Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 56
8 föstudagur 11. desember
Í nýja sjónvarpsþætt-
inum Wipeout sýnir
Friðrika Geirsdóttir
á sér hliðar sem fæstir
hafa séð áður. Í viðtali
við Föstudag segir hún
frá ævintýrinu í Argent-
ínu og jólamatreiðslu-
þættinum þar sem hún
ætlar ekki að matreiða
sebrahest.
Viðtal: Hólmfríður H. Sigurðardóttir
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
S
jónvarpskokkinn Frið-
riku þekkja marg-
ir en færri tengja
hana við ærslaskap,
læti og jaðaríþrótta-
mennsku. Það fer senn að breyt-
ast en í kvöld verður fyrsti Wip-
eout-þátturinn sýndur á Stöð 2.
Friðrika er kynnir þáttanna og
eyddi þremur ógleymanlegum
vikum í Búenos Aíres í Argentínu
við upptöku þeirra. „Mér fannst
gaman að gera Wipeout því ég fór
svo rosalega langt út fyrir sjálfa
mig og það sem aðrir héldu að ég
væri. Ég hló allar þrjár vikurnar
á meðan ég var úti, það var svo
gaman.“ Svona vel skemmti hún
sér, þrátt fyrir að hafa ekki fengið
að spreyta sig á þrautunum sjálf.
Sem andlit þáttanna þótti ekki á
það hættandi að hún fengi glóð-
arauga eftir handahlaup eða hopp
á risaboltunum, svo hún varð að
halda sig á mottunni. „Ég bað
um að fá að prófa, svo það sé nú
alveg á hreinu! Það halda örugg-
lega margir að ég hafi ekki þorað,“
segir Friðrika, sem skemmti sér
nógu vel við að fylgjast með öllum
hinum spreyta sig.
ÚRSLITIN KOMA Á ÓVART
Skemmtilegast af öllu þótti Frið-
riku að kynnast þeim 120 manns
sem komu út til að taka þátt.
„Það var svo gaman að fylgjast
með þessu fólki, sem var komið
alla þessa leið til að virkilega ögra
sjálfu sér. Eftir hverja þraut fyllt-
ist það meira sjálfstrausti. Það var
magnað að sjá muninn á því þegar
það kom og þegar það fór. Ég held
að það sé hollt fyrir sálina að rífa
af „ég þori ekki“ plásturinn, opna
sig og geta hlegið að sjálfum sér
eins og þau gerðu.“
Wipeout-þættirnir verða tíu,
sýndir einu sinni í viku fram í
mars. Friðrika er ekki í nokkrum
vafa um að fólk eigi eftir að sogast
inn í þættina og sitja sem fastast
yfir þeim öllum. „Þetta er alveg
frábært sjónvarpsefni. Í fyrsta lagi
er svo gaman að sjá fólk sem við
þekkjum eða könnumst við í sjón-
varpinu. Þar sem þátttakendurn-
ir eru svona margir kannast ör-
ugglega langflestir við einhvern.
Svo hefur hvílt svo mikil leynd
yfir þessu − enginn veit hverj-
ir unnu, en sigurvegararnir voru
átta. Og trúðu mér, það kemur á
óvart hverjir vinna!“
ENGAN VONDAN MAT, TAKK
Friðrika er önnum kafin við undir-
búning og kynningu á fyrsta Wipe-
out-þættinum. Þrátt fyrir það gefur
hún sér tíma til að fara í ræktina
því sem næst á hverjum degi. Því
sleppir hún helst ekki, ekki síst af
því að hún vill geta borðað það
sem henni dettur í hug án þess
að hafa áhyggjur af línunum. „Ég
er alltaf að hugsa um mat og allt-
af að borða. Ég þoli ekki að borða
vondan mat, því mér finnst það
svo mikil ánægjusóun. Það ætti
að vera ein af dauðasyndunum að
borða vondan mat,“ segir hún og
hlær. „Þess vegna fer ég oft á æf-
ingu, því það verður að vera jafn-
vægi á milli hreyfingar og þess
sem maður lætur ofan í sig.“
Hún segist sukka í mat af og
til. Hins vegar reyni hún að finna
leiðir til að gera uppskriftirnar
sínar hollari. Hún lætur þó vera
að taka smjörið og rjómann út úr
öllum uppskriftum. „Ég trúi ekki
á að borða ekki hvítan sykur og
hveiti, nema það væri vegna óþols
eða einhvers slíks. Það er svo
langt frá mínum trúarbrögðum.
Mitt mottó er að borða sitt lítið af
hverju með góðu hugarfari. Þegar
þú ert að borða sætindi og hugsar
„ég á ekki að vera að borða þetta“
þá get ég lofað þér því að það sest
beint á magann eða mjaðmirn-
ar. En ef þú ert virkilega að njóta
sætindanna eru þau að gefa þér
miklu meira en bara bragðið. Þá
ertu að fóðra andlegu hliðina líka.
Þegar þú sérð köku og þig lang-
ar í hana fara fallegar hugsanir
af stað og þú veðrast öll upp. Það
segir sig sjálft að það er svo miklu
hollari tilfinning en að hugsa „oj,
hvað þetta er ógeðslega óhollt“ en
borða kökuna samt.“
SMÍÐAR UPPSKRIFTIR
Eitt af helstu áhugamálum Frið-
riku er uppskriftasmíð. Þær verða
til á allsérstakan hátt. „Þá svelti
ég mig í smá tíma, því ég verð að
vera ofsalega svöng. Svo fer ég út
í Hagkaup með kerruna og rölti
um. Eftir smá stund fer heilinn að
púsla góðum hlutum saman. Og
þannig verða uppskriftirnar til!“
Með uppskriftina í kollinum
fer hún svo heim og nostrar við
matargerðina, sem hún líkir við
sína þerapíu. „Manni líður svo vel
þegar maður gerir eitthvað svona
skapandi. Og ólíkt myndlistar-
manninum fæ ég að borða það
sem ég skapa líka. Það er kannski
þess vegna sem ég er alltaf í svona
góðu skapi,“ spyr hún sjálfa sig
hugsi. Hún lætur unga syni sína
tvo hvorki trufla sig né kastar til
hendinni við matargerðina svo
hún geti betur sinnt þeim. Hún
FÉKK EKKI
AÐ PRÓFA
RISA-
BOLTANA
Land sem þig langar að heimsækja:
Tíbet.
Mesta dekrið: Góður
svefn.
Uppáhaldsverslunin:
Whole Food Store í NY.
Hverju myndirðu
sleppa til að spara:
Borða alltaf heima.
Án hvaða veraldlega hlutar geturðu ekki
verið: Eldhússins míns.
Helstu kostir þínir: Gott skap og jákvæðni
gerir lífið auðveldara.
Og gallar: Óþolinmæði og fljótfærni.
Áhrifavaldurinn: Mamma.
Mesta freistingin: Ooohhh...
þær eru margar en ég á mjög
erfitt með að sleppa smá
súkkulaðibita seinnipart
dags.
Matgæðingur Friðrika Geirsdóttir er alltaf að spá í mat og hefur það að sérstöku áhugamáli að smíða uppskriftir. Henni leiðist því
ekki næsta verkefni á dagskrá, að vinna jólamatreiðsluþátt með góðum gestum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
nEr til betri gjöf en verkjalaus jól !
Sore No More er fáanlegt í heilsubúðum, apótekum og Fjarðarkaup
Sore No
More ná
ttúrlega
hita- og
kæligeli
ð er
áhrifarík
t á líkam
sverki