Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 30
9. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR2
Stofan hennar Bjarkar Berg-
mann, baðvarðar í íþróttahúsi
Kársnesskóla, er skreytt á
einstakan hátt. Allt sem hangir
á jólatrénu hennar er handgert
en mesta athygli vekur þó
snjóhvít, reisuleg kirkja úr ótal
sykurmolum.
„Þegar sykurkirkjan er komin
upp á borð finnst mér jólin vera
að koma,“ segir Björk brosandi.
Hún segir kirkjuna orðna 25 ára
en óhætt er að segja að hún beri
aldurinn vel.
„Ég gerði hana ásamt krökkun-
um mínum og við gáfum móður
minni hana. En svo var mamma
farin að eldast og var orðin hrædd
um kirkjuna svo hún skilaði henni
aftur.“
Björk segir byggingarefnið vera
kantaða sykurmola eins og oft séu
á veitingahúsum. „Suma þurfti að
þjala svo að þeir pössuðu, það var
svolítil handavinna í þessu. Svo
notuðum við UHU-lím og það er
búið að standa sig vel. Krossinn er
þrisvar búinn að brotna af en það
er bara af því að illa fór um hann
í geymslu. Plastið í gluggunum er
líka aðeins farið að springa en ekki
er auðvelt að laga það og ég leyfi
því bara að vera svona.“
Fínlegar, innrammaðar út-
saumsmyndir í ýmsu formi fara
vel á hvíta járnjólatrénu hennar
Bjarkar. „Ég var alveg á fullu að
sauma þetta fyrir nokkrum árum,“
segir hún brosandi.
Spurð hvort hún byrji snemma
að skreyta svarar hún: „Ég gerði
það alltaf. Var yfirleitt búin að öllu
fyrir 1. desember. En nú bý ég ein
í frekar litlu plássi og stemningin
hefur aðeins breyst.“ - gun
Sykurkirkjan kemur með
hátíðleikann í húsið
Kirkjan var gerð fyrir 25 árum og hið sterka UHU-lím hefur staðist vel tímans tönn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mynd í rauðum ramma rímar vel við jóla-
pokann.
Þau eru mörg útsaumssporin
sem eftir Björk liggja.
Jólaleg mynd með klóspori og kross-
saum.
Jólasokkarnir punta upp á plássið.
Sveinki á sleðanum.
Við getum enn útvegað allar vestfi rsku þjóðsögurnar í setti.
Það eru rúmlega 1100 sögur í 11 bókum.
Verð 10.500,- kr. Sendingargjald með Íslandspósti innifalið.
Einnig er hægt að fá stakar bækur til að fylla inn í.
Verð 1.200,- kr. Sendingargjald innifalið.
Sendið okkur tölvupóst, jons@snerpa.is eða hringið.
Orðsending til Vestfirðinga
og annarra sem áhuga hafa á vestfi rskum húmor
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
● fréttablaðið ● leikur í höndum