Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 8
8 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
REYKJAVÍK Litháíska verktakafyr-
irtækið Adakris hefur fengið 385
milljónir greiddar frá Reykjavík-
urborg á árinu, en Malbikunarstöð-
in Höfði, opinbert fyrirtæki, hefur
fengið næst mest, 263 milljónir.
Blaðið hefur fengið yfirlit frá
borginni yfir þau fimm fyrirtæki
sem mestar fjárhæðir hafa feng-
ið frá borginni á ári hverju síðustu
þrjú ár. Tölurnar eru lægri í ár en
árin á undan. Þannig fengu Heim-
ir og Þorgeir rúmar 568 milljón-
ir árið 2008 og Eykt 503 milljónir
árið 2007.
Ekki er mikið um nýframkvæmd-
ir hjá borginni þessa dagana og
verkefni Adakris, við Sæmund-
ar- og Norðlingaskóla, voru ákveð-
in fyrir banka-
hrun. Því má
ætla að tölur um
heildargreiðsl-
ur til verktaka á
næsta ári verði
enn lægri.
Þ ega r t i l -
kynnt var um að
litháískt fyrir-
tæki fengi þessi
tvö stóru verk
á krepputímum
vakti það nokkra umræðu. Rætt
var um að illt væri að láta erlenda
verka- og iðnaðarmenn hafa þessi
störf. Nær væri að láta innlend fyr-
irtæki sjá um þetta. Framkvæmda-
stjóri Samiðnar sagði borgina hafa
„ákveðið að flytja 120 ársverk í
byggingariðnaði úr landi“. Hann
efaðist um að Adakris færi eftir
íslenskum reglum.
En reyndin hefur verið sú eftir
gjaldeyrishrun að ódýrara er að
greiða íslensk laun en evrópsk. Um
92 prósent starfsmanna Adakris eru
Íslendingar og útlendingarnir hafa
verið búsettir á landinu í mörg ár, að
sögn Ágústs Snæbjörnssonar, sem á
helmingshlut í fyrirtækinu.
„Planið var að vera með okkar
eigin starfsmenn sem eru Litháar
flestir. Svo kom hrunið og eftir það
fannst okkur að pólitískt, siðferði-
lega og efnahagslega væri besta
lausnin að hafa Íslendinga í vinnu.
Við munum áfram hafa eins marga
Íslendinga og hægt er. Þetta er ekki
útlenskara en það,“ segir hann.
Ágúst tekur undir að það kunni
að hafa unnið gegn fyrirtækinu að
vera með erlendar rætur. Jafnvel
hafi verið talað um að endurskíra
fyrirtækið upp á íslensku.
Fyrirtækið fær enn ekki fyrir-
greiðslu í bönkum, „ekki einu sinni
fimm þúsund kall í yfirdrátt og
engar verktryggingar heldur,“ segir
Ágúst.
Adakris versli mikið við íslensk-
ar verslanir og heildsala en þurfi að
staðgreiða vörurnar.
Ágúst segist halda að Adakris sé
eina fyrirtækið á Íslandsmarkaði
með öll gæðavottorð og ISO-staðla
skráða.
Fyrir utan borgarverkefnin sér
Adakris um alla innanhússmíði í
nýbyggingu Háskólans í Reykjavík.
Fyrirtækið var stofnað 1965 sem
ríkisfyrirtæki í Litháen og einka-
vætt 1993. klemens@frettabladid.is
Adakris er orðinn stærsti
verktaki Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg hefur greitt fyrirtækinu Adakris 385 milljónir í ár, mest allra verktaka. Fyrirtækið er nýtt
á Íslandi og fær ekki fyrirgreiðslu í bönkum. Þarf oftar en ekki að staðgreiða vörur. Er að hálfu litháískt.
SÆMUNDARSKÓLI RÍS Skólinn er nefndur eftir Sæmundi fróða og á samkvæmt útboðslýsingu að vera 5.800 fermetar með
íþróttahúsi. Áætlaður kostnaður árið 2007 var 1,6 milljarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁGÚST ALFREÐ
SNÆBJÖRNSSONLOFTSLAGSMÁL Kertaljósavaka
verður haldin á Lækjartorgi
kl. 17.30 á morgun til að krefj-
ast þess að bindandi samkomu-
lag náist á loftlagsráðstefnunni í
Kaupmannahöfn, sem nú stendur
yfir.
Attac á Íslandi skipuleggur
vökuna í Reykjavík. Flutt verð-
ur ávarp og lesin skilaboð til
samningsaðila í Kaupmannahöfn.
Dúettinn Piknikk tekur lagið.
Á laugardag verða 2.000 kerta-
ljósavökur í sama skyni um allan
heim. Ein þeirra verður í Kaup-
mannahöfn. - pg
Loftslagsráðstefnan:
Kertaljósavaka
á Lækjartorgi
HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON Stingur upp
á nafni fyrir skaga.
LANDAFRÆÐI Sveitarstjórn Grýtu-
bakkahrepps í Eyjafirði ræddi á
fundi sínum á mánudag um nafn
á skagann milli Eyjafjarðar og
Skjálfanda.
„Hjörleifur Guttormsson hefur
unnið að því að hann kallist Flat-
eyjarskagi,“ segir í fundargerð
sveitarstjórnarinnar sem fór
yfir ýmis gögn varðandi nafn á
skagann á fundi sínum á Greni-
vík. Flatey er í Skjálfandaflóa.
Samþykkt var að fara fram á við
örnefnanefnd að nafnið Flateyj-
arskagi verði ekki staðfest fyrr
en fyrir liggi afstaða sameig-
inlegrar nefndar Grýtubakka-
hrepps og Þingeyjarsveitar um
nafngift skagans. - gar
Eyjafjörður og Skjálfandi:
Hjörleifur vill
Flateyjarskaga
SKATTUR Bindandi álit Ríkisskatt-
stjóra um skattalega meðferð
mála starfsmanna Kaupþings,
sem fengu fellda niður persónu-
lega ábyrgð af lánum vegna kaupa
á hlutabréfum í bankanum, mun
liggja fyrir á næsta ári.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri segir við Fréttablaðið
að ekki reyni á niðurstöðuna fyrr
en næsta ár, þegar gjöld verða
lögð á vegna 2009.
Stjórn Kaupþings ákvað í sept-
ember 2008 að takmarka ábyrgð á
viðskiptunum við verðmæti bréf-
anna sjálfra, eða annarra trygg-
inga sem voru lagðar fram við
kaupin í sumum tilvikum. - pg
Mál starfsmanna Kaupþings:
Álit skattstjóra
birt á næsta ári
1 Hvað heitir hönnuður
íslenska stólsins Bessa, sem not-
aður er á loftslagsráðstefnunni í
Kaupmannahöfn?
2 Hversu gamalt er pipar-
kökuhúsið sem prýðir stofuna í
Laxholti í Borgarfirði?
3 Hver er forsætisráðherra
Grikklands?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 90
VIÐSKIPTI Ummæli Magnúsar Þor-
steinssonar fyrir dómi í síðustu
viku hafa leitt til þess að Fjár-
málaeftirlitið hyggst rannsaka
það hvort stjórnendur Straums
Burðaráss hafi brotið lög um verð-
bréfaviðskipti þegar bankinn lán-
aði Magnúsi tæpan milljarð til að
kaupa hlut í Icelandic Group.
Straumur Burðarás lánaði fjár-
festingarfélagi Magnúsar 930
milljónir árið 2005 til að kaupa
fimm prósenta hlut í Icelandic
Group. Magnús skrifaði upp á
sjálfskuldarábyrgð vegna láns-
ins í fyrra. Hann varð gjaldþrota
í maí.
Aðalmeðferð í skuldamáli þrota-
bús Straums gegn Magnúsi fór
fram í Héraðsdómi Norðurlands
eystra í síðustu viku. Þar sagðist
Magnús hafa skrifað upp á ábyrgð-
ina af greiðasemi við Björgólf Thor
Björgólfsson, þáverandi eiganda
Straums. Þannig myndi Björgólf-
ur komast undan yfirtökuskyldu á
félaginu.
Standist sú fullyrðing var líkast
til um sýndarviðskipti að ræða og
mun Fjármálaeftirlitið nú rann-
saka það.
Straumur Burðarás sendi frá sér
yfirlýsingu vegna málsins í gær og
segir Magnús ljúga. Fullyrðingar
hans séu ósannar og fjarstæðu-
kenndar og honum haldlausar til
varnar í málaferlunum við Straum.
Honum beri, eins og öðrum, að
gangast við skuldbindingum sínum
og persónulegum ábyrgðum. - sh
Straumur segir Magnús Þorsteinsson ljúga til um greiðasemi við Björgólf Thor:
Rannsaka hvort Magnús talaði af sér
MAGNÚS ÞORSTEINSSON Skuldamál
þrotabús Straums gegn Magnúsi er nú
fyrir dómi á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VEISTU SVARIÐ?