Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 26
26 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 22 Velta: 66,4 milljónir
OMX ÍSLAND 6 796 +0,25%
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR +0,72%
MAREL +0,63%
MESTA LÆKKUN
ICELANDAIR G. -3,95%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 166,00
+0,00% ... Bakkavör 1,55 +0,00% ... Føroya Banki 132,00 +0,00%
... Icelandair Group 3,65 +0,00% ... Marel 63,40 +0,63% ... Össur
140,00 +0,72%
Sala á nýjum bílum hjá þýska bíla-
framleiðandanum Audi var 8,9 pró-
sentum betri um allan heim í nóv-
ember en á sama tíma í fyrra. Þetta
kemur fram í gögnum fyrirtækis-
ins í vikunni. Heildarsala á fyrstu
ellefu mánuðum ársins dróst saman
um 5,4 prósent milli ára.
Svipuðu máli gegnir um aðra
bílaframleiðendur en Bayerische
Motoren Werke, sem framleiðir
bíla undir merkjum BMW, segir
bílasölu hafa aukist um tólf pró-
sent frá í fyrra.
Markaðir í Asíu hífa meðaltal-
ið upp hjá báðum fyrirtækjum,
ekki síst í Kína, en þar tvöfaldaði
BMW söluna. Þá var salan góð á
Indlandi, í Suður-Kóreu og í Singa-
pore, auk Brasilíu og Kanada. Rúm-
lega hundrað prósenta aukning var
í sölu á bílum undir merkjum Audi
í Hong Kong.
Stefan Bratzel, yfirmaður bíl-
greinarannsókna við vísindahá-
skólann í Bergisch Gladbach í
Þýskalandi, segir í samtali við
Bloomberg-fréttastofuna, að úr
gögnum um bílasölu megi lesa að
neytendur séu víða að nýta sér
aðgerðir stjórnvalda sem eiga að
leiða til þess að keyra hagkerfi
heimsins upp úr kreppunni. Þótt
kippur hafi komið í söluna kunni
þetta að vera tímabundið ástand
og geti dregið úr bílasölu fljótlega
á næsta ári. Þó megi reikna með að
Kína haldi meðaltalinu uppi eitt-
hvað lengur. - jab
SLAKAÐ Á VERKSMIÐJUNNI Sala á
nýjum bílum víða um heim hefur aukist
upp á síðkastið. Fréttablaðið/AP
Kippur í bílasölu ytra
Sala á nýjum bílum tók stökk í Asíu í síðasta mán-
uði. Vísbendingar eru um að kreppunni sé að ljúka þar.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna segir
útlit fyrir að fjárútlát hins opin-
bera vegna neyðarbjörgunarsjóðs
ríksins fyrir fyrirtæki í kröggum
(Tarp-sjóðurinn), verði helmingi
lægri en gert var ráð fyrir.
Tarp-sjóðurinn var settur á
laggirnar í stjórnartíð George W.
Bush, fyrrverandi forseta Banda-
ríkjanna, í október í fyrra eftir
mikið karp og kaupir hann eign-
ir fyrirtækja í skiptum fyrir eig-
infjárframlag fyrir allt að sjö
hundruð milljarða dala.
Fyrirtæki sem sóttu sér fé í
sjóðinn hafa greitt til baka 71
milljarð dala. Timothy Geithner,
fjármálaráðherra Bandaríkjanna,
sagði í síðustu viku mögulegt 175
milljarðar dala verði komnar til
baka í lok næsta árs. Gangi það
eftir kunna heildarútgjöld stjórn-
valda nema 341 milljarði dala, eða
rétt rúmum helmingi af áætluðum
útgjöldum.
Bloomberg-fréttastofan segir
nú deilt um það á Bandaríkja-
þingi hvað skuli gera við féð sem
standi út af fjárhagsáætlu. Banda-
rískir öldungadeildarþingmenn úr
röðum Repúplikana segja stjórn-
völd hafa gert nóg til að styðja við
fjármálafyrirtækin. Nú sé röðin
komin að því að vinna á fjárlaga-
hallanum, sem hefur aldrei verið
meiri.
Nancy Pelosi, forseti fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, sagði í
síðustu viku hluta sjóðsins kunna
að verða nýttan til að styðja við
lítil fyrirtæki. - jab
NANCY PELOSI Bandarískir þingmenn
deila nú um það hvað skuli gera við það
sem standi út af bandaríska Tarp-björg-
unarsjóðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vilja draga úr met-
halla vestanhafs
Ákvörðun peningastefnunefnd-
ar Seðlabanka Íslands um vaxta-
breytingar er í samræmi við fyrri
yfirlýsingar um hægfara tilslökun
peningalegs aðhalds. Þetta sagði
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri þegar vaxtaákvörðun bank-
ans var kynnt í gærmorgun.
„Ég tel að þetta sé varleg lækkun.
Við metum sem svo að þetta jafn-
gildi slökun í peningalegu aðhaldi
í kringum 0,5 prósentustig,“ sagði
Már.
Peningastefnunefnd ákvað að
lækka vexti á viðskiptareikningum
innlánsstofnana um 0,5 prósentu-
stig í 8,5 prósent. Þá var ákveðið
að Seðlabankinn myndi áfram efna
til útboða á innstæðubréfum til 28
daga með 9,75 prósenta hámarks-
vöxtum, en í því er sögð felast 0,5
prósentustiga lækkun hámarks-
vaxta innstæðubréfa. Vextir á
lánum gegn veði til sjö daga verða
lækkaðir um 1,0 prósentustig í 10
prósent og daglánavextir um 1,5
prósentustig í 11,5 prósent.
Í yfirlýsingu peningastefnu-
nefndar kemur jafnframt fram að
gengi krónunnar hafi í meginatrið-
um haldist stöðugt með takmörk-
uðum inngripum Seðlabankans og
engum frá byrjun nóvembermán-
aðar. „Þéttari reglugerð, aukið eft-
irlit og virkari framfylgd reglna
hafa leitt til þess að erfiðara er að
fara í kringum gjaldeyrishöftin en
áður.“
Í máli Más kom fram að afar
erfitt væri að spá fyrir um þróun
gengisins og rifjaði hann upp gam-
alt tilsvar frá því að hann var sjálf-
ur aðalhagfræðingur bankans í þá
veru að gæti hann spáð fyrir um
gengið þá væri hann ekki í starfi
heldur ríkur maður á sólarströnd.
Þórarinn G. Pétursson aðalhag-
fræðingur vísaði í spá bankans
um að gengi krónu gagnvart evru
myndi haldast nálægt 180 krónum
fram á mitt næsta ár, en færast svo
hægt nær 170 krónunum.
Forsvarsmenn bankans voru þó
sammála um að gengið gæti haldist
veikt lengi vel, jafnvel gæti tekið ár
eða áratugi fyrir gjaldmiðil að ná
jafnvægisgengi eftir hrun.
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla-
bankastjóri áréttaði að óvissa væri
um endanlega skuldastöðu þjóðar-
innar, jafnvel þó svo að draga megi
bankana frá og hrein skuldastaða
þá í raun betri en fyrir hrun, um
38 prósent af landframleiðslu. „Á
hinn bóginn verður einhver hluti
af þessu skuldir hins opinbera sem
er aftur verra,“ sagði hann og kvað
samband skulda þjóða og gengis
gjaldmiðilsins afar flókið.
olikr@frettabladid.is
SKUGGABANKASTJÓRN? Már Guðmundsson seðlabankastjóri (í miðið) kynnti
ákvörðun peningastefnunefndar um vexti á fundi í bankanum í gærmorgun. Honum
á hægri hönd situr Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og á vinstri hönd
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Slökunin jafngildir
hálfu prósentustigi
Seðlabankinn lækkaði lítillega vexti í gær. Krónan hefur haldist stöðug og erfið-
ara að fara í kringum gjaldeyrishöft en áður. Ár eða áratugi getur tekið gjaldmiðil
að ná jafnvægi eftir hrun. Gert er ráð fyrir hægum bata krónu eftir mitt næsta ár.
„Aðgerðir bankans nú eru ótvíræð
slökun á peningalegu aðhaldi öfugt
við þau misvísandi skilaboð sem
fólust í vaxtaákvörðun nóvember-
mánaðar,“ segir Ingólfur Bender,
forstöðumaður
greiningar Íslands-
banka. Hann á
jafnframt sæti í
Skuggabanka-
stjórn Markað-
arins. „Ég er afar
sáttur við lækk-
unina og tel að
hún hafi átt fullan
rétt á sér en gengi krónunnar hefur
haldist nokkuð stöðugt frá síðasta
fundi nefndarinnar og verðbólgan
hjaðnað. Lækkunin er hins vegar
umfram væntingar líkt og greina
mátti á viðbrögðum skuldabréfa-
markaðarins í gær þar sem krafa rík-
isbréfa lækkaði nokkuð kröftuglega.
Í ljósi væntinga um að krónan ætti
áfram að haldast nokkuð stöðug
og verðbólgan að hjaðna frekar
þá tel ég að gott svigrúm verði til
frekari vaxtalækkana á næstunni og
að bankinn komi til með að stíga
næsta skref í því lækkunarferli strax
í upphafi næsta árs,“ segir hann.
SVIGRÚM TIL FREKARI
VAXTALÆKKANA„Því verður varla haldið fram að
djörfung einkenni þessa ákvörðun
peningastefnunefndar Seðlabank-
ans. Engu að síður tel ég þetta
merkilega
niðurstöðu,“ segir
Þórður Frið-
jónsson, forstjóri
Kauphallarinnar,
sem jafnframt á
sæti í Skugga-
bankastjórn
Markaðarins.
Hann bendir
á að í ákvörðuninni felist áherslu-
breyting í þá veru að horft sé í meiri
mæli en áður til þess að styðja við
efnahagslífið í stað aðhalds og horft
til innlendra aðstæðna fremur en að
láta stjórnast af gengisótta.
„Þetta tel ég tímabært og mikil-
vægt – og boða umtalsverða lækk-
un stýrivaxta á næstu mánuðum.
Eins og verðlags- og efnahagshorfur
eru nú metnar sýnist mér óvarlegt
að hafa stýrivexti hærri að meðal-
tali en svona sex til sjö prósent á
fyrri hluta komandi árs og fimm til
sex prósent á þeim seinni, nema
eftirspurn færist umtalsvert í aukana
á ný,“ segir Þórður.
EKKI DJÖRF ÁKVÖRÐUN
„Ákvörðun Seðlabankans sýnist hóf-
leg og varfærin og verður að teljast
innan eðlilegra marka við ríkjandi
aðstæður,“ segir Ólafur Ísleifsson,
lektor við Háskólann í Reykjavík
og meðlimur í Skuggabankastjórn
Markaðarins.
Hann bætir
við að niðurstað-
an komi ekki á
óvart í ljósi fyrri
ákvarðana og álits
AGS að skilyrði
fyrir lækkun vaxta
hafi batnað enda
fari verðbólga
lækkandi og því hljóti vextir að fara
sömu leið.
„Þessi ákvörðun felur ekki í
sér straumhvörf heldur áfanga á
langri leið. Hún gefur fyrirheit um
að framhald verði á lækkun vaxta
sem enn eru langt ofan við núll
til tveggja prósenta stýrivexti í
nágrannalöndunum. Vöxtum verður
að koma niður á skaplegt stig til að
blása lífslofti í atvinnufyrirtækin og
reisa við efnahag þjóðarinnar,“ segir
Ólafur.
ENGIN STRAUMHVÖRF
Stýrivextir
Stýrivextir seðlabanka eru þeir vextir
sem bankinn notar til að hafa áhrif á
markaðsvexti og gang efnahagslífsins,
hvort heldur er til að hraða á vexti
þess eða draga úr þenslu. Seðlabankar
eiga í ýmsum viðskiptum við önnur
innlend fjármálafyrirtæki, sérstaklega
innlánsstofnanir, sem fjármagna
rekstur sinn í viðskiptum við Seðla-
bankann. Stýrivextir geta haft talsverð
áhrif á fjármögnunina sem skilar sér út
í markaðsvexti. Þá kunna þeir að hafa
áhrif á gjaldmiðla og verðbólgu. Nokk-
uð er síðan Seðlabankinn lýsti því yfir
að í kjölfar falls bankanna í fyrrahaust
urðu stýrivextir hér óvirkt stjórntæki.
Innlánsvextir
Eftir fall bankanna fengu innláns-
vextir Seðlabankans aukið vægi í
umræðunni. Þessir vextir taka náið
mið af stýrivöxtum, líkt og tekið er
til orða á Vísindavef Háskóla Íslands.
Segja má að innlánsvextirnir hafi
tekið við af stýrivöxtum svo lengi
sem bankarnir geta ekki fjármagnað
sig með viðskiptum við Seðlabank-
ann. Þetta eru samkvæmt orðanna
hljóðan vextir á innlánsreikningum
bankastofnana á lausu fé, sem þeir
binda í Seðlabankanum. Þeir slá því
taktinn fyrir vaxtakjör í bankakerfinu
með áhrifaríkari hætti en stýrivextir
um þessar mundir.
HVAÐ GERA VEXTIR SEÐLABANKANS?
Tveir kreppufræðingar
Paul Krugman, sem hlaut Nóbelsverðlaun í
hagfræði í fyrra, segir margar leiðir færar gegn
kreppunni og áhrifum hennar. Krugman, sem
jafnframt er ofurbloggari og dálkahöfundur
bandaríska stórblaðsins The New York Times,
segir í vef sínum í fyrradag óþarfa að kafa í gömul
rit eftir réttum leiðum þar eð margir hafi fjallað
um málið upp á síðkastið, ekki síst um viðbrögð
bandaríska seðlabankans gegn kreppunni á þriðja
áratug síðustu aldar. Krugman mælir sérstaklega
með ritgerð blogg- og kreppufræðabróður frá
miðju síðasta ári, hagfræðingsins
Gauta B. Eggertssonar, sem
starfar hjá bandaríska seðla-
bankanum í New York. Skrif
Gauta um aðgerðir gegn
núverandi kreppu hafa nokkr-
um sinnum verið uppspretta
eldheitra umræðna á bloggi
Krugmans.
Ýmislegt til dundurs
Krugman notar orðið „yeoman“ í umfjöllun sinni
um Gauta. Orðið var í grófum dráttum notað um
fólk af miðstétt í Bretlandi á sautjándu og átjándu
öld sem hafði tíma til að sinna hugðarefnum
sínum þegar færi gafst. Önnur merking á við um
þá sem hafa komist í fremstu röð. Gauti segir í
bloggfærslu sinni frá í fyrradag hvað hann hafi
verið að dunda upp á síðkastið. Dútlið er ritgerð
á sérfræðisviði hans, um aðgerðir bandaríska
seðlabankans gegn kreppum. Niðurstaða hennar
er sú í grófum dráttum að kaup seðlabanka á
ill selj- anlegum eignum geti haft jákvæð
áhrif á hagkerfið þegar beiting
á stýrivöxtum er ekki mögu-
leg, svo sem þegar þeir eru
komnir niður að núlli líkt og
vestanhafs. Væru vextir hærri
og hefðbundin stjórntæki
seðlabankans virkt væru áhrifin
minni.
Peningaskápurinn…
„Stýrivaxtalækkun Seðlabank-
ans er mjög jákvætt skref og
gefur góð fyrirheit um það sem
koma skal,“ segir Finnur Oddsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Íslands.
Hann bætir við að lækkun vaxta
nú komi skemmtilega á óvart þar
sem gengi krónunnar hafi ekki
styrkst frá síðustu vaxtaákvörð-
un og verðbólga lækkað minna en
væntingar voru um.
„Það er nauðsynlegt fyrir
atvinnulífið hér að vextir lækki
enn meira þar sem himinhár fjár-
magnskostnaður er að sliga mörg
fyrirtæki í dag auk þess sem hátt
vaxtastig dregur úr fjárfestingu í
atvinnulífinu,“ segir Finnur. - jab
Frekari lækkun
vaxta nauðsyn