Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 57

Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 57
ÍSLENSKU TÓNLISTAR- VERÐLAUNIN VERÐA AFHENT Í ÞJÓÐLEIK- HÚSINU KRAUM- LISTINN Í MÓTUN ALMANAK ÁRSINS DAGUR ÍSLENSKRAR TÓNLISTAR D ES 2 00 9 BJARKI SVEINBJÖRNSSON SKOÐAR SÖGUNA Það virðist ríkja samhljómur um það meðal músíkfólks að verk þess hljóti góðan hljómgrunn í samfélaginu nú um stundir. Áberandi er hversu margradda hann er kórinn um að nú hafi þjóðin snúið sér að því sem skiptir máli. Leiti æðri gilda og hafi allt í einu tíma til að sinna listinni. Hvað sem veldur þá gleðjast tónlistarflytjendur yfir góðri tónleikasókn og vonast til að hún haldi áfram og auki jafnvel plötusöluna líka. Íslenskt tónlistarlíf á það sameiginlegt með fjármálalífinu og reyndar þjóðlífinu öllu að finna strax á eigin skinni afleiðingar breytinga til góðs eða ills. Það hefur verið haft á orði að vegna smæðar þjóðarinnar gangi hún hraðar í gegnum slíkar breytingar en stórþjóðirnar. Í tónlistarlífinu má allt eins gera ráð fyrir að þessi fyrstu viðbrögð við kreppunni (að drífa sig á tónleika) endist ekki, heldur verði samdráttur þar fyrr en varir þegar fjárhagskurlin verða loks til grafar borin. Þá tekur við tímabil stöðnunar áður en sóknin hefst að nýju og góðærið endurfæðist uppfullt af tækifærum fyrir listafólkið til að gleyma um stund hinum æðri gildum. Æðri gildum eða ærgildum? Í þeim liggur efinn. Eða hvað? Verður ekki íslenskt tónlistarlíf áfram drifið af þessum núningi ólíkra gilda? Sú tilgáta hefur heyrst að áhugi erlends áhugafólks á íslenskri tónlist sé einmitt tilkominn vegna þess að hér sé einstaklega dýnamískt tónlistarlíf. Í tónfræðinni er dýnamík útskýrð sem munur á styrkleika. Það hefur enga merkingu að spila veikt ef ekki er einhverntíma spilað sterkt líka. Sjórinn er saltur og nú er búið að finna út úr því hvernig er hægt að búa til rafmagn úr núningi hans við ferskvatnið sem rennur í hann. Þetta er dýnamík sem kveður að. Í tónlistarlífinu á Íslandi birtist slíkur núningu í nánu samstarfi allra sem koma að tónlist. Við erum nógu mörg til að búa til fjölbreytta tónlist af öllum mögulegum gerðum og við erum nógu fá til að geta ekki leyft okkur að einangrast hvert frá öðru. Hvað sem við gerum í tónlist sendum við frá okkur út í sama umhverfið sem tekur undir eftir atvikum. Hljómgrunnurinn er á endanum sameiginlegur. TÓNLISTARHÚS FYRR OG NÚ +/- PLÚSAR OG MÍNUSAR ÚR TÓNLISTARLÍFINU HALLDÓR HAUKSSON VELTIR FYRIR SÉR HÁVAÐA OG HLJÓÐI D ES 2 00 9 11 . D ES 2 0 0 9 TÓ N LI ST AR H Ú SI G EF IÐ N A FN V IÐ H ÁT ÍÐ LE GA A TH Ö FN Á H A FN A R- BA K K A N U M Í DA G K LU K K A N 1 5: 30 AL LI R VE LK O M N IR ! STÓRSVEIT SAMMA Á ÚTITÓNLEIKUM VIÐ HÖFNINA Í DAG PO RT h ön nu n Þ ó svo að á Íslandi hafi ekki verið til sérbyggður salur til tónlistarflutnings fyrr en í ársbyrjun 1999, er Salurinn í Kópavogi var tekinn í notkun, á tónlistarflutningur innanhúss sér nokkra sögu (þó stutta miðað við Mið-Evrópu). Einhverra hljóð- færa er getið í heimildum frá mið- öldum, og auðvelt er að hugsa sér að einhver hljóðfæraflutningur hafi farið fram í nokkrum þeirra glæsilegu kirkna sem byggðar voru á Hólum og í Skálholti fyrr á öldum. Enn hafa þó ekki komið fram neinar heimildir um eigin- legt opinbert tónleikahald, eða tónlistarflutning hér á landi fyrr en skömmu eftir 1800. „Hljóðfærin voru fiðla, bumba lögreglunnar og tvö þríhorn – músík var ömurleg, bæði lögin og meðferð þeirra.“ Þessa lýsingu á tónlistarflutningi á Íslandi má lesa í „Dagbók í Íslandsferð 1810“ eftir breska lækninn Henry Holland. Vísar dr. Holland þarna til hljóð- færaleiks á dansleik sem hann stóð fyrir, ásamt félaga sínum, Sir George Mackenzie sem þeir héldu í „Klúbbnum“ vorið 1810. Hús þetta mun hafa verið staðsett við enda Aðalstrætis, þar sem Herkastal- inn er nú (eftir þessum klúbb var Aðalstræti um tíma kallað Klúbb- gata). Klúbburinn var drykkju- klúbbur sem danskir lögreglu- þjónar höfðu stofnað, og var hann starfræktur í svokölluðu Scheels- húsi frá því skömmu eftir alda- mótin 1800 til 1827. Þessi lýsing er með þeim elstu sem til eru um eig- inlegan hljóðfæraleik á opinberri samkomu. Klúbburinn hætti starf- semi í þessu húsi árið 1843 en var þá stofnað nýr klúbbur, Bræðrafé- lagið sem hóf starfsemi í annarri byggingu, rétt norðan við Scheels- hús og kallaðist starfsemi hans „Nýi klúbburinn“. Er það líklega sá klúbbur sem þýska ferðakon- an Ida Pfeiffer vísar til í ferðalýs- ingu sinni frá árinu 1845 er hún lýsir dansleik í klúbbnum. Eru lýs- ingar hennar á hljóðfæraleik í takt við það sem heyrðist árið 1810, og vitnað er til hér að ofan, en hún skrifar: „Það er hljóðfærasláttur- inn, sem er lakastur í þessum sam- kvæmum. Notaðar eru sérkenni- legar fiðlur með þremur strengj- um og hljóðpípur.“ Blaðið Ingólfur greinir frá op- inberum veraldlegum söng árið 1854 en þá „buðu skólapiltar fjölda bæjarmanna að heyra sönglist sína“. Er þetta eitt fyrsta dæmið um opinberan veraldlegan tónlist- arflutning – konsert – í Reykjavík, en þeir áttu eftir að halda marga samsöngva í Latínuskólanum á komandi árum. Árið 1865 gaf Carl H. Siems- en nýlega stofnuðu spítalafélagi hús, sem áður hafði verið rekið sem gistihús undir heitinu Skand- inavia, og varð það fyrsta sjúkra- hús bæjarins. Á efri hæð hússins voru herbergi fyrir sjúklinga, en á neðri hæðinni voru stærri „salir“ þar sem sýndar voru leiksýning- ar, og einnig, eins og segir í Þjóð- ólfi árið 1866, haldinn „Bazar og Tombola“ til styrktar sjúkrahús- inu. „Þaráofan bættist til mikill- ar ununar hinn fagri margradda saungr, sem öðru hverju var hald- ið uppi bæði kveldin; þar voru opt- ast að saungum 20 manns nál. 12 konur og 8 karlmenn er öll höfðu æft sig undir einu sinni í viku síðan fyrir jól, undir leiðsögn stiptamtmannsfrúarinnar [Olufu Finsen], er bæði sýngr vel sjálf og kann saung manna bezt, eins og leika á „Pjanoforte“, og lék hún FRAMHALD Á SÍÐU 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.