Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 60
11. DESEMBER 2009 FÖSTUDAGUR
Segðu okkur frá starfsemi Kraums
hingað til.
Kraumur var settur á laggirnar af
Aurora velgerðarsjóði í upphafi árs
2008 og hefur komið víða við á síð-
ustu tveimur árum. Segja má að
sjóðurinn og starfsemin kringum
hann hafi verið í stöðugri þróun.
Við höfum ýtt af stað eigin verk-
efnum til stuðnings tónleikahaldi
innanlands, plötugerð og sömuleið-
is svokölluðum hljóðverssmiðjum
þar sem ungum og upprennandi
listamönnum og hljómsveitum gefst
kostur á að taka upp undir leiðsögn
og fá ráð um næstu skref hjá reynd-
ari listamönnum.
Einnig höfum við unnið með
miklum fjölda listamanna að
þeirra eigin verkefnum, sem oft
eru nokkuð sérhæfð, sem og hald-
ið eigin námskeið og vinnusmiðjur,
og komið að hinum ýmsu viðburð-
um. Í tengslum við okkar starfsemi
og verkefni höfum við getað reitt
okkur á gott samstarf við ýmsa
aðila sem starfa á sviði íslenskrar
tónlistar.
Í kringum alla starfsemi Kraums
og þá þróunarvinnu sem hefur átt
sér stað höfum við búið við öfl-
ugt fagráð, sem kemur víða að, og
stjórn sem í sitja Ásmundur Jóns-
son, Pétur Grétarsson og Þórunn
Sigurðardóttir stjórnarformað-
ur sem lagði upp með þá hugmynd
sem býr að baki Kraumi og vann
henni brautargengi. Aurora stofn-
aði Kraum sérstaklega til stuðnings
íslensku tónlistarlífi og listamönn-
um, sem þriggja ára tilraunaverk-
efni, en það er auðvitað von okkar
að framhald verði á.
Hvar í tónlistarlífinu er þörfin mest
fyrir sjóði á borð við Kraum og
hvernig sker hann sig úr í styrkja-
kerfi listalífsins?
Ég held að það sé víða í íslensku tón-
listarlífi þar sem stuðningur á borð
við þann sem Kraumur veitir gæti
nýst vel, enda reynum við að starfa
á breiðum grundvelli. Kraumur
einbeitir sér þó fyrst og fremst að
stuðningi ungra listamanna, þó við
störfum ekki eftir ákveðnu aldurs-
takmarki, og leggjum upp með að
styðja við færri verkefni og lista-
menn frekar en fleiri, en gera það
þannig að stuðningurinn sé afger-
andi. Kraumur styður ekki aðeins
listamenn og verkefni fjárhagslega,
heldur veitir einnig faglega ráðgjöf
og aðra aðstoð þar sem því er komið
við. Sömuleiðis starfrækjum við og
höfum sett af stað okkar eigin verk-
efni.
Í stað þess að reiða okkur ein-
göngu á umsóknarferli og um-
sóknareyðublöð hefur Kraumur
oft frumkvæði að styrktarverk-
efnum, enda margir tónlistar-
menn betri í að búa til tónlist en
sækja um styrki. Mikið af styrkj-
um og verkefnum koma hins vegar
gegnum umsóknir og þessa dag-
ana erum við að setja af stað sér-
stakt umsóknarferli fyrir árið 2010.
Þó að ekki sé notast við eyðublöð í
umsóknarferlinu er nauðsynlegt að
ákveðnar upplýsingar skili sér og
þar er ég sem framkvæmdastjóri
til reiðu fyrir umsækjendur, læt til
dæmis vita ef eitthvað vantar.
Telurðu að áhrifa Kraums sé farið
að gæta í íslensku tónlistarlífi?
Hvernig metur maður slíkt?
Ég er kannski ekki rétti maðurinn
til að svara þeirri spurningu, en ég
held að þeir sem fylgst hafa með ís-
lensku tónlistarlífi sjái að starfsemi
Kraums og það liðsinni sem við
höfum veitt listamönnum, hljóm-
sveitum og hinum ýmsu viðburð-
um og verkefnum síðustu tvö ár
hefur skipt verulegu máli. Fingra-
för Kraums eru þó oft ekki sjáanleg
í þeim verkefnum sem við tökum
okkur fyrir hendur, enda skipt-
ir það okkur meginmáli að okkar
vinna og styrkir sem við ráðumst
í gefi eitthvað af sér, frekar en að
auglýsa það sérstaklega að Kraum-
ur standi þar að baki.
Við megum ef til vill vera sýni-
legri í okkar vinnu, en þau verk-
efni sem við höfum styrkt og unnið
með hafa svo sannarlega látið til
sín taka og haft áhrif bæði hér-
lendis sem erlendis. Má þar nefna
vinnu og stuðning við breiðskífur
FM Belfast, Diktu, Ólafs Arnalds,
Nordic Affect, Elfu Rúnar Krist-
insdóttur, Hjaltalíns og fleiri. Tón-
leikahald og kynning erlendis hjá
Mugison, Lay Low og Mógil, sem og
samstarf og stuðningur við fjölda
verkefna, meðal annars tónlist-
arkynningu Víkings Heiðars Ól-
afssonar og Árna Heimis Ingólfs-
sonar í framhaldsskólum höfuð-
borgarsvæðisins, Stofutónleika á
Listahátíð, vinnusmiðjur ungra tón-
listarmanna á Jazzhátíð í Reykja-
vík og Tónlistarhátíð unga fólks-
ins, fræðslunámskeið á You Are in
Control og Náttúru-tónleika Bjark-
ar og Sigur rósar í Laugardal.
Ekki má svo gleyma okkar eigin
verkefnum sem Kraumur hefur
hrundið af stað; stuðning við tón-
leikahald innanlands gegnum
Innrásar-átak okkar og Rásar 2,
stuðning við plötuútgáfu gegnum
Kraumslistann þar sem spennandi
og framsæknar útgáfur eru verð-
launaðar og hljóðverssmiðjur fyrir
unga og efnilega listamenn sem
haldnar eru í samstarfi við Mús-
íktilraunir.
Áhrifa af starfsemi Kraums er
því tvímælalaust farið að gæta og
það víða. En það er kannski ekki
auðvelt að meta þau áhrif. Sérstak-
lega í ljósi þess að Kraumur hefur
aðeins verið starfræktur í tæp tvö
ár og við erum í flestum tilvikum
að vinna með unga og efnilega tón-
listarmenn, sem ef til vill munu
láta enn frekar til sín taka á kom-
andi árum.
Kraumur - til stuðnings
íslensku tónlistarlífi
● Eldar Ástþórsson er framkvæmdastjóri Kraums.
Eldar Ástþórsson segir stuðning Kraums geta nýst vel víða í íslensku tónlistarlífi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Áhorfendur skemmta sér á tónleikum Björgvins Hall-
dórssonar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Mannakornin Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson á sviði
árið 1979.
MEÐAL NAFNA SEM STUNGIÐ VAR UPP Á FYRIR TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚS:
Faxaborg - Esja - Draumahöllin - Urðarbrunnur - Víkin - Ymur - Þjóðsalir - Ægisgarður - Öldusalur - Drangi -
Casa Reykjavík - Borgin - Edda - Köllunarklettur - Baula - Arnarhvoll - Klöpp - Ísjaki - Aría – Klakinn - Tónatal -
Akrafjall - Fensalir - Dynsalir - Fönix - Glerhöllin
full bú
ð af
nýjum
vörum
!
Glæsileg trommudeild
stútfull af allskyns slagverkshljóðfærum
Prufuklefi fyrir trommur
komdu og prófaðu!
Hjá okkur færðu faglega þjónustu,
byggða á þekkingu og áratuga reynslu.
trommur
Fyrir byrjendur og lengra komna
meiriháttar úrval