Fréttablaðið - 09.12.2009, Blaðsíða 32
9. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● leikur í höndum
Miserfitt getur verið að skipta
um kerti í bílum en yfirleitt
er það létt og löðurmannlegt
verk, ekki mikið flóknara en að
skipta um ljósaperu í nátt-
lampanum í svefnherberginu.
Fari bíllinn illa í gang í köldu
og röku veðri getur verið gott
að skipta um kertin og hreinsa
hvítt hrúður innan úr kveikju-
lokinu í leiðinni. Hrúðrið er ein-
faldlega pússað með skrúfjárn-
inu sem þarf til að losa kveikju-
lokin, skrapað innan úr lokunum
og blásið burt. Kveikjuhamarinn
er pússaður með sandpappír. Svo
skal úða yfir lokið með rakavara
sem fæst á bensínstöðvum.
Fyrst þarf auðvitað að vita hvar
kveikjulokin og kertin eru en þær
upplýsingar er að finna í handbók
bílsins. Í undantekningar tilvikum
þarf að skrúfa úr alla vélina til að
komast að kertunum en þá þarf
fagmaður að koma að verkinu.
Best er að nota sérstakan
kertalykil til að ná kertunum úr
og skipta um þau öll fyrst maður
er farinn af stað í þessa aðgerð
yfirhöfuð. Svona er það gert: ekki
skipta um kertin þegar vélin er
heit, fjarlægið óhreinindi sem
geta verið niður með kertunum
áður en þau eru skrúfuð úr og
verið viss um að kertin sem sett
eru í séu nákvæmlega eins og þau
sem tekin voru úr. Þar geta smá-
atriði skipt sköpum. Best er að
athuga í handbók bílsins hvernig
kerti skuli kaupa, eða taka ein-
faldlega kerti úr og biðja um
annað eins á næsta sölustað.
Nýju kertin eru skrúfuð í,
kveikjulokunum smellt ofan á og
skrúfuð föst. Að þessu loknu ætti
bíllinn að hrökkva betur í gang
en ef hann gerir það ekki gætu
kertaþræðir og kveikjuhamar
verið lélegir.
Nánari upplýsingar um það
og kertaskiptinguna má finna á
heimasíðu N1 en þessi grein er
meðal annars byggð á upplýsing-
um þaðan.
- nrg
Ný kerti í kaggann
Loks eru nýju kertin skrúfuð í, kveikju-
lokunum smellt ofan á og skrúfuð föst.
Best er að athuga í handbók bílsins hvernig kerti á að kaupa eða taka eitt stykki úr
bifreiðinni og biðja um eins á næsta sölustað.
Fari bifreiðin illa í gang getur þurft að skipta um kerti. Einar Guðmundsson, hjá Nesdekk hjólbarðaverkstæði, sýndi okkur réttu
handtökin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hér sést kerti með kveikjulokinu á eins
og það blasir við manni undir vélarhlíf-
inni.
● HLUTIR SEM GÆTA ÞARF AÐ FYRIR
LANGFERÐIR Oft er betur heima setið en af
stað farið keyrandi í langferð um hávetur. Ef ferða-
hugurinn er knýjandi mikill eru þó nokkur atriði
sem hafa þarf í huga ef ske kynni að óhöpp hendi
á leiðinni.
Án varadekks sem virkar er langferðarbíllinn ekk-
ert. Passa þarf að nægur loftþrýstingur sé í dekkinu
og hvort hægt sé um vik að losa það, sé það fest
niður á einhvern hátt. Ekki er síður mikilvægt að
kanna hvort hægt sé að losa dekkin sem þegar eru
undir bílnum, en það getur reynst erfitt ef hjólin
hafa verið ofhert á verkstæði.
Þá er nauðsynlegt að gæta þess að felgulykill,
öryggisþríhyrningur, vasaljós og sjúkrakassi séu
með í för. Annars getur farið illa.
Það getur verið tómt vesen að skipta um dekk, sérstaklega á
veturna á Íslandi.