Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 78
50 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Á þessum degi árið 1948 gáfu
Gunnar Gunnars son rithöfundur
og kona hans, Franzisca Antonia
Josephine Jörgensen, íslenska
ríkinu Skriðuklaustur á Fljóts-
dalshéraði.
Skriðuklaustur er fornfrægt stórbýli, þar var klaustur af Ágústínus-
arreglu frá 1493 til 1552 og var það síðasta klaustrið sem stofnað var
í kaþólskum sið hér á landi. Það voru hjónin Hall steinn Þorsteins-
son og Sesselja Þorsteinsdóttir á Víði völlum sem gáfu jörðina Skriðu
til stofnunar klaustursins. Gunnar Gunnarsson settist að á Skriðu-
klaustri árið 1939. Hann lét reisa húsið, sem þar stendur árið 1939
en það er teiknað af þýska arkitektinum Fritz Höger. Gunnar ánafn-
aði ríkissjóði jörðinni með því skilyrði meðal annars að nýting henn-
ar yrði til menningarauka. Tilraunabú í sauðfjár- og jarðrækt á vegum
RALA var rekið þar frá 1949 til 1990. Stofnun Gunnars Gunnarssonar
var sett á laggirnar árið 1997. Á Skriðuklaustri rekur Gunnarsstofnun
menningar- og fræðasetur með lifandi menningarstarfsemi árið um
kring, sýningum, tónleikum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum.
ÞETTA GERÐIST: 11. DESEMBER 1948
Gáfu Skriðuklaustur
HECTOR BERLIOZ (1803-1869)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Ég bý þó yfir þeirri hóg-
værð að viðurkenna að
skortur á hógværð er einn
af mínum veikleikum.“
Hector Berlioz var franskt
tónskáld. Þekktasta verk hans
er Symphonie Fantastique frá
1831.
Pétur Már Pétursson er nýstiginn út úr
flugvél eftir sólarhringsdvöl í Kaup-
mannahöfn þegar blaðamaður slær á
þráðinn. „Þetta er búið að vera alveg
frábært,“ segir hinn tæplega tvítugi
Pétur Már sem vann þriðju verðlaun
í norrænu kvikmyndasamkeppninni
REClimate fyrir myndina sína Hope.
REClimate er loftslagskeppni sem
norræn ungmenni á aldrinum fimmtán
til nítján ára hafa tekið þátt í í haust í
aðdraganda loftslagsráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Alls
voru 125 myndir sendar inn í keppnina
og voru tveir Íslendingar í átta efstu
sætunum, Pétur og kunningi hans úr
Borgar holtsskóla, Gabríel Bachmann.
Þeim var svo boðið að fara út til Kaup-
mannahafnar til að taka við verðlaun-
unum 8. desember. „Á afhendingunni
voru sýndar myndir sem lentu í fimm
efstu sætunum. Mín var sýnd fyrst en
mér fannst skemmtilegt að eftir sýn-
inguna komu til mín menn sem hafa
verið lengi í kvikmyndagerðarbransan-
um og spjölluðu við mig. Það var ægi-
lega góð tilfinning,“ segir Pétur.
Þrátt fyrir að verðlaunaafhendingin
hafi verið mikil upplifun fyrir Pétur
fannst honum enn meira um vert
að fá að kynnast hinum keppendun-
um sem lentu í efstu sætunum. „Við
sem lentum í fyrstu þremur sætun-
um hittumst og fórum út að borða og
skemmta okkur. Við kynntumst mjög
vel og munum örugglega verða í sam-
bandi áfram,“ segir hann. En um hvað
fjallar stuttmyndin Hope? „Hún ger-
ist árið 2067 og fjallar um ungt par
sem er að reyna að þrauka neðanjarð-
ar vegna mikils hita á yfirborði jarðar
og leit þeirra að vatni sem er af skorn-
um skammti,“ útskýrir Pétur og tekur
fram að lykiltónninn í myndinni sé um
vonina sem sé eina ástæðan fyrir því
að parið hafi lifað af. Hope er önnur
mynd Péturs en hann stundar nám á
listnámsbraut í Borgar holtsskóla. „Ég
hafði lengi verið leitandi og fór á bí-
liðnaðarbraut og félagsfræðibraut en
það var ekki fyrr en á listnámsbraut
sem ég fann mína stefnu í lífinu,“ segir
hann og segist viss um að framtíð hans
liggi í kvikmyndabransanum.
solveig@frettabladid.is
PÉTUR MÁR PÉTURSSON: HLÝTUR VERÐLAUN Í KVIKMYNDASAMKEPPNI
Tók við verðlaunum í Köben
UNGUR KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR Pétur Már Pétursson skrapp til Kaupmannahafnar til að
taka við verðlaununum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Björg Jósepsdóttir
lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 6. desember.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 16. desember klukkan 13.00.
Grímur Björnsson
Jósep Grímsson Regína Ómarsdóttir
Soffía S. Grímsdóttir
Björn Júlíus Grímsson Hildur Lilja Guðmundsdóttir
Jónína Sigríður Grímsdóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæra,
Þórey Sigurðardóttir
frá Skúfsstöðum, Möðruvallastræti 1,
Akureyri,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hlíð mánudaginn
30. nóvember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
14. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Sumarbúðirnar Hólavatni, sími 588 8899 og
Kristniboðssambandið, sími 533 4900.
Inga, Anna, Sveinn og Bragi Ingólfsbörn
Þórleifur Haraldsson
Þorvaldur, Björg og Anna Sigurðarbörn
og fjölskyldur.
Ástkær systir mín, föðursystir
og mágkona,
Guðrún Gunnarsdóttir
frá Reykjum í Fnjóskadal,
lést á Dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík þann
7. desember. Útförin fer fram frá Illugastaðakirkju
miðvikudaginn 16. desember kl. 14.00. Sætaferðir
verða frá Umferðarmiðstöðinni á Akureyri kl. 13.00.
Tryggvi Gunnarsson
Gunnar M. Guðmundsson
Þóra K. Guðmundsdóttir
Pálína Magnúsdóttir
Ástkær móðir mín, amma og lang-
amma,
Jóhanna Ólafsdóttir
Óðinsgötu 17,
lést á Droplaugarstöðum 6. desember. Útförin fer fram
frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 15. desember
kl. 15.00.
Björk Gísladóttir
Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir
Gísli Reginn Pétursson
Okkar yndislegi og ástkæri,
Karl Smári Guðmundsson
lést af slysförum 8. desember. Útför auglýst síðar.
Berglind Ármannsdóttir
Guðmundur Þór Karlsson
Auður Eir Guðnadóttir
Guðni Þór Guðnason
Birgitta Líf Magnúsdóttir
Guðmundur Heiðmar Karlsson
Guðrún Halldórsdóttir
systkini og fjölskyldur.
Fyrrverandi eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ásgeir Sæmundsson
frá Selparti,
andaðist á Fossheimum Selfossi laugardaginn 5. desem-
ber. Útförin fer fram laugardaginn 12. desember
frá Villingaholtskirkju kl. 11.00.
Magnea Sigurbergsdóttir
Guðbrandur Gíslason
Anna Lísa Andersen
Sæmundur Ásgeirsson
Ólína Ásgeirsdóttir Alexander Hafþórsson
Bragi Ásgeirsson Petra Nicola Deutrich
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Hlíf Þórbjörg Jónsdóttir
Dvalarheimilinu, Grund, áður
Unnarbraut 28, Seltjarnarnesi,
andaðist þriðjudaginn 8. desember. Minningarathöfn
verður í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 15. desem-
ber kl. 15.00. Útfararathöfn verður frá Heydalakirkju í
Breiðdal laugardaginn 19. desember kl. 11.00. Jarðsett
verður í heimagrafreit á Þorvaldsstöðum.
Sigurjón Jónsson Helga Ágústína Lúðvíksdóttir
Guðný Elín Jónsdóttir Reynir Loftsson
barnabörn, barnabarnabarn og systkini.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Katrín Káradóttir
ljósmyndari, Boðahlein 5, Garðabæ,
sem lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn
1. desember, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík, mánudaginn 14. desember kl. 15.00. Blóm
og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands.
Eiríkur Svavar Eiríksson
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir Dirk Lubker
Steinunn Eiríksdóttir Þorsteinn Lárusson
Þóra Eiríksdóttir Ómar Guðjónsson
og barnabörn.
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.