Fréttablaðið - 11.12.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 11.12.2009, Síða 24
24 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR Þeir eru kallaðir Playmokallarnir inn- an leikfangageirans og fengu á dögun- um viðurkenningu frá framleiðanda þessara vinsælu leikfanga. „Það má segja að þetta hafi verið viðurkenn- ing fyrir störf okkar fyrir Playmobil,“ segir Reynir Arnar Eiríksson sem ásamt Guð- mundi bróður sínum tók við sérstökum heið- ursbikar frá framleiðanda Playmobil. Fjölskylda Péturs og Guðmundar hefur verið í verslunarrekstri frá árinu 1939. Þá stofnaði faðir þeirra fyrirtæki og hóf sölu leikfanga – mitt í erfiðu umhverfi efnahags- kreppu. Þegar fram liðu tímar tóku bræð- urnir við rekstrinum ásamt Grétari bróður sínum en hann er nú látinn. Reynir segir að þegar þeir Eiríkssynir sáu um rekstur leik- fangaverslunarinnar Liverpool hafi þeir keypt umboðið fyrir Playmobil af Böðvari Valgeirssyni, forstjóra ferðaskrifstofunnar Atl- antik. Þetta var fyrir þrjátíu árum. Eins og allir vita hefur Playmobil allar götur síðan staðið traustum fótum í barna- herbergjum landsins. Og nú stendur hinn þýski framleiðandi Playmobil fyrir því að heiðra bræðurna enda mun salan á Íslandi vera meðal þess mesta sem gerist í nokkru landi miðað við höfðatölu. „Hér á landi eru bræðurnir oft nefnd- ir Playmokallarnir innan leikfanga- geirans,“ segir í tilkynningu þar sem bræðrunum er þakkað fyrir áratuga viðskipti. Verslunin Liverpool var seld fyrir margt löngu og bræðurnir hafa selt Playmobil síðan gegnum heildsölu sína Eiríksson sf. Þriðja kynslóðin í ættinni rak hins vegar Leikbæ þar til sú verslun var seld. „Við er komnir á aldur og erum búnir að selja heildsöluna. Nú erum við bara á hliðar- línunni,“ segir Reynir sem aðspurður kveður helstu breytingarnar sem orðið hafa á leik- föngum í áranna rás vera þá að nú séu þau miklu vandaðri og fjölbreyttari en áður. „Ég fékk aldrei útlend leikföng af því að það voru innflutningshöft. Ég öfundaði alltaf börn sjó- manna og flugmanna því þau fengu alltaf miklu meira af leikföngum. Eina sem ég var ánægður með í barnæsku var vörubíll úr tré sem var smíðaður af berklasjúkum smið á Reykja- lundi.“ Reynir segir alla stórfjölskyld- una hafa lagt hönd á plóg og allar kyn- slóðir þannig kynnst betur. Starfsferill þeira bræðra hafi verið skemmtileg- ur. „Það er alltaf gaman að selja ungu kynslóðinni. Maður þarf að vera barn í hjarta til að selja leikföng.“ gar@frettabladid.is nær og fjær „ORÐRÉTT“ Playmókallar Íslands í þrjátíu ár EIRÍKSSYNIR Bræðurnir Guðmundur og Reynir Arnar Eiríkssynir (th.) fengu sérstakan bikar frá framleiðanda Playmobil fyrir traust viðskipti í þrjá áratugi. Í bikarnum eru Playmokallar frá ýmsum tímum. HB Grandi stendur þessa dagana fyrir námskeiðum fyrir starfs- fólk sitt í fiskvinnsluverum fyr- irtækisins í Reykjavík og á Akra- nesi. Á námskeiðunum er farið yfir meðhöndlun á hráefni, hreinlæti, umgengni og þrif og þess freistað að bæta gæði afurða og fyrirtæk- isbrag. Námskeiðin, sem haldin eru í samstarfi við rannsóknarstofuna Sýni, hófust í síðasta mánuði og þeim lýkur fyrir áramót. Að sögn Bergs Einarssonar, verkstjóra gæðamála hjá HB Granda, verða námskeiðin alls fjórtán talsins. Þar af eru þrjú haldin á Akranesi. Í Reykjavík eru þátttakendur alls 135 og eru námskeiðin haldin á níu tungumálum: íslensku, ensku, taílensku, pólsku, litháísku, víet- nömsku, kínversku, portúgölsku og tagalog. Þátttakendur í nám- skeiðunum á Akranesi eru fjöru- tíu talsins og þar verður kennt á íslensku og pólsku. Farið er yfir ýmsa mikilvæga þætti á sviði fiskvinnslunnar eins og örverufræði, krossmengun og matarsjúkdóma. Þá eru starfs- menn markaðsdeildar HB Granda með kynningu á helstu mörkuðum og flutningsleiðum félagsins. - shá HB Grandi stendur fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk um gæðamál í fiskvinnslu: Kennt á níu tungumálum MENNT ER MÁTTUR Starfsmenn HB Granda eru frá mörgum þjóðlöndum. Hér eru Litháar á námskeiði. MYND/HB GRANDA Fagor þvottavél 1400 snúninga þeytivinda. 6 kg hleðsla. Tímaseinkun. Stillanleg vinda. 32 cm hurðarop. 89.900 Fagor þvottavél Reykjavík . Skútuvogi 1 . Sími 562 4011 Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800 Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020 Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200 Þeytivinda Jólatilboð Verð kr. 99.900 „Ég er rétt í þessu á jólaföndri Samtaka flytjenda og hljómplötuframleiðenda,“ segir Óttar Felix Hauksson, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri Zonet. Hann segist óðum að komast í jólaskapið. „Ég er búinn að renna í gegnum þessi árlegu bókatíðindi og plötutíðindi til að skoða hvað mér þykir vænlegt að gefa,“ segir Óttar. Hann segir mjög gott úrval af bókum og diskum þetta árið, og lítið vandamál að finna góðar gjafir fyrir vini og ættingja. „Þessa dagana er ég annars mest að stússast í jólaútgáf- unni fyrir Zonet,“ segir Óttar. „Við sjáum um útgáfu og dreifingu á mynddiskum og geisladiskum. Það sem mér finnst mest gaman að eru nýjar Stiklur frá Ómari Ragnarssyni og Út og suður með Gísla Einarssyni.“ Óttar hefur einnig nóg að gera við æfingar með hljómsveitinni Pops. Hljómsveitin mun halda hefðbundna nýársgleði ‘68-kyn- slóðarinnar á Kringlukránni á nýársdag. Þar munu snillingar á borð við Gunnar Þórðarson og Magga Kjartans skemmta gestum, auk Óttars sjálfs, en sérstakur heiðursgestur mun einnig stíga á svið. Það er enginn annar en stórsöngvarinn Engilbert Jensen sem ætlar að taka nokkur vel valin lög með Pops. Eftir áramótin setur Óttar svo stefnuna á afslöppun í suðrænni sól, eins og eflaust fleiri sólþyrstir Íslendingar. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: ÓTTAR FELIX HAUKSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI Boðar heiðursgest á nýársgleði E-TÖFLUR Hollenskur maður segir 2.400 e-töflum hafa verið stolið frá honum fyrir skemmstu og leitar lögreglan nú að þjófunum. Lögreglan í Amsterdam rannsak- ar nú meintan þjófnað á 2.400 e- töflum. Eigandi taflnanna tilkynnti um þjófnaðinn til lögreglu vegna þess að hann taldi um 40 þeirra vera eitraðar. Hann segist hafa safnað töflunum um tveggja ára- tuga skeið og þeim hafi verið stolið þegar brotist var inn til hans á dögunum. Lögreglan telur að mannin- um sé alvara en ekki sé hægt að ganga úr skugga um það. Þá er ekki ljóst hvort maðurinn verði ákærður fyrir eiturlyfjaeignina þar sem eiturlyfin eru horfin. - þeb Leita að horfn- um e-töflum ■ Jörfagleði nefndist árlegur vikivaka- dansleikur sem haldinn var á jólum í Haukadal í Dalasýslu í lok 17. aldar og snemma á þeirri átjándu. Þar var mikið fjör eftir því sem heimildir greina og hefur gleðinni verið líkt við reif-dans- leiki nútímans. Kirkjunnar menn og embættismenn voru ekki mjög hrifnir af þessum samkomum sem fólk sótti langt að. Á síðustu gleðinni er sagt að 19 börn hafi komið undir. Jóni Magn- ússyni, sýslumanni í Dalasýslu, tókst að banna Jörfagleði fyrir fullt og allt í upphafi átjándu aldar. Hann missti embættið skömmu síðar, hlaut dóma fyrir lögbrot og dó í fátækt. Var mál manna að þar hefði huldufólk átt hlut að máli og staðið með vinnufólki móti yfirstéttinni. Heimild: Vísindavefurinn. FRÓÐLEIKUR JÖRFAGLEÐI Skera bara nógu mikið niður í staðinn „Ég er ekki sammála því að Reykjavíkurborg eigi að fara út í skattahækkanir.“ JÓRUNN FRÍMANNSDÓTTIR, FOR- MAÐUR VELFERÐARSVIÐS. Fréttablaðið 10. desember Traustur „Menn voru á sínum tíma að hugsa um samvinnu við Kínverja þar sem ætlunin var að fara á svig við dýravernd- unarlög. Ég stoppaði það.“ BJÖRN HALLDÓRSSON, FORMAÐUR SAMBANDS LOÐRDÝRABÆNDA. Morgunblaðið, 10. desember.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.