Fréttablaðið - 11.12.2009, Síða 84
56 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
ath. kl. 16.
Stórvirki Kristjáns Árnasonar, þýð-
ingu á Ummyndunum Óvíds, verður
fagnað með málþingi í sal Reykja-
víkurAkademíunnar, Hringbraut 121,
4. hæð. milli kl. 16-18 í dag. Clar-
ence Glad, Halldór Björn Runólfs-
son og Hjalti Snær Ægisson flytja
stutt erindi. Kristján mun svo sjálfur
lesa úr þýðingu sinni á Ummyndun-
um auk þess sem lesið verður brot úr
þýðingu Espólíns á verkinu.
Kvikmyndafyrirtæki Lars
von Trier og Peters Aalb-
æk Jensen, Zentropa, er
komið að fótum fram eftir
sautján ára skrautlegan
og ævintýralegan feril. Í
liðinni viku var tilkynnt að
fyrirtækið drægi stórlega
saman og meira en helmingi
starfsmanna yrði sagt upp.
Jensen hefur tilkynnt að í
framtíðinni hyggist hann
einbeita sér að framleiðslu
kvikmynda í fimm löndum
Evrópu og Danmörk sé ekki
meðal þeirra.
Zentropa Entertainment stofnuðu
þeir Jensen og Trier 1992 og hefur
fyrirtækið framleitt 70 kvikmynd-
ir. Það var frá upphafi einn mik-
ilvægasti samstarfsaðili Friðriks
Þórs Friðrikssonar og segja sumir
að framleiðsluaðferð Friðriks, að ná
saman fjölda aðila víða um Evrópu,
hafi orðið þeim Zentropa-mönn-
um fyrirmynd að þeirra fjölþjóð-
lega neti en undir vængjum þess
starfa um hundrað fyrirtæki víða
um lönd. Í Börsen er greint frá að
við hafi blasið þegar í fyrra þegar
Nordisk Film, elsta starfandi kvik-
myndafyrirtæki Norðurlandanna,
keypti stóran hlut í Zentropa, að
fyrirtækið væri í erfiðleikum. Sala
á hlutum til starfsmanna í haust
hafi líka verið merki um að rekst-
urinn stæði tæpt.
Jensen fer ekki í launkofa með
ástæður falls Zentropa: hann seg-
ist geta ráðið fyrsta flokks kvik-
myndatökumann í fyrrum austan-
tjaldslöndunum fyrir 20 þúsund
danskar á á mánuði sem vinni
langan vinnudag, meðan danskur
tökumaður gangi út ef honum sú
boðnar 32 þúsund á viku og hann
vilji hætta vinnu eftir átta stunda
vinnudag. Í viðtali við Börsen
segir hann: „Ég er eins og lúdóspil-
ari með alla í höfn. Hringnum er
lokið og danski bíóbransinn er jafn
slappur og hann var þegar við byrj-
uðum fyrir sautján árum. Sögurn-
ar okkar eru sjálfgóðar og slappar.
Zentropa fær nýjan kraft ef ég kem
mér burt. Ég stóð mig illa í að stýra
fyrirtæki sem naut of mikillar vel-
gengni. Sat hjá þegar framleiðslu-
kostnaðurinn jókst og jókst.“
Gagnrýnendur segja megin-
ástæðu þessara vandræða einfalda:
á síðustu þrem árum hefur Zent-
ropa framleitt 14 kvikmyndir í Dan-
mörku og selt um 370 þúsund miða,
af því tok Antikristur inn 82 þús-
und miða. Meðaltal í aðsókn á mynd
er um 26 þúsund miðar sem dugar
ekki til. Önnur framleiðsla hefur
ekki bjargað fyrirtækinu. Til sam-
anburðar má geta þess að aðsókn-
armet síðustu ára í Danmörku er á
fjölskyldumyndina Far til fire sem
um 400 þúsund hafa séð.
Saga Zentropa er um leið saga
sigurgöngu dansks kvikmyndaiðn-
aðar liðna áratugi: von Trier var
einn af forgöngumönnum Dogma
og ruddi brautina fyrir aðra
danska leikstjóra. Samband hans
við íslenska listamenn hefur alltaf
verið sterkt: Karl Júlíusson hann-
aði útlit Breaking the Waves og hélt
áfram að vinna með Trier að Danc-
er in the Dark þar sem Björk náði
alþjóðlegum stjörnustatus. Sjón
kom að gerð handritsins með text-
um sínum. Þá léku þeir Benedikt
Erlingsson og Friðrik Þór í Direkt-
øren for det hele. Fyrirtækið varð
líka afkastamikið í sjónvarpsfram-
leiðslu: bæði Riget og Klovn eru á
verkaskrá þess. Á hinn bóginn
hefur Zentropa notið mikilla rík-
isstyrkja, ekkert framleiðslufyrir-
tæki hefur verið styrkt jafn ríku-
lega til framleiðslu. Því sæta þeir
Jensen og Trier miklu ámæli í
dönskum fjölmiðlum fyrir að hafa
greitt sér um 20 miljónir danskra
króna til tveggja einkahlutafélaga
sem þeir ráða yfir. Jensen segir
þær greiðslur hagnaðarhlut þeirra
eftir söluna til Nordisk og hafi það
verið ein meginforsenda fyrir söl-
unni til að tryggja þeim eftirlauna-
sjóði eftir 20 ára streð.
Danskir fjölmiðlar segja kom-
andi ár verða mikið örlagaár fyrir
danskan kvikmyndaiðnað í kjöl-
far þess að Jensen yfirgefi danska
framleiðslu, en Trier hefur verið
þögull um framtíðaráform sín.
Hann stefndi þegar í upphafi ferils
síns á alþjóðlegan markað þótt hann
hafi haft Danmörku sem starfstöð í
tvo áratugi.
Þá er hagur þeirra beggja nokk-
uð tryggur: Zentropa starfar í gam-
alli herstöð, Filmbyen, sem eitt fyr-
irtækja þeirra félaga á. Þar er falið
gríðarlegt verðmæti í lóðum og
byggingum vænkist hagur á dönsk-
um húsamarkaði sem er í maski um
þessar mundir.
pbb@frettabladid.is
ZENTROPA RIÐAR TIL FALLS
Tónlistarsetrið á Stokkalæk heldur áfram að lífga
upp á tónlistarlífið í Rangárþingi. Aðventan í Selinu
á Stokkalæk hófst með fiðlutónleikum Hlífar Sig-
urjónsdóttur sem tókust afar vel og voru hlý og eftir-
minnileg stund. Nú verður bætt um betur þegar þeir
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Víkingur
Heiðar Ólafsson píanóleikari koma fram á jóla-
tónleikum í Selinu á Stokkalæk fimmtudaginn 17.
desember næstkomandi kl. 20. Miðapantanir í síma
487 5512 eða 864 5870. Nokkrir miðar eru eftir.
Jólin á Stokkalæk verða svo hringd út með
píanótónleikum Hákonar Bjarnasonar, sem fyrir
skömmu varð sigurvegari í píanókeppni EPTA,
samtaka evrópskra píanókennara, sem haldin var
í salnum í Kópavogi. Hákon hlaut um svipað leyti
1.500.000 kr. í styrk úr Minningarsjóði um Birgi
Einarsson apótekara, sem hefur það hlutverk að
styrkja unga og efnilega píanóleikara til framhalds-
náms erlendis. Þessir tónleikar á þrettándanum, 6.
janúar 2010 kl. 20, eru haldnir í tengslum við þá
styrkveitingu. - pbb
Kristinn og Víkingur Heiðar
TÓNLIST Víkingur Heiðar og Kristinn Sigmunds-
son koma fram á Stokkalæk í næstu viku.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ GVA
> Ekki missa af …
Jólagjöf Tónlistarskólans á
Akureyri og Leikfélags Akur-
eyrar sem er ókeypis tónleikar
á morgun kl. 17.00 í Rýminu.
Þar koma fram Pálmi Gunnars-
son, Bryndís Ásmundsdóttir,
Jana María Guðmundsdóttir,
Ásta Magnúsdóttir, Dagmey
Björk Kristjánsdóttir, Ólafur
Ingi Sigurðsson auk tríós
Krissa Edelstein og Stórsveitar
Tónlistarskólans á Akureyri
undir stjórn Alberto Carmona.
Þeir sem vilja geta skilið eftir
jólagjafir undir jólatré í Rým-
inu. Gjöfunum verður komið
til barna sem minna mega sín.
Miðar verða afhentir í miða-
sölu Samkomuhússins.
Sýning um Einar H. Kvaran var
opnuð í Þjóðarbókhlöðu í gær í til-
efni af því að 150 ár eru liðin frá
fæðingu hans. Við það tækifæri
afhentu afkomendur Einars Lands-
bókasafni Íslands – Háskólabóka-
safni ýmis bréf hans, bækur, ljós-
myndir og fleira til varðveislu í
handritadeild safnsins.
Einar H. Kvaran var einn afkasta-
mesti rithöfundur á Íslandi í lok 19.
aldar og í upphafi þeirrar tuttug-
ustu. Hann er einn af brautryðj-
endum raunsæisstefnu í íslensk-
um bókmenntum og skáldsaga
hans Ofurefli sem kom út árið 1908
er fyrsta skáldsagan sem hefur
Reykjavík að sögusviði. Leikrit hans
Syndir annarra frá árinu 1915 gerist
einnig í Reykjavík. Einar var einn
af frumkvöðlum íslenskrar blaða-
mennsku og einn af sjö stofnfélög-
um Blaðamannafélags Íslands árið
1897. Hann var ritstjóri Lögbergs,
Ísafoldar, Norðurlands og Fjallkon-
unnar. Hann var einnig leikhúsmað-
ur og mjög virkur í starfi Leikfélags
Reykjavíkur, þar sem hann starfaði
bæði sem leikstjóri félagsins og for-
maður. Einar var einnig formaður
Sálarrannsóknarfélags Íslands og
ritstjóri tímaritsins Morguns sem
Sálarrannsóknarfélagið gaf út.
Einar Hjörleifsson fæddist í
Vallanesi í Fljótsdal 6. desember
1859. Hann lauk stúdentsprófi árið
1881 og fór síðan til Kaupmanna-
hafnar til náms. Einar varð boð-
beri nýrra tíma í skáldskap líð-
andi stundar ásamt félögum sínum
Gesti Pálssyni, Hannesi Hafstein og
Bertel E. Ó. Þorleifssyni en tíma-
ritið Verðandi, sem þeir gáfu út,
varð farvegur raunsæisstefnunnar
og hugmynda danska bókmennta-
fræðingsins Georgs Brandes til
Íslands.
Einar flutti frá Kaupmannahöfn
til Vesturheims árið 1885 ásamt
danskri eiginkonu sinni. Hann
missti konu sína og tvö börn á einu
ári meðan á Kanadadvölinni stóð
en giftist aftur íslenskri stúlku,
Gíslínu Gísladóttur. Þau eignuðust
fimm börn en misstu eitt.
Einar sneri aftur heim til Íslands
árið 1895. Hann lét til sín taka í
stjórnmálum og var framlag hans
til sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
umtalsvert, einkum á árunum frá
1907 og fram til þess að Ísland hlaut
fullveldi 1918.
Einar Hjörleifsson tók upp ættar-
nafnið Kvaran árið 1916. - pbb
Sýning helguð Einari
KVIKMYNDIR Antikristur,
hin umdeilda mynd, er
síðasti smellur Triers og
Jensens á heimaslóðum en
myndin er sigurstrangleg á
mörgum sviðum í árlegum
verðlaunum dönsku kvik-
myndaakademíunnar sem
eru fram undan.
MENNING Einar H. Kvaran, rithöfundur
og forgöngumaður á fyrri hluta síðustu
aldar um mörg mikilvæg mál í samfélagi
okkar.
M
YN
D
Z
EN
TR
O
PA
2. PRENTUN
VÆNTANLEG
Hörkuspennandi ævintýra-
saga sem fellur í kramið
hjá aðdáendum Harry Potter
og Artemis Fowl.
Fimmtán ára tvíburar í San Francisco
dragast inn í heim galdra og furðu-
vera með ódauðlega gullgerðarmann-
inn Nicolas Flamel fremstan í flokki.
Fyrsta bókin í metsölubókaflokki sem
verið er að kvikmynda.
hinn ódauðlegi