Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 18
18 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL: Börn og tölvur
FRÉTTAVIÐTAL
SIGRÍÐUR BJÖRG TÓMASDÓTTIR
sigridur@frettabladid.is
Börn lifa hluta af lífi sínum í net-
heimum og foreldrar þurfa að vera
duglegir að fylgjast með, segir
Janice Richardson, sérfræðingur í
öryggi hjá Evrópusambandinu.
„Foreldrar geta aldrei verið alveg með á nót-
unum í nýjustu tækni. Börn og unglingar
nota tækni öðruvísi en búist er við, þannig
að uppeldi foreldra og eftirlit með tölvu-
notkun barna snýst ekki um tækni, heldur
gott uppeldi,“ segir Janice Richardson, sem
stýrir verki þeirra þjóða er starfa að öryggis-
áætlun Evrópusambandsins. Hún var stödd
hér á landi á ráðstefnu INSAFE sem haldin
var hér á landi á dögunum.
INSAFE er verk þeirra þjóða er starfa
að öryggisáætlun Evrópusambandsins og
reka öryggismiðstöðvar undir þeirri áætl-
un. INSAFE hefur það hlutverk að stuðla að
ábyrgri og ánægjulegri notkun netsins og
annarra nýmiðla meðal ungs fólks en Evr-
ópusambandið kom verkefninu á laggirnar
árið 2004.
„Við verðum að kenna börnum að haga sér
kurteislega á netinu, þau virðast oft halda að
það sé í lagi að segja hvað sem er á netinu,
vegna þess að þau sjá ekki viðbrögð þess sem
er á hinum endanum. Þau halda að ummælin
særi ekki sem er ekki rétt. Fullorðnir gera
oft ráð fyrir að börn skilji afleiðingar gjörða
sinna eins og þeir gera, en við eigum ekki að
gera ráð fyrir því,“ segir Janice sem segir
einelti á netinu vissulega eitt þeirra vanda-
mála sem takast þurfi á við. Foreldrar leiki
þar lykilhlutverk, rétt eins og í öðru er lýtur
að uppeldi barna.
Hún segir að foreldrar eigi ekki að hika
við að setja reglur um notkun barna, rétt
eins og þeir setji reglur um útivistartíma
barna og fylgist með því hverjum börnin
verja tíma sínum með á daginn. „Þessi þörf
er til staðar og verður bara meiri með hverj-
um deginum sem líður. Það eru allir á netinu
og tími yngstu krakkana, á aldrinum fjög-
urra til níu ára, á netinu verður til dæmis
alltaf meiri og meiri.“
Foreldrar sitji með krökkunum
Janice segir að mikilvægt sé að sitja við
hlið yngstu barnanna þegar þau eru í tölv-
unni. Allt upp að sjö ára aldri ættu foreldr-
ar að vera með þeim þegar þau eru tengd.
„Við kennum börnum ekki bara einu sinni
hvernig á að fara yfir götu og hleypum þeim
svo einum eftir það, við fylgjum þeim aftur
og aftur, sama verðum við að gera þegar
netið á í hlut.“
Hún bendir á að foreldrum þyki almennt
frekar auðvelt að setja reglur um hversu
lengi börn mega horfa á sjónvarp. Óöryggi
foreldra gagnvart tækninýjungum virðist
hins vegar verða til þess að foreldrar eiga
erfiðara með að setja reglur um tölvunotk-
un en sjónvarpsáhorf.
Fyrir utan reglur sem snúast um tíma-
lengd við tölvuna segir Janice mikilvægt að
foreldrar viti hvað krakkarnir eru að gera
á netinu. „Rétt eins
og foreldrar spyrja
krakkana sína
hvern þeir eru að
fara að hitta þegar
þeir fara út eiga
þeir að spyrja börn-
in hvern þau eru að
hitta og ræða við
í netheimum. Þau
þurfa að gera sér
grein fyrir að net-
heimar eru hluti af
veruleika krakk-
anna. Foreldrar
eiga ekki að vera feimnir við að setja regl-
ur um þennan veruleika, því þetta snýst
ekki um tækni heldur um lífið,“ segir Jan-
ice, sem bendir á að það sé ómögulegt að
vita það fyrir hvernig börn nota tækni, far-
símar séu gott dæmi. Þeir hafi verið hann-
aðir til símtala, en börn og unglingar noti
þá aðallega til að senda SMS, taka myndir
og fleira sem upphaflega hafi ekki verið
megin tilgangurinn.
Verða að virða einkalíf
Janice segir mikilvægt fyrir foreldra að
ræða við börnin sín um notkun. Hún telur
að þurfi að innræta krökkum mjög ein-
dregið hvað felst í einkalífi og tjáningar-
frelsi. Tjáningarfrelsi ljúki þegar farið er
að móðga og segja slæma hluti um annað
fólk. Þau verði líka að skilja hvað tilheyrir
einkalífi. Þar undir geti fallið partímyndir
af fólki svo dæmi sé tekið. Mikilvægt sé
að hugsa um afleiðingarnar áður en ýtt sé
á takka og myndir settar á netið, þar sem
milljónir geti notað þær, myndirnar verði
nefnilega ekki aftur teknar.
Margir hafa áhyggjur af því að börn og
unglingar lendi í samskiptum við vafa-
sama einstaklinga á netinu og segir Janice
það skiljanlegt. Ef börn skilji að sumt til-
heyri þeirra einkalífi, þá minnki líkurnar
á samskiptum við vafasama einstaklinga,
þau skilji þá að ekki á að láta ekki ókunn-
uga fá símanúmer og svo framvegis. Jan-
ice segir mikilvægt að skólar gefi heldur
ekki upp neitt um nemendur sína á netinu,
svo að óprúttnir einstaklingar geti ekki náð
til þeirra.
Eins og fram kemur í þessu viðtali telur
Janice foreldra gegna lykilhlutverki í að
stuðla að góðri hegðum barna á netinu, til
þess að komið verði í veg fyrir einelti á net-
inu og aðra slæma hegðun. Hún segir skól-
ana auðvitað mjög mikilvæga líka. Kennar-
ar séu hins vegar oft í erfiðri aðstöðu til að
kenna krökkum að haga sér rétt í netheim-
um vegna þess að aðgengi nemenda að net-
inu í skólum sé takmarkað. Það sé miður því
að þegnar í nútímasamfélagi þurfi að vera
læsir á svo margt og skólinn væri kjörinn
vettvangur til að kenna þetta alhliða læsi.
„Við þurfum svo marga hæfileika í
nútímaheiminum. Við þurfum hefðbundna
lestrarkunnáttu meira en nokkru sinni
fyrr, við þurfum að vera læs á hið stafræna
umhverfi, við þurfum að vera læs á fjöl-
miðla, vera gagnrýnin á þá, vita hvað eru
auglýsingar og hvað ekki. Við þurfum að
vera læs á umhverfi okkar, við þurfum að
vera læs á menningu okkar og annarra,“
segir Janice, sem leggur áherslu á að fullt
læsi í nútímasamfélagi innifeli alla þessa
hæfileika í sér.
Börn þurfa leiðsögn í netsamskiptum
JANICE RICHARDSON
SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni – er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og
unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusam-
bandsins um öruggari netnotkun, og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli
– landssamtök foreldra, sem sjá um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu
leyti fyrir Íslands hönd.
Á heimasíðu SAFT, www.saft.is, er að finna heilræði fyrir foreldra og leiðbeiningar um
örugga netnotkun. Þar má finna netorðin fimm sem hljóða svo:
1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert.
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig.
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er.
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf.
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu.
ÖRUGG NETNOTKUN
NAUÐSYNLEGT AÐ FYLGJAST MEÐ Foreldrar verða að vera duglegir að fylgjast með netnotkun barna
sinna. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES