Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 16

Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 16
16 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR NOREGUR „Trúin á það að friður sé æskilegur dugar sjaldnast til þess að öðlast hann,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló. „Ofbeldislaus hreyfing hefði ekki getað stöðvað hersveitir Hitl- ers. Samningaviðræður geta ekki sannfært leiðtoga Al Kaída um að leggja niður vopn,“ sagði Obama. Hins vegar viðurkenndi hann að stríð hefði alltaf óbærileg- an kostnað í för með sér. „Engu skiptir hvernig stríð er réttlætt, það er alltaf ávísun á mannlegan harmleik.“ Hann dró heldur ekkert undan þegar hann minntist á hermenn- ina, sem hann hefur nýlega ákveðið að senda til Afganistans: „Sumir þeirra munu drepa, sumir verða drepnir.“ Hins vegar lagði hann áherslu á að reyna þyrfti allar aðrar leiðir áður en gripið væri til þess ráðs að fara í stríð. Áður en Obama mætti til verðlaunaafhendingar- innar sagðist hann telja að marg- ir aðrir ættu þau frekar skilið en hann sjálfur. Norðmenn voru margir hverjir ósáttir við að Obama skyldi ekki hafa þegið matarboð hjá Haraldi Noregskonungi, eins og löng hefð er fyrir þegar friðarverðlaun Nóbels eru afhent. Hann brá einnig út af ýmsum öðrum venjum, sem fylgt hafa verðlaunaafhendingunni áratug- um saman. Hann efndi ekki til blaðamannafundar, bauð ekki upp á sjónvarpsviðtal og kom hvorki fram á friðarsamkomu barna né tónleikum, eins og fyrri verðlaunahafar hafa gert. Hann mætti heldur ekki í kvöldmat með norsku Nóbelsverðlaunanefndinni og fór ekki að skoða sýningu sem sett hefur verið upp honum til heiðurs. „Af öllu því sem hann hefur afboðað tel ég verst að hann skuli afboða hádegisverð með konung- inum,“ sagði Siv Jensen, leiðtogi norska Framfaraflokksins, í við- tali við dagblaðið Verdens Gang. Samkvæmt skoðanakönnun blaðsins telja 44 prósent Norð- manna Obama hafa sýnt dónaskap með því að setjast ekki að snæð- ingi með Haraldi konungi. Í Stokkhólmi fór einnig fram Nóbelsverðlaunahátíð í gær þar sem afhent voru verðlaun í bók- menntum, efnafræði, eðlisfræði, læknisfræði og hagfræði. gudsteinn@frettabladid.is Segir stríð vera nauðsyn Barack Obama Bandaríkjaforseti tók við friðarverð- launum Nóbels í gær, fáeinum dögum eftir að hafa ákveðið að senda fleiri hermenn til Afganistan. OBAMA Í ÓSLÓ Norðmenn eru ósáttir við að Bandaríkjaforseti hafi ekki séð ástæðu til að þiggja matarboð Haralds Noregskonungs, eins og löng hefð er fyrir í tengslum við afhendingu friðarverðlauna. NORDICPHOTOS/AFP Ofbeldislaus hreyfing hefði ekki getað stöðvað hersveitir Hitlers. BARACK OBAMA FRIÐARVERÐLAUNAHAFI NÓBELS VERÐLAUNIN AFHENT Obama tekur við friðarverðlaunum Nóbels úr hendi Thorbjörns Jaglands, formanns norsku Nóbelsnefndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.