Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 66
10 föstudagur 11. desember
núna
✽ tíska og tíðarandi
1. Skyrtan er frá Marjan Pejoski, buxurn-
ar frá Cheap Monday og skórnir frá Opening
Ceremony. Allt keypt í Kronkron.
2. Dökkbláa gollan er frá Marjan Pejoski og
er keypt í Kronkron.
3. Bláu skyrtuna keypti ég í Aftur.
4. Peysan er frá Munda, buxurnar eru frá
Marjan Pejoski, en ég keypti þær í Kronkron.
Skórnir eru frá Bernhard Willhelm, en ég
fékk þá í Belleville.
5. Taskan er frá Marc by Marc Jacobs og er
keypt í Kronkron.
6. Skóna fékk ég í gjöf. Þeir eru frá Hugo
Boss.
7. Bolurinn er frá Jeremy Scott en ég
keypti hann í búð sem heitir Kokon To Zai
í París.
8. Gallajakkann fékk ég í Topshop.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum
þínum? Stíllinn minn er mjög marg-
breytilegur og breytist oft dag frá
degi. Ég myndi segja að hann sé
stílhreinn, óhefðbundinn og stund-
um ansi myrkur.
Hverjar eru helstu tískufyrir-
myndir þínar? Þær eru marg-
ar og ólíkar, til dæmis mætti
nefna Andy Warhol, Björk
og Alison Mosshart.
Hver eru uppáhaldsfata-
merkin þín? Þetta er erfið
spurning því þau eru svo
mörg. Mér finnst Marjan
Pejoski alveg frábær en hann
er yfirleitt með mjög flott og skemmti-
leg föt. Vivienne Westwood er líka í miklu uppá-
haldi og einnig Bernhard Wilhelm.
Hvar finnur þú falda fjársjóði? Upp á síðkast-
ið hef ég verið að finna ýmsa falda og gamla fjár-
sjóði í fataskápnum hans pabba, annars er oft
hægt að finna einhverja gullmola í Kola-
portinu.
Eru einhver tískuslys í fata-
skápnum þínum? Jájá, einhvers
staðar aftast í fataskápnum má finna
slæmar leifar af ansi skemmtilegu
„Emo“ tímabili.
Í hvaða borgum finnst þér skemmtilegast að
versla? Þær eru nú ekki margar þar sem ég hef
verslað eitthvað af viti, en þó fannst
mér gaman að versla í París. Mig
hefur alltaf langað til þess að versla
í New York og stefni á að fara þang-
að í byrjun næsta árs til að heim-
sækja vinkonu mína sem er í námi
þar.
Hvað er alveg bannað í þínum
bókum? Það er bannað að vera feim-
inn við að gera tilraunir eða óttast að
skera sig úr hópnum.
Hvaða flík eða hlut langar þig
mest í fyrir veturinn? Helst lang-
ar mig í eitt stykki Holga mynda-
vél eða bara einhverja góða og hlýja
peysu. - amb
Valdemar Árni Guðmundsson nemi
ALDREI AÐ ÓTTAST
AÐ SKERA
SIG ÚR HÓPNUM
2
8
6
7
4
5 3
1
náttúrulega
góð jólagjöf
Þú færð Dr.Hauschka í Yggdrasil, Fjarðarkaupum,
Maður lifandi, Lyfju Lágmúla og Heilsuveri.
100% náttúrulegar snyrtivörur unnar úr lífrænt ræktuðum jurtum
Mikið úrval af skemmtilegum
jólagjafaöskjum frá Dr.Hauschka
Dr.Hauschka snyrtivörur fyrir húðina
„Ég hef notað þessi krem reglulega
og mæli hiklaust með þeim.“
Sirrý
Auglýsingasími
– Mest lesið
SPARISLAUFUR Á STRÁKANA hönn-
uðurinn knái, Guðjón Tryggvason, er að gera
mjög flottar herraslaufur undir merki sínu, go
with jan. Þær fást í GK á Laugavegi.