Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 6
6 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
RAFSTILLANLEG HJÓNARÚM
VERÐ FRÁ: 299 .900
50%–90% AFSLÁTTUR AF
SÆNGURFÖTUM, HEILSUKODDUM OG
HEILSUPÚÐUM. MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AF GEL / ETHANOL
ARINELDSTÆÐUM. MIKIÐ ÚRVAL!
HEILSUKO
DDAR
FYLGJA Ö
LLUM
RÚMUM
SOLO
ÚTSÖLUVERÐ: 49 .900
PARIS
ÚTSÖLUVERÐ: 69 .900
HAFÐU ÞAÐ HUGGULEGT UM JÓLIN
50%
AFSLÁTTUR50%
AFSLÁTTUR
FÉLAGSMÁL Hjálparstarf kirkj-
unnar fær endurgjaldslaus
afnot af Toyota Hiace-sendi-
bifreið næsta árið samkvæmt
samkomulagi við umboðið sem
gengið var frá á miðvikudag.
„Bifreiðin verður notuð til
almennra snúninga í fjölþættu
hjálparstarfi á vegum kirkjunn-
ar og kemur sér sérstaklega vel
nú fyrir jólin þegar mest er að
gera,“ segir í tilkynningu.
„Undirbúningur fyrir sam-
eiginlega jólaúthlutun Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur
og Reykjavíkurdeildar Rauða
kross Íslands er í fullum gangi.
Mörg fyrirtæki, samtök og
einstaklingar hafa lagt úthlut-
uninni lið og fjölmargir sjálf-
boðaliðar taka þátt,“ segir jafn-
framt í tilkynningunni.
- gar
Kirkjan semur við bílaumboð:
Fá frían Toyota
í hjálparstarfið
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður
Alþingis hefur fjallað um kvart-
anir Jóhanns Ágústs Hansen og
25 annarra, þar á meðal allra
þingmanna Hreyfingarinnar,
um að Steingrímur J. Sigfússon
hafi gerst brotlegur við reglur
um þrískiptingu valds.
Fólst það, að þeirra mati, í
aðkomu hans að Icesave-mál-
inu bæði sem ráðherra og þing-
maður.
Í stuttu máli benti umboðs-
maður kvartendum á stjórnar-
skrána þar sem gert er ráð fyrir
að ráðherrar séu jafnframt
þingmenn.
Að því búnu sagði hann utan
síns verksviðs að fjalla um
kvörtunina. - bþs
Umboðsmaður Alþingis:
Bendir Hreyf-
ingarfólki á
stjórnarskrána
DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í
gær dóm yfir Jafeti Ólafssyni,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
VBS fjárfestingarbanka, fyrir
trúnaðarbrot. Jafet var dæmdur til
að greiða eina milljón í sekt en hér-
aðsdómur hafði áður dæmt hann til
að greiða 250 þúsund krónur.
Jafeti var
gefið að sök að
rjúfa trúnað við
Geir Zoëga með
því að láta lög-
manninn Sigurð
G. Guðjónsson
hafa upptöku að
samtali sínu við
Geir. Geir hafði
þá nýlega ákveð-
ið að hætta við
að selja félagi Sigurðar hlut sinn í
Tryggingarmiðstöðinni, en Jafet
var milligöngumaður í kaupunum.
Sigurður taldi að yfirtökuskylda
hefði myndast og lét Jafet hann
hafa upptökuna því til stuðnings.
- sh
Hæstiréttur fjórfaldar sekt:
Milljón fyrir
trúnaðarbrot
JAFET ÓLAFSSON
ATVINNULEYSI „Ég sé engin sérstök
rök fyrir því að halda þessum
sjóði sérgreindum frá Atvinnu-
leysistryggingasjóði. Það er
eðlilegt að við séum með eitt
og sama kerfið fyrir alla lands-
menn,“ segir Árni Páll Árnason
félagsmálaráðherra, um Trygg-
ingasjóð sjálfstætt starfandi ein-
staklinga.
Sá sjóður var settur á fót 1997
og falið að halda sérstaklega utan
um atvinnuleysisbótarétt bænda,
smábátasjómanna og vörubíl-
stjóra.
Sjóðurinn greiddi 14 einstakl-
ingum 8,7 milljónir í bætur á
síðasta ári, eins og fram kom í
Fréttablaðinu á föstudag. Hann
er fjármagnaður af trygginga-
gjaldi stéttanna þriggja, sem nam
alls 15 milljónum króna á árinu
2008. Kostnaður við rekstur hans
nam 3,3 milljónum króna. „Þetta
er arfur frá gömlum tíma,“ segir
Árni Páll.
Félagsmálanefnd Alþingis
hefur nú til umfjöllunar frum-
varp frá Árna Páli um endur-
skoðun ýmissa ákvæða í atvinnu-
leysislöggjöfinni. „Ég hef þegar
beint því til nefndarinnar að
kanna þetta mál og hvort ekki sé
rétt að nota tækifærið og sam-
eina þennan sjóð Atvinnuleysis-
tryggingasjóði,“ segir Árni Páll.
„Ég hef talað fyrir því að hér sé
eitt kerfi fyrir alla.“
Tryggingasjóður sjálfstætt
starfandi einstaklinga starfar
í þremur deildum, einni fyrir
bændur, annarri fyrir smábáta-
sjómenn en þeirri þriðju fyrir
vörubifreiðastjóra. Þegar lög um
sjóðinn voru sett vorið 1997 kom
fram hjá nefnd sem samdi frum-
varpið að skoðaðir hefðu verið
möguleikar á að setja á laggirn-
ar einn sjóð fyrir alla sjálfstætt
starfandi einstaklinga en niður-
staða nefndarinnar hefði orðið sú
að stofna einungis sjóð fyrir þá
sjálfstætt starfandi einstaklinga
„sem tilheyra þeim samtökum
sem áttu fulltrúa í nefndinni“.
Á þeim tíma voru um 20.000
sjálfstætt starfandi einstakling-
ar í landinu; um 5.500 þeirra til-
heyrðu þeim hópum sem fengu
aðild að Tryggingasjóðnum. Við
álagningu skatta á þessu ári
greiddu 19.266 einstaklingar
tryggingagjald, samkvæmt upp-
lýsingum frá Ríkisskattstjóra.
Ekki fengust upplýsingar um
hve margir þeirra eru bændur,
smábátasjómenn og vörubifreiða-
stjórar. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins hefur smábátasjó-
mönnum og vörubifreiðastjór-
um, sem eru með rekstur á eigin
kennitölu og eiga rétt til bóta úr
sjóðnum, fækkað talsvert á síð-
ustu árum, eftir því sem hlutafé-
lögum hefur fjölgað.
peturg@frettabladid.is
Segir sjóðinn arf
frá gömlum tíma
Félagsmálaráðherra sér ekki rök fyrir tilvist Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi
einstaklinga, sem annast atvinnuleysisbótagreiðslur til bænda, smábátasjó-
manna og vörubílstjóra. „Arfur frá gömlum tíma,“ segir Árni Páll Árnason.
SJÁLFSTÆÐIR Sérstakt atvinnuleysistryggingakerfi hefur verið rekið fyrir smábátasjó-
menn, vörubílstjóra og bændur, sem eru með eigin rekstur. Sjóðurinn hefur verið
fjármagnaður af tryggingagjaldi þessara stétta.
FÉLAGSMÁL Jafnréttisráð hefur
sent frá sér ályktun þar sem varað
er við þeim hugmyndum sem fram
hafa komið um skerðingu fæð-
ingarorlofs. Þar segir að stytting
fæðingarorlofs um einn mánuð
muni bitna á öllum hlutaðeigandi,
konum, körlum og ekki síst börn-
um. Mest skerðist þó hlutur ein-
stæðra mæðra og barna þeirra í
þeim tilfellum þar sem faðir nýtir
ekki rétt sinn.
Ef boðaðar breytingar ná fram
að ganga er það alvarlegt bakslag
í jafnréttisbaráttunni, að mati
ráðsins. Jafnréttisráð skorar á
ríkisstjórnina að leita allra ann-
arra mögulegra leiða til að mæta
slæmri stöðu með þessum hætti.
- shá
Jafnréttisráð ályktar:
Skerðing mun
bitna á öllum
Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn
KAUPMANNAHÖFN, AP Sautján hundruð vísinda-
menn í Bretlandi sendu frá sér yfirlýsingu í
gær, þar sem þeir segjast sannfærðir um að
sterk vísindaleg rök séu fyrir því að hlýnun
jarðar sé af mannavöldum.
Þeir vilja þar með draga úr efasemdum um
vísindalegt gildi staðhæfinga um orsakir hlýn-
unar jarðarinnar. Yfirlýsingin kemur í beinu
framhaldi af þeim efasemdum sem kviknuðu
eftir að tölvuskeyti nokkurra breskra vísinda-
manna var lekið til fjölmiðla, en í þeim skeyt-
um kemur fram að vísindamennirnir hag-
ræddu niðurstöðum rannsókna sinna á efninu.
Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
í Kaupmannahöfn er enn verið að reyna að
ná samkomulagi um aðgerðir gegn hlýnun.
Meðal þess sem helst strandar á er fjárhagsað-
stoð til þróunarríkja, sem á að hjálpa þeim til
að leggja sitt af mörkum til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Auðkýfingurinn George Soros ávarpaði ráð-
stefnuna í gær og segir að þeir tíu milljarðar
dala, sem fyrirhugað er að auðugu ríkin leggi
hinum fátækari til næstu fjögur árin, dugi
engan veginn til þess að brúa bilið. „Ég held að
það sé að verða ljóst í samningaviðræðunum
að bilið á milli þróaðra ríkja og þróunarríkja í
þessu máli geti gert út af við ráðstefnuna.“ - gb
Sautján hundruð vísindamenn senda yfirlýsingu á loftslagsráðstefnuna:
Hlýnun jarðar er af manna völdum
GEORGE SOROS Segir loforð auðugu ríkjanna um
fjárhagsaðstoð ekki nægja. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN
Sækir þú jólatónleika?
Já 31%
Nei 69%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ættu alþingismenn að fá frí
milli jóla og nýárs?
Segðu skoðun þína á visir.is.