var því enn jöfn í hálfleik, þó að þeir þýsku hafi verið betri í leiknum. En þeir löguðu það snemma í síðari hálfleik. Daniel van Buyten kom skalla að marki eftir fyrirgjöf sem Gianluigi Buffon varði. Olic náði hins vegar frákastinu og skoraði í autt markið. Eftir þetta var aldrei spurn- ing hvoru megin sigurinn myndi lenda. Þeir Mario Gomez og Ana- toli Tymoschuk bættu við tveim- ur mörkum á síðustu tíu mínútum leiksins og gerðu þar með út um leikinn. Einnig var mikil spenna í C- riðli. Real Madrid tryggði sér efsta sæti riðilsins með 3-1 sigri á Marseille í Frakklandi. Litlu mátti muna fyrir Madrídinga. Cristiano Ronaldo kom liðinu yfir með glæsi- legu marki beint úr aukaspyrnu af löngu færi á fimmtu mínútu. Frakkarnir voru þó einungis sex mínútur að jafna metin. Argentínu- maðurinn Lucho Gonzalez var þar að verki með skoti úr vítateig eftir misheppnaða hreinsun frá marki Real. Brandao náði reyndar að koma boltanum í netið skömmu síðar fyrir þá frönsku en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Í seinni hálfleik kom Raul Albiol Madrídingum aftur yfir með skoti úr vítateig en aðeins fáeinum mín- útum síðar fengu heimamenn tækifæri að jafna. Iker Casillas gerði sig sekan um slæm mis- tök er hann braut á fyrirliðanum Mamadou Niang innan vítateigs. Lucho tók vítið en skaut í slána. Frökkunum var refsað fyrir að klúðra vítinu um tíu mínútum fyrir leikslok. Lassana Diarra gaf þá sendingu inn fyrir vörn Marseille á Cristiano Ronaldo. Markvörður Marseille kom út úr markinu en í stað þess að ná til boltans tæklaði hann eigin varn- armann. Ronaldo þurfti síðan ekki að gera annað en að renna knettin- um í autt markið. Úrslitin þýddu að AC Milan mátti tapa sínum leik gegn FC Zürich í Sviss. Þeir ítölsku lentu reyndar í slæmum málum þar. Serbinn Milan Gajic kom Zürich nefnilega yfir með föstu skoti úr aukaspyrnu undir lok hálfleiks- ins. Ronaldinho náði svo að jafna metin fyrir Milan með marki í síð- ari hálfleik og gulltryggði þar með sæti liðsins í sextán liða úrslitun- um. Manchester United tryggði sér efsta sætið í sínum riðli með 3-1 sigri á Wolfsburg í Þýskalandi. Michael Owen skoraði öll mörk United; fyrst með skalla eftir fyrirgjöf, þá með skoti af stuttu færi eftir laglegan undirbúning Gabriel Obertan og svo eftir að hann slapp einn inn fyrir vörn Þjóðverjanna eftir skyndisókn United. CSKA Moskva fylgir United úr B-riðli eftir góðan 2-1 sigur á Besiktas í Tyrklandi. eirikur@frettabladid.is Bæjarar frábærir í Tórínó Bayern München tryggði sig áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu með stæl er liðið vann 4-1 útisigur á Juventus í gær. Real Madrid, AC Milan og CSKA Moskva komust einnig áfram. Michael Owen skoraði þrennu fyrir Man. United. FAGNAÐ Í LEIKSLOK Leikmenn Bayern fagna sætum sigri á Juventus á Ítalíu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÓTBOLTI Tveir leikmenn CSKA Moskvu hafa verið settir í tíma- bundið keppnisbann eftir að þeir féllu á lyfjaprófi sem þeir tóku eftir leik liðsins gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í síðasta mánuði. Þetta eru varnar- mennirnir Aleksei Berezutski og Sergei Ignashevich. Þeir spiluðu ekki með liðinu gegn Besiktas í Meistaradeildinni í gær. Forráðamenn CSKA sögðu leik- mennina saklausa og að skrif- finnskuklúðri væri um að kenna. - esá Féllu á lyfjaprófi: Leikmenn CSKA í bann HANDBOLTI Einn leikur fór fram í N1-deild kvenna í gærkvöldi. FH vann góðan sigur á Fylki á heimavelli og náði þar með fjög- urra stiga forskoti á Árbæinga í deildinni. FH er með tíu stig í fimmta sæti en Fylkir í því sjötta með sex. FH vann leikinn með sjö marka mun, 32-25, en staðan í hálfleik var 18-13, FH í vil. Þær Ragnhildur Rósa Guð- mundsdóttir og Gunnur Sveins- dóttir skoruðu níu mörk hvor fyrir FH og Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir varði 25 skot fyrir liðið í markinu. Hjá Fylki var Sunna Jónsdóttir markahæst með sjö mörk. Sunna María Einarsdóttir kom næst með fimm. Guðrún Ósk Maríasdóttir átti stórleik í markinu og varði 32 skot en það dugði þó ekki til. - esá N1-deild kvenna í gær: FH vann Fylki SKORAÐI SJÖ Sunna Jónsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Fylki í gær en það dugði ekki til. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.