Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 10
11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Farðu inn á ring.is og óskaðu
eftir að fá MMS með tilboðum
send í símann.
Ringjarar
þurfa ekki
skæri.
Við sendum
tilboð beint
í símann.
Tilboð dagsins:
Gleði 1
Gleði 2
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
Tilboð á m.ring.is – ekki klippa þennan miða út
Ringjarar fá 2.000 kr. afslátt af
gallabuxum í dag hjá Retro,
Deres, Sparkz eða Urban.
Ringjarar geta náð sér í lagið og hringi-
tóninn Manvísa með Morðingjunum
á farsvímavefnum m.ring.is í dag.
Gildir í dag föstudag
Gildir í dag föstudag
2.000 kr. afsláttur!
Tónlist fyrir 0kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
2
5
2
Tíska
Fersk tilboð
á ring.is í
hverri viku
Tónlist
Ferskir tónar
á m.ring.is í
hverri viku
LÖGREGLUMÁL Tveir menn sem
fundust látnir í Daníelsslipp við
Mýrargötu í Reykjavík í mars
1985 féllu fyrir eigin hendi.
Þetta er niðurstaða réttar-
meinafræðinga sem rannsökuðu
þetta mál hartnær 25 árum eftir
að mennirnir fundust. Samkvæmt
rannsókn þeirra var um sjálfsvíg
að ræða og létust mennirnir tveir
úr koloxíðeitrun sem staðfest var
með blóðrannsókn.
Engir áverkar sem valdið hefðu
meðvitundarleysi hafi fundist við
krufninguna og því benti ekkert
til annars en að mennirnir hafi
verið með meðvitund í bílnum
þar til þeir urðu koloxíðeitrun að
bráð.
Rannsókn réttarmeinafræðing-
anna fór fram í kjölfar erindis
aðstandenda mannanna til ríkis-
saksóknara. Ættingjarnir mann-
anna höfðu krafist þess með
bréfi til ríkissaksóknara í nóv-
ember 2008 að fram færi rann-
sókn á andláti þeirra og viðbrögð-
um embættis ríkislögreglustjóra
eftir að aðstandendur hófu athug-
un sína á málavöxtum, eins og
rakið hefur verið í fjölmiðlum.
Rannsókn lögreglunnar á
sínum tíma beindist að því hvort
mennirnir féllu fyrir eigin hendi,
eins og aðstæður bentu til á vett-
vangi, og að dánarorsök væri kol-
oxíðeitrun frá útblæstri bifreiðar
sem lík mannanna fundust í.
Ríkissaksóknari leitaði eftir
því að réttarmeinafræðingur
færi yfir krufningarskýrslur,
ljósmyndir og önnur gögn og léti
í ljós álit á dánarorsök mannanna
eftir því sem unnt væri, hart-
nær 25 árum seinna. Að þess-
ari athugun komu tveir réttar-
meinafræðingar sem báðir hafa
áralanga reynslu á sviði réttar-
meinafræði.
Það er niðurstaða ríkissak-
sóknara að ekkert tilefni sé til
að kveða á um rannsókn á við-
brögðum embættis ríkislögreglu-
stjóra við málaleitan ættingja um
aðgang að gögnum málsins eða á
vinnubrögðum við rannsókn lög-
reglunnar á vettvangi og aðgerð-
um hennar í kjölfarið á sínum
tíma.
Fram kom í fréttum Stöðvar 2
í gær að aðstandendur mannanna
ætla sjálfir að rannsaka dauðs-
fallið. jss@frettabladid.is
Féllu fyrir eigin hendi
Samkvæmt niðurstöðu réttarmeinafræðinga féllu tveir menn, sem fundust
látnir í Daníelsslipp árið 1985, fyrir eigin hendi. Þeir létust úr koloxíðeitrun
samkvæmt blóðrannsókn. Engir áverkar fundust á mönnunum við krufningu.
FRÁ DANÍELSSLIPP Mennirnir tveir fundust látnir í bíl við Daníelsslipp árið 1985. Rannsókn leiddi í ljós að dánarorsök mannanna
var koloxíðeitrun. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HEILBRIGÐISMÁL Mikið hefur dreg-
ið úr svínainflúensunni, að því er
fram kemur hjá sóttvarnalækni.
Í síðustu viku greindist samtals
101 einstaklingur með inflúensu-
lík einkenni samkvæmt skráningu
heilbrigðisþjónustunnar. Tilfell-
um fækkaði bæði á höfuðborgar-
svæðinu og landsbyggðinni.
Frá 29. júní til 6. desember
höfðu greinst 9.733 einstaklingar
með inflúensulík einkenni, þar af
voru 4.453 karlar og 5.280 konur.
Fram til 6. desember höfðu
greinst 700 einstaklingar hér á
landi með staðfesta svínainflú-
ensu á veirufræðideild Land-
spítala. Frá 23. september til 6.
desember voru um 180 einstakl-
ingar lagðir inn á sjúkrahús með
grun um inflúensu eða staðfesta
svínainflúensu.
Langflestir voru lagðir inn á
Landspítala eða um 130, þar af
voru 20 einstaklingar lagðir inn
á gjörgæsludeild.
Tveir hafa látist af völdum
staðfestrar svínainflúensu, 18
ára stúlka og 81 árs karlmaður.
Stúlkan lést 19. október og mað-
urinn lést 20. nóvember en bæði
voru með alvarlega undirliggjandi
sjúkdóma.
Það sem af er hausti hefur eng-
inn greinst með árlega inflúensu.
-jss
Enginn hefur enn greinst með árlega inflúensu hér á landi:
Mikið dregið úr svínaflensu
LANDSPÍTALI Samtals 130 höfðu verið
lagðir inn á Landspítala í byrjun desem-
ber vegna svínaflensunnar.
NEYTENDUR Reiknivél sem Tal setti upp á heima-
síðu sinni og ætluð var til að bera saman verð
á þjónustu Tals og annarra símafyrirtækja
hefur verið bönnuð af Neytendastofu.
Síminn kærði reiknivél Tals til Neytenda-
stofu á þeim grundvelli að sá samanburður
sem reiknivélin gæfi væri rangur. Neyt-
endastofa komst að þeirri niðurstöðu að
reiknivélin gæfi villandi upplýsing-
ar á margan hátt.
„Samanburðarreiknivél Tals
gerir ávallt ráð fyrir að neytend-
ur séu með alla þjónustu sína hjá
Tali, það er net-, heimasíma- og
farsímaþjónustu. Er sú þjón-
usta kölluð „Allur pakkinn“.
Upplýsingar um að saman-
burðurinn sé háður því skil-
yrði koma ekki fram fyrr en í
lok samanburðarins. Ætli neytandi
því eingöngu að bera saman notk-
un á farsíma mun hann ekki fá raunsanna mynd
af kostnaði hjá Tali þar sem mánaðargjald Tals
kemur ekki til samanburðar,“ segir meðal ann-
ars í ákvörðun Neytendastofu.
„Getur stofnunin fallist á með Símanum að
samanburðurinn sé sérstaklega villandi þar
sem neytendur notast við upplýsingar af raun-
verulegum símreikningi og því sé látið í veðri
vaka að niðurstöður samanburðarins séu rétt-
ar þar sem þær séu byggðar á tæmandi
upplýsingum um notkun hvers og eins
notanda,“ segir einnig í ákvörðun Neyt-
endastofu, sem bannað hefur reiknivél-
ina og auglýsingar um hana í óbreyttri
mynd. - gar
Neytendastofa segir óréttmætum viðskiptaháttum og villandi auglýsingum beitt:
Banna símareiknivél hjá Tali
HERMANN JÓNASSON Forstjóri Tals sem Neyt-
endastofa segir hafa gefið rangan samanburð á
verði símaþjónustu með reiknivél á heimasíðu
sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI