Fréttablaðið - 09.12.2009, Qupperneq 48
32 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Bókmenntir ★★★
Ekkert fokking klúður
Jens Lapidus
Þýðandi Jón Daníelsson
Eintómar reddingar
Í annað sinn kemur Jens Lapidus fram með Stokk-
hólmsreyfara af svörtustu gerð, en fyrsta saga hans,
Fundið fé, kom út í hörðu bandi fyrir ári og gott ef
ekki í kilju er líða tók á árið. Hann er kiljukall þessi
Jens, smáfríður og snyrtilegur lögfræðingur frá
Stokkhólmi sem hefur gert það í tvígang að smíða
afþreyingarsögu með góðum vilja sem segir af harð-
skeyttum glæpahringjum innfluttra í stórborgum og
úthverfum sósíaldemókratíunnar og hvernig menn
utanveltu af ýmsu slekti festast í netum þeirra og eru
tilneyddir til illverka. Enda vitnar Jens til Chandlers í
mottói sögunnar.
Ekkert fokking klúður byggir á svipaðri fléttugerð
og fyrri bókin: þrír menn dragast inní net, hver þeirra með sín erfiðu mál,
bæði í einkahögum sínum og starfi, allir eru þeir bundnir af einhverskonar
heiðri, siðalögmálum sem þeir hver fyrir sig brjóta og eru þar með komnir
út fyrir lög og rétt, bæði samfélagsins nær og fjær. Sagan greinir svo frá
hvernig leiðir þeirra skarast uns endar í háu risi og örstuttum eftirleik sem
dregur móral sögunnar í miðju þeytunnar sem sagan öll er. Þetta eru miklar
aksjón-bókmenntir og lýsa nær einvörðungu sýn karlmanna, missýn þeirra á
sjálfa sig og alla í kringum þá.
Jens er flinkur sögumaður, hann byggir spennuna upp af miklum gáfum,
samtímalýsing hans á Stokkhólmi og nærliggjandi úthverfum kann mörgum
að þykja að stingi í stúf við kunnuglegustu mynd af hinni stilltu sósíal-
demókratíu en lesi menn sænsku pressuna að staðaldri ætti fátt hér að
koma á óvart: Svíar eru í miklum vandræðum.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða. Hörkukrimmi sænskur fyrir karla
Bókmenntir ★★
Hetjur
Kristín Steinsdóttir
Þvælingur í Þrándheimi
Vetrardvöl íslensks stráks í Þrándheimi er viðfangsefni
Kristínar Steinsdóttur í sögunni Hetjur sem komin er
út á forlagi Vöku Helgafells. Hún er merkt að aftan
10+ sem merkir væntanlega að bæði höfundur og
útgefandi hafi tiltekinn aldurshóp í huga. Kristín hefur
verið afkastamikill höfundur á tæplega þrjátíu ára
ferli síðan Fransbrauð með sultu kom út 1987 og
hefur sent frá sér bækur nær ár hvert, flestar stílaðar
á krakka, bæði stráka og stelpur og af fleiri aldurs-
skeiði en hér er sótt á. Sagan er með þægilegu letri,
ágætlega byggð fyrir ungan lesanda og Kristín leitar
víða fanga í efni sögunnar. Þórhallur er fluttur til
Þrándheims með foreldrum og systur en þau hjónin
verða þar við störf. Systir hans aðlagast fljótt í skóla
en bróður hennar reynist torvelt að komast í félagsskap, sækir að honum
óyndi en svo fer um síðir að hann nær fótfestu.
Margt er í gangi í sögunni: saga íslenskra manna í Þrándheimi miðalda
kemur við sögu, og þeirra konunga sem þeir áttu í skiptum við, Hér er tæpt
á aðstöðu barna úr fjölskyldum innflytjenda, bæði þeirra sem komnir eru
norðan úr Finnmörku og hinna sem komnir eru sunnan að. Þórhallur fer
að sjá heiminn í nýju ljósi og er drengurinn tilneyddur að taka siðferðilega
afstöðu til heimsins og þess sem þar fer miður. Sá partur verksins er bæri-
lega samtvinnaður við hversdagslega önn drengsins.
Raunar er það svo að lesanda finnst hér tekist á við of mörg viðfangs-
efni og verður sagan því dálitíð rásandi, hangir ekki nægilega saman sem
heild, enda líklegt að hún verði lesin í slumpum og brotin raðist þá saman.
Spennandi er hún ekki þótt Kristín láti strák sjá svipi frá fyrri tíð en fjöl-
skyldulíf hans og hæg myndun tengsla eru ágætlega unnin.
Það er mikill vandi að skrifa fyrir börn og Kristín er vafalítið búin að velta
hlutverki sögumanns lengi fyrir sér í fyrri skrifum sínum. Þessum lesanda
þótti sagan tolla illa saman þótt gæska fylgi í boðun sögunnar.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstað: Brokkgeng saga frá vönum sagnaþul
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 9. desember 2009
➜ Tónleikar
20.00 Jólatónleikarnir Hátíð í bæ
2009 fara fram í Iðu, íþróttahúsi FSU á
Selfossi. Meðal þeirra sem koma fram
eru Páll Óskar Hjálmtýsson og Monica
Abendroth, Egill Ólafsson,Sigrún Hjálm-
týsdóttir og Karlakór Selfoss.
20.00 Aðventutónleikar Domus Vox,
kóra Margrétar
J. Pálmadóttur,
fara fram í Hall-
grímskirkju við
Skólavörðuholt.
Fram koma 180
söngkonur á
öllum aldri.
20.00 Lands-
virkjunarkórinn
heldur tónleika
í Grensáskirkju
við Háaleitis-
braut. Ein-
söngur/kórstjóri er Keith Reed. Enginn
aðgangseyrir.
20.00 Kammerkórinn Ísold heldur tón-
leika í Akureyrarkirkju við Eyrarlands-
veg þar sem á efnisskránni verða þekkt
og hátíðlega aðventu- og jólalög.
21.00 Ragnheiður Gröndal og hljóm-
sveit verða með tónleika í sal Tónlistar-
skólans á Akranesi við Dalbraut 1.
21.00 Hljómsveitirnar Momentum og
Muck verða með tónleika í T.Þ.M (Tón-
listarþróunarmiðstöðinni) við Hólma-
slóð 2.
➜ Sýningar
Í Listasafni Reykjanesbæjar við Duus-
götu stendur yfir sýning á verkum sem
eru í eigu Landsbankans. Það eru 30
málverk frá tímabilinu 1900-1990 eftir
ýmsa helstu listamenn þjóðarinnar.
Opið virka daga kl. 11-17 og um helg-
ar kl. 13-17.
Þrándur Þórarinsson hefur opnað sýn-
inguna „Áfangar og önnur málverk“
að Hverfisgötu 18a (áður 101 gallerí).
Opið alla daga kl. 12-18.
Listakonan Yst sýnir kola- og rauðkrítar-
teikningar í verslun og veitingastofu
Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu.
Meðal annarra sýninga sem þar standa
yfir er sýningin „Ísland::kvikmyndir“
sem sýnir þróun kvikmyndagerðar á
Íslandi frá 1904-2008. Ókeypis er á
sýningar Þjóðmenningarhússins á mið-
vikudögum.
➜ Hláturjóga
12.10 Boðið verður upp á hláturjóga
með Ástu Valdimarsdóttur í Guðríðar-
kirkju í Grafarholti. Þessi viðburður er
í tengslum við hamingju-hádegi sem
kirkjan býður upp á alla miðvikudaga
í vetur. Enginn aðgangseyrir og allir
velkomnir.
➜ Leikrit
20.00 Pétur Eggerz flytur einleikinn
Aðventa sem byggður er á sögu Gunn-
ars Gunnarssonar. Sýningin fer fram í
Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Nánari upplýs-
ingar á www.gerduberg.is.
Upplýsingar um
viðburði sendist
á hvar@frettabla-
did.is.
Bókmenntir ★★
Færeyskur dansur
Huldar Breiðfjörð
Ári eftir hrun er sögumaður
kominn heim eftir mánaðarlanga
dvöl í Færeyjum. Hann er þar um
miðjan vetur, þvælist milli eyja,
sest upp á gistiheimilum, reynir
af fremsta megni að komast í
kynni við eyjarskeggja en dvel-
ur mestan partinn á herberginu
sínu, í göngutúrum um fámenn
stræti og situr inni á kaffihúsum
og börum.
Auglýsingagerðarmaður er
kominn í samfélag sem er honum
framandi, bara tungumálið eitt
verður til þess að hann er eins og
þorskur á þurru landi, fæstir sem
hann hittir skilja hvað rekur hann
þangað suður – á þessum árstíma.
Hann gerir því skóna að hann sé
þangað kominn til að finna fær-
eysku leiðina, eitthvert það stig
samfélags og framleiðslu
sem við villtumst af.
Huldar er næmur
höfundur um margt þó
að stílhugsun hans sé
býsna sjálfhverf og nái
skammt, hann er skyggn
á hið skoplega, jafnvel
það tragíska, hina hvers-
dagslegu dýrð í ásýnd
mannlífsins, en er hann
nógu hnýsinn? Kannski
of kurteis, kunnáttulaus
um að ná svo góðri hlust-
um, svo einskærum áhuga að efl-
ist þörf viðmælandans til að létta
á sér? Sá grunur sækir á lesand-
ann.
Ferðasaga hans vitnar raunar
mest um þann góða hug sem
Færeyingar bera til okkar, svo
lítið sem við látum með þá. Mann
þyrstir raunar í að hann komist
nær, leiti uppi þá sem gætu raun-
ar kennt honum meira og lengra í
minninu en þessi blöð vitna um.
Ferðasagan verður því von-
brigðafull og lesandi bíður
spenntur með sögu-
manni þar sem þrædd-
ir eru barir, stígar og
sund, að nú fari eitt-
hvað sögulegt að ger-
ast, jafnvel þótt sögu-
maðurinn ljúgi því upp.
En það gerist ekki.
Einhver orðaði það
svo að þetta gæti mögu-
lega verið besta bókin
um hrunið sem fælist
þá í því að ekkert gerð-
ist, ekkert breyttist, en
það er ekki rétt. Vísun sögunn-
ar til handa lesendum er sú að
við eigum að hverfa aftur í hið
fámenna þorp, rækta garðinn
okkar og læra að beita. En bæði
sögumaður og lesandi ljúka þess-
ari frásögn og snúa sér að raun-
veruleika sem er allt annað – sú
hugmynd að hér megi snúa öllu
hálfa öld aftur á bak er vitaskuld
firra.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Ferð án fyrirheits.
Flandrað um Færeyjar
JENS LAPIDUS
Fjölskylduhjálp Íslands
Neyðarkall
frá Fjölskylduhjálp Íslands
Hátt í 16000 einstaklingar eru nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem
minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á að-
stoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar.
Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti
haldið gleðileg jól.
Tekið er á móti matföngum að Eskihlíð 2-4
í Reykjavík þriðjudaga kl 9-13, miðviku-
daga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar
Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892
9603. Einnig er tekið á móti framlögum á
reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr.
101-26-66090, kt. 660903-2590. Netfang:
fjolskylduhjalp@simnet.is
w
w
w
.h
ir
zl
an
.i
s
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040
JUBEE
vönduð dönsk barnahúsgögn
umhverfisvottuð
ST
O
FA
5
3
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS