Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 50
2 föstudagur 11. desember
núna
✽ fylgist vel með
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Ritstjórn Anna M.Björnsson Útlits-
hönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
SMART Fyrirsætan Kate Moss
mætti á verðlaunaafhendingu British
Fashion Awards á fimmtudaginn og
sést hér ásamt Vivienne Westwood.
PopUp-verzlun er að verða fast-ur punktur í bæjarrölti helgar-
innar en fjórir markaðir hafa verið
haldnir undir þeirri yfirskrift að
undanförnu. Á mörkuðunum er
hægt að kaupa íslenska hönnun
beint af hönnuðum milliliðalaust.
Nú eru að koma jól og því poppar
markaðurinn upp með nýju sniði.
Fleiri hönnuðir taka þátt en áður
en þeir verða yfir þrjátíu tals-
ins með mismunandi vörumerki.
Meðal þess sem hægt er að gera
góð kaup á eru fatnaður, skart,
fylgihlutir, barnaleikföng, jóla-
skraut og vörur fyrir heimilið.
Að auki verður lifandi tónlist á
staðnum. Meðal þeirra tónlistar-
manna sem spila undir á meðan
viðstaddir velta fyrir sér jólagjöf-
unum eru Lay Low og Agnes Erna,
Pascal Pinon, Elín Ey og fleiri.
Frekari upplýsingar um PopUp-
verzlun og hönnuðina sem tengj-
ast henni er að sjá á síðunni
http://www.facebook.com/popup.
verzlun.
Jólagleðin verður haldin í Hug-
myndahúsi háskólanna, Granda-
garði 2, þar sem Saltfélagið var
áður til húsa, á laugardag og
sunnudag frá klukkan 11 til 20
báða dagana. Vakin skal athygli á
því að enginn posi er á staðnum
og því nauðsynlegt að hafa reiðu-
fé meðferðis. - hhs
M ig langaði til þess að kynna nýju skólínuna mína með
stæl og kvöldið verður því með
eins konar Hollywood-ívafi,“
útskýrir skóhönnuðurinn
Sigrún Lilja Guðjónsdótt-
ir sem stendur fyrir flottu
galakvöldi á laugardags-
kvöldið. „Á þessum krepputím-
um er fólk dálítið niðurlútt og er
ekki að gera mikið til að lyfta sér
upp. Mig langaði til þess að fólk
fengi tækifæri til að klæða sig upp,
konur skelltu á sig rauðum vara-
lit og háum hælum og gerðu sér
glaðan dag. Glamúr þarf ekkert að
kosta mikið þó að við séum ekki
að borða kavíar og drekka kampa-
vín.“ Skór Sigrúnar Lilju hafa vakið
mikla athygli erlendis og ástralska
söngkonan Kylie Minogue gerði
nýverið samning við Gyðju um að
klæðast skónum hennar á tón-
leikaferðalagi um heiminn.
Galakvöld Gyðju verður hald-
ið á B5 í Bankastræti en þar verð-
ur rauður dregill og ljúfar veiting-
ar á boðstólum. Einungis boðs-
gestir eru á gestalista og Sigrún
Lilja mælist til þess við gesti að
þeir leggi 1.000 krónur í sérstak-
an bauk til styrktar átakinu Á
rás fyrir Grensás. „Það er sérstök
ástæða fyrir því að ég vil styrkja
þetta frábæra framtak. Föður-
systir mín lenti í alvarlegu slysi í
febrúar síðastliðnum og Grensás
og allt starfsfólkið þar hefur veitt
okkur ómetanlega hjálp og stuðn-
ing. Mér finnst þessi málstaður
stundum ekki fá nógu mikla at-
hygli og ég vildi leggja mitt á vog-
arskálarnar.“ Edda Heiðrún Back-
man sem er góð vinkona Sigrúnar
tekur við styrktarsamningi í skó-
verslun Steinars Waage í
Kringlunni klukkan 16
en þar verður hald-
inn sérstakur
Gyðjudag-
ur. Boðsgest-
ir á B5 munu
einnig fá að
berja vetr-
arlínu Gyðju
augum en þar
er glamúr allsráðandi. „Efnahags-
ástandið gerir það að verkum að
tískan verður glæsilegri. Skórn-
ir mínir eru því uppfullir af stein-
um og silfri og „blingi“. Fötin þurfa
að hressa okkur við.“
amb@frettabladid.is
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir skóhönnuður
GLAMÚR ÞARF EKKI
AÐ KOSTA MIKIÐ
Styrkir Grensás „Málefnið snertir mig mikið,“ segir Sigrún
Lilja Guðjónsdóttir, hönnuður og framkvæmdastjóri.
Jóla PopUp um helgina:
Íslensk hönnun
um jólin
Stáss Fjöldi íslenskra hönnuða tekur þátt
í PopUp-verzlun helgarinnar. MYND/STÁSS
HALLDÓR RAGNARSON MYNDLISTARMAÐUR
Þar sem þetta er síðasta sýningarhelgin á sýningunni minni í Listasafni ASÍ
mun ég eyða laugardeginum í að skrásetja sýninguna þar sem ég hef slugs-
að við það. Annars eru það Seabear-æfingar, ljósatímar og afmæli hjá viskí-
vini. Sunnudagar eru síðan nammidagar.
helgin
MÍN
Jakki 14.900,-
Toppur 4.950,-
Gallabuxur 6.900,-
Hún
Gallabuxur 9.900,-
Skyrta 4.950,-
Jakkapeysa 9.900,-
Hann
Kringlan s. 588 1705 Hafnarstræti 106 Akureyri
s. 463 3100
Glamúr-
skór Vetrarlína
Gyðju einkenn-
ist af silfri, gulli
og steinum.
Bræður munu berjast
Skollinn er á hatrömm barátta milli
Hjálma og Hjaltalín um hver standi
uppi sem söluhæsti listamað-
ur jólanna, eða allavega hjá
útgáfufyrirtækinu Borginni.
Baráttan er sérstaklega blóð-
ug þar sem það eru jú bræður
í þessum sveitum, Guðmundur
Óskar í Hjaltalín og Sigurður Guð-
munds í Hjálmum.
þetta
HELST
Kalli Berndsen gefur út
kennslumyndband
Þær konur sem hafa ekki kom-
ist í þáttinn vinsæla „Nýtt útlit“
geta tekið gleði sína þar sem förð-
unarsnillingurinn og stílistinn Karl
Berndsen er að gefa út kennslu-
myndband á dvd í förðun. Efni af
þessu tagi hefur ekki verið gefið út
í Evrópu sem hefur leitt til þess að
Kalla hefur verið boðinn dreifingar-
samningur á myndbandinu í Aust-
ur-Evrópu.