Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 18
18 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
ALÞINGI Útpörun Sivjar Friðleifsdóttur Framsókn-
arflokki í atkvæðagreiðslunni um Icesave-málið á
Alþingi á þriðjudag hefur vakið athygli. Var útpörun-
in viðhöfð þar sem Helgi Hjörvar Samfylkingunni,
nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs, var ytra í emb-
ættiserindum.
Þessi aðferð, að para út þingmann í atkvæða-
greiðslu þegar þingmaður úr andstæðri fylkingu er
fjarverandi, snýst um að jafna út valdahlutföll milli
stjórnarliða og stjórnarandstöðu. Hefur hún verið
viðhöfð um árabil en farið nokkuð hljótt.
Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, segir að Samfylkingin hafi
leitað til framsóknarmanna og í ljósi hefðarinnar
hafi þeir brugðist vel við.
Í lögum um þingsköp segir að þingmanni sé skylt
að vera viðstaddur og taka þátt í atkvæðagreiðslu
nema hann hafi lögmæt forföll. Fjarvist Sivjar á
þriðjudag er því, strangt til tekið, brot á þingsköpum.
Gunnar Bragi segir þetta vissulega rétt en bend-
ir á að þessi háttur hafi verið viðhafður áratugum
saman. Sé hann ekki fyrir hendi þurfi flokkar að
kyrrsetja þingmenn sem annars sinntu mikilvægum
erindum í útlöndum. - bþs
Útpörun Sivjar Friðleifsdóttur á móti Helga Hjörvar í atkvæðagreiðslu vekur athygli:
Pörunin stangast á við lög um þingsköp
HRÍSEY Siglingastofnun heimilaði
uppsetningu fjarskiptabúnað-
ar utan á Hríseyjarvita, sem er
friðlýstur, að því er fram kemur
á vefnum nordurlandid.is.
Í sumar vakti Íslenska vitafélag-
ið athygli Húsafriðunarnefndar
á þessu, en Hríseyjarviti er einn
af sjö vitum sem voru friðlýstir
árið 2003.
Húsafriðunarnefnd óskaði
eftir því við Siglingastofnun,
sem á vitann, í september síðast-
liðnum að búnaðurinn yrði fjar-
lægður hið fyrsta, en það hefur
enn ekki verið gert.
Á nordurlandid.is er haft eftir
Hermanni Guðjónssyni siglinga-
málastjóra að búnaðurinn verði
fjarlægður af húsinu í vor og þá
verði búið að finna aðra lausn.
Væntanlega verði sett upp mast-
ur í nágrenni við vitann.
Framkvæmdir í Hríseyjarvita:
Fjarskiptatæki á
friðlýstum vita
SIV FRIÐLEIFS-
DÓTTIR
HELGI HJÖRVAR GUNNAR BRAGI
SVEINSSON
VÍSINDI Ómannaður smákafbátur,
smíðaður af Bandaríkjamönnum,
hefur skilað sér til Baiona á Spáni
eftir rúmlega 7.400 kílómetra sigl-
ingu þvert yfir Atlantshafið. Bát-
urinn lagði upp í siglinguna í apríl
og var 221 dag á leiðinni. Hann
gengur ekki fyrir neinu vélarafli
heldur er eingöngu knúinn áfram
af hafstraumum.
Eina orkan sem hann notar er til
að breyta stöðu stýrisugga sinna
og færa sig þannig milli strauma,
en til þess hefur hann rafhlöður.
Þetta er í fyrsta sinn sem tekst að
senda ómannaðan kafbát þessa
vegalengd en tilraun sem gerð var
í fyrra mistókst. - asg
Ómannaður smákafbátur:
Fór yfir Atlants-
haf án vélarafls
GROUP
TÖLVUR Nær 80 prósent barna á
aldrinum níu til sextán ára sögð-
ust helst vera í leikjum þegar þau
eru á Netinu að því er fram kemur
í nýrri könnun. Samfélag, fjöl-
skylda og tækni, vakningarátak
um örugga netnotkun barna og
unglinga (SAFT), stóð fyrir könn-
uninni sem gerð var síðastliðið vor.
Sambærileg könnun var gerð fyrir
þremur árum og sögðust þá ríflega
80 prósent barna helst vera í leikj-
um þegar þau væru á Netinu. Tæp
70 prósent þátttakenda í könnun-
inni sögðu foreldra sína þekkja
mikið eða nokkuð mikið til þeirra
leikja sem þau spila á Netinu.
„Það er ánægjulegt að foreldr-
ar eru farnir að þekkja leiki sem
börnin spila í auknum mæli en
áður,“ segir Guðberg K. Jónsson,
verkefnastjóri hjá SAFT. Hann
segir mikilvægt að foreldrar viti
að mikið sé til af góðum tölvuleikj-
um sem séu gagnlegir og fræð-
andi. „Við bendum foreldrum á að
skoða aldursmerkingar á tölvu-
leikjum sem keyptir eru handa
börnum og sömuleiðis að fylgj-
ast með leikjum sem börn eru í á
Netinu.“ Guðberg segir að á heild-
ina litið séu niðurstöður könnun-
arinnar jákvæðar. Meðal annars
kemur fram í henni að meirihluti
barna spilar tölvuleiki í innan við
klukkustund þegar spilað er á Net-
inu, 65 prósent spila ein þegar þau
eru á Netinu, 26 prósent með fjöl-
skyldu og vinum í sama herbergi
og 24 prósent með fjölskyldu og
vinum á Netinu. 15 prósent spila
við fólk í útlöndum sem þau þekkja
ekki.
Einnig var gerð könnun á meðal
foreldra um hversu mikið eftir-
lit er haft með tölvuleikjanotkun
barna þeirra.
51 prósent foreldra sagðist hafa
frekar mikið eftirlit með tölvu-
leikjanotkun barna, 28 prósent
sögðust hafa mjög mikið eftir-
lit með henni, 17,5 prósent höfðu
ekki mikið eftirlit og 3,4 prósent
ekkert. Hefur þeim foreldrum
sem hafa lítið eða ekki mikið eft-
irlit með tölvuleikjanotkun barna
fjölgað um rúm þrjú prósent frá
árinu 2007.
Nota Netið
helst til leikja
Nær 80 prósent barna og unglinga sögðust helst
vera í leikjum á Netinu í nýrri könnun SAFT. Tæp 70
prósent barna telja foreldra sína þekkja mikið eða
nokkuð mikið til tölvuleikjanna sem þau spila.
FJÖLDAMORÐUM MÓTMÆLT Íbúar á
Filippseyjum efndu til mótmælafundar
í höfuðborginni Manila gegn fjölda-
morðum sem framin voru í landinu
nýverið. Mótmælendurnir héldu á 57
gervilíkkistum, jafnmörgum þeim sem
myrtir voru. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Er í leikjum á Netinu
Sendi skyndiskilaboð (MSN)
Hleð niður tónlist
Vinn heimaverkefni
Vafra til gamans
Sendi og fæ tölvupóst
Næ í aðrar upplýsingar en fyrir
skólaverkefni
Heimsæki fréttasíður (dagblöð,
netfréttastofur og þess háttar)
0 10 20 30 40 50 60 70 80
%
Apríl-maí ´09
Mars-apríl ´07
Feb. ´03
Hvað gerir þú á Internetinu?
Á NETINU Nær 80 prósent barna og unglinga sögðust helst spila leiki á Netinu sam-
kvæmt könnun SAFT. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HOLLAND Evrópska lögreglan Eur-
opol hefur greint frá því að tekist
hafi að uppræta barnaklámshring
á Netinu. Kennsl hafa verið borin
á fimm fórnarlömb, börn á aldr-
inum fjögurra til tólf ára. Einn-
ig hafa verið borin kennsl á 221
kynferðisafbrotamann, og 115
hafa nú þegar verið handteknir.
Brotamennirnir voru hand-
teknir við húsleitir í Austurríki,
Belgíu, Bretlandi, Búlgaríu,
Kanada, Danmörku, Frakklandi,
Þýskalandi, Ungverjalandi, Lithá-
en, Lúxemborg, Möltu, Hollandi,
Póllandi, Rúmeníu, Slóvakíu, Sló-
veníu, Spáni og Sviss. Ekki hefur
verið greint frá því hvenær hand-
tökurnar áttu sér stað. Rannsókn
málsins hefur tekið tvö ár og var
það sérdeild austurrísku lögregl-
unnar sem leiddi rannsóknina.
Sérdeildin fann barnaklámshópa
sem höfðu notfært sér netþjón
sem var hýstur þar í landi til þess
að dreifa barnaklámi.
Brotamennirnir grunuðu hafa
mjög mismunandi bakgrunn, en
greint hefur verið frá því að ein-
hverjir þeirra hafi verið kennar-
ar eða í öðrum störfum tengdum
börnum.
Europol hefur fram til þessa
aðstoðað við að uppræta 23
alþjóðlega barnaklámshringi og
borið kennsl á um 1.600 kynferð-
isbrotamenn.
- þeb
Europol handtekið 115 kynferðisbrotamenn:
Barnaklámshring-
ur upprættur