Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 28
 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR Jólaskraut Tinnu Kristjánsdóttir er óvenjulegt en afar fagurt. Hún föndrar það úr hinum ýmsu af- göngum sem hún hefur sankað að sér í gegnum tíðina. Tinna Kristjánsdóttir byrjaði að föndra jólaskraut fyrir mörgum árum. „Í upphafi voru þetta gjaf- ir til þeirra sem mér þykir vænt um,“ segir hún en síðan þróað- ist hugmyndin og hún fór að selja skrautið. Nú hefur hún setið við frá lokum október og föndrað fag- urt skraut á heimili Íslendinga. „Hugmyndirnar að skrautinu koma alls staðar að og þróast oft út frá hráefninu sem ég nota,“ segir Tinna sem notar ótrúlegustu hluti í skrautið sitt. „Sumt eru hlutir sem ég á sjálf, hlutir sem ég hef passað vel upp á eins og sérstök nammibréf með myndum. Þá nota ég gömul leggingabönd frá mömmu minni sem er með fyrirtæki sem býr til lampaskerma og böndin eru örugglega frá þriðja áratugn- um,“ segir hún. Hún segist þekkt fyrir söfnunaráráttu. „Ég er mjög oft spurð hvað ég ætli eigin lega að gera við allt þetta drasl. Mér finnst þetta vera svo svívirðileg spurning og henni er í raun svarað í því sem ég bý til,“ segir hún glaðlega. Hverju jólaskrauti fylgir síðan eitt orð sem minnir á jólin. „Eitt kvöldið sátu tvær mjög kærar vin- konur með mér og við upphugsuð- um fjöldamörg orð sem tengd eru jólum. Þetta eru orð á borð við kan- ill, vísnasöngur, kerti og spil og viðlíka,“ segir Tinna og finnst til- valið að fólk gefi jólaskrautið ein- hverjum sem því þyki vænt um. Jólaskraut Tinnu fæst í verslun- inni Heimili og hugmyndir á Suður- landsbraut, í gamla Fálkahúsinu. - sg Gjöf fyrir kæra vini Tinna notar ýmsa hluti í skrautið sem hún hefur safnað að sér. Þessi sérstæða jólakúla sómir sér ein og sér eða sem skraut á jólatré. Unglingar eru sennilega van- metnasti aldurshópurinn en oftast sá sem er frumlegastur og hugmyndaríkastur. Það sannast til dæmis í enn einu verkefninu sem Frístundamiðstöð- in Kampur stendur nú fyrir en hún er rekin af Íþrótta- og tómstunda- ráði Reykjavíkur. „Frístunda- miðstöðin Kampur rekur þrjár félagsmiðstöðvar, Punktur Is í Hlíðaskóla, 100og1 í Austurbæj- arskóla og svo 105 í Háteigsskóla. Nú fer próftímabil í grunnskólun- um í hönd svo við leggjum áherslu á hafa það rólegt og huggulegt,“ segir Hrefna Guðmundsdóttir, verkefnastjórnastjóri í Kampi. „Fyrir jólin höfum við komið upp fjórum smiðjum, sem fara hring- inn á milli félagsmiðstöðvanna, Í einni smiðjunni þrykkjum við á boli, í annarri þrykkjum við á bolla, í þeirri þriðju búum við til brjóstsykur og í síðustu smiðj- unni er skartgripagerð.“ Hún segir að mikil stemning hafi verið í brjóstsykursgerðinni í 105. „Hann var ekki beint hefðbundinn brjóstsykurinn sem kom út úr þeirri sykursmiðju,“ segir hún og hlær. „Það var alls kyns brjóst- sykur framleiddur, allt frá hjört- um og til hnullunga.“ Hrefna hefur unnið með ung- mennum í nær tvo áratugi og segir þau í raun ekkert hafa breyst. „Þau eru eins og annað fólk en ef eitt- hvað er eru unglingar frumlegri og skemmtilegri en annað fólk, þeir eru að minnsta kosti mjög til- búnir að kynnast nýjum hlutum með opnum huga og upplifa eitt- hvað nýtt.“ Hún segir ungling- ana marga vera komna í jólaskap og vera almennt káta og hressa á aðventunni eins og má á heima- síðunni, www.kambur.is.“ Unglingar búa til persónulegar gjafir Vandað til verka. Hrefna Guðmundsdóttir fylgist ánægð með föndri drengjanna í Kampi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.