Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 52
4 föstudagur 11. desember
✽ nýtt og spennandi
útlit
MAC-daman er klár í jólaboðin jafnt sem kokkteilboðin, svo upp-tendruð, þokkafull og heillandi. Stúlkan þessi ljómar í alla staði,
það stirnir á hana, glampar og glitrar á fínlegan máta. Hún sameinar
anda liðinna tíma og ferskleika augnabliksins. Hún er óhrædd við að
tefla saman andstæðum í stílbrigðum og litavali, er í senn þokkafull og
viðkvæm, rómantísk og ákveðin, einbeitt og glaðvær.
Hér eru þættir frá sjötta, sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar
fengnir að láni, þeir einfaldaðir og gefinn nútímalegur blær. Augun
eru skyggð á þokkafullan hátt í anda áttunda áratugarins, varirn-
ar fljótandi í glossi og litasamsetningin vísun í sjöunda áratuginn.
Til að fullkomna blönduna er hárið formað í anda sjötta áratugar-
ins. Andstæðurnar koma fram í litasamsetningu, þar sem hlýir tónar
eru í augum og kinnum á móti köldum tónum í vörum. Þá er geisl-
andi, glitrandi og glansandi áferð á húð, vörum og augum, en hárið
matt og áferðin nett hrá til þess að undirstrika töffarann sem kraum-
ar undir niðri.
JÓLAFÖRÐUNIN Í ÁR FRÁ FRÍÐU MARÍU HARÐARDÓTTUR FYRIR MAC:
GEISLANDI OG
ÞOKKAFULL FEGURÐ
LITAÐ DAGKREM: Studio Moisture tint spf 15
HYLJARI: Select moisturecover
KREMAUGNSKUGGI: Paintpot Painterly
AUGNSKUGGI: Vanilla og Mineralize-Blue Sorcery (jólalínan)
AUGNBLÝANTUR: Softsparkle eye pencil-Nightsky (jólalínan)
KINNALITUR: Dainty
VARAGLOSS: Cremesheen glass-Ever so rich (jólalínan)
VARABLÝANTUR: Dervish
HIGHLIGHT: Nylon augnskuggi
FÖRÐUN: Fríða María með M·A·C
HÁR: Fríða María með Bumble and Bumble
LJÓSMYND: Ari Magg
MÓDEL: Matta frá Eskimo
Erfitt getur reynst að drífa sig á fætur í svartasta skammdeginu og hafa orku yfir
daginn. Hráfæðisdrottningin Solla Eiríks byrj-
ar hvern dag á því að bursta líkamann og fara
svo í sturtu. „Farðu í eins heita sturtu og þú
þolir og síðan eins kalda og þú þolir. Best er að
endurtaka þetta nokkrum sinnum. Þetta gerir
kraftaverk og er alltaf jafn hressandi og orku-
gefandi.“ Solla er einnig sannfærð um ágæti
frjódufti býflugna og hún fær sér eina mat-
skeið af því í bland við eina matskeið af grænu
dufti út í glas af vatni. „Maður verður bara að
klípa fyrir nefið og skutla þessu í sig, og koll-
urinn hressist og skýrist.“ Að sögn Sollu er
síðan lífrænt súkkulaði allra meina bót enda
stútfullt af steinefnum og andoxunarefnum.
„Búið til heimagert súkkulaði eða notið líf-
rænt sjötíu prósenta súkkulaði og fáið ykkur
bita, byrjið daginn á þessu ef því er fyrir að
skipta.“ Að lokum mælir Solla með grænum
hristingi til að halda orku og góða skapinu í
skammdeginu og að standa reglulega á höfði.
„Þetta er ákveðið nudd fyrir líffærin og eykur
blóðflæðið.“
GRÆNN HRISTINGUR
1 agúrka
2 sellerístönglar
1 límóna
1 avókadó
teskeið af fersku engifer
1 matskeið af Grænu bombunni (duft
sem fæst í Jurtaapótekinu)
1 matskeið lífrænt kakóduft
2 dl vatn
Allt sett í blandara þar til jafnt og drukkið
úr stórum glösum.
Solla í Grænum kosti
Góð ráð við skammdegissleni
Solla notar grænan
hristing og lífrænt súkkulaði
SEXÍ NEGLUR Í tilefni af myndinni um Coco
Chanel er tilvalið að skella á sig nýjasta naglalakkinu
frá Chanel sem er rautt og glimmerskotið.