Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 86
58 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Tónlist ★★
Kampavín
Helgi Björns
Vín og villtar meyjar
Helgi Björns hefur verið manna iðnastur við
tökulögin undanfarin ár og sendir nú frá sér
plötu með bandarískum rythmablúslögum frá
miðri síðustu öld. Um undirspil sjá Kokteil-
pinnarnir, hópur valinkunnra tónlistarmanna,
og íslenskir textarnir eru í höndum þeirra
Davíðs Þórs Jónsonar, Dr. Gunna og og Þórð-
ar Árnasonar, auk þess sem Baggalúturinn
Bragi Valdimar Skúlason (Þorsteinn Eggerts-
son 21. aldarinnar, í jákvæðustu mögulegu
merkingu) semur nokkra texta eins og á
fjölmörgum öðrum plötum sem komið hafa
út á árinu. Umfjöllunarefnin eru sígild, konur og vín, og eru fæstir textarnir
kandídatar fyrir bókmenntaverðlaun Nóbels. Það kemur þó ekki að sök þar
sem kæruleysið hentar verkefninu ágætlega.
Bagalegra er að útsetningar og hljóðfæraleikur komast sjaldnast upp úr
fyrsta gír á plötunni. Vissulega eru lögin framreidd af ýtrustu fagmennsku
en skortir heldur gleðina og kraftinn, sem er galli sem vafalaust hverfur eins
og dögg fyrir sólu þegar upp á svið er komið. Fyrir vikið verða lögin heldur
keimlík, platan í heild full einsleit og rislítil og stemningin minnir á köflum
fremur á góða fermingarveislu en partí.
Löngu er orðið ljóst að Helgi er góður söngvari sem býr yfir persónu- og
auðþekkjanlegri rödd og á til að fara á kostum. Svo virðist sem sú tegund
tónlistar sem tekin er fyrir á Kampavíni henti honum verr en flestar aðrar, í
það minnsta í hljóðveri, því söngurinn er almennt heldur blæbrigðalaus á
plötunni. Þó eru undantekningar á. Helgi fer á flug í nokkrum lögum, nær
góðri tilfinningu í Ég bið þig og fer vel með Ég finn á mér og Þú gengur fram
af mér. Best finnur hann sig samt í falda aukalaginu I‘d Rather Go Blind,
enda fellur soul-blærinn eins og flís við rass að hrjúfri röddinni. Þá kemur
söngkonan Bryndís Ásmundsdóttir sterk inn í dúettinum Ég sýp þig.
Löngum hefur þótt töff að syngja drykkjuvísur í ætt við þær sem finna má
á Kampavíni. Platan er nær því að vera skemmtilega hallærisleg, en hefði
líklega virkað enn betur ef skrúfað hefði verið betur frá. Kjartan Guðmundsson
Niðurstaða: Ágætis tökulagaplata, en heldur rislítil og vantar upp á fílinginn.
Svínvirkar eflaust á sviði.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 11. desember 2009
➜ Tónleikar
16.00 Nemendur Tónlistarskólans
á Akureyri halda stutta tónleika í
Eymundsson við Hafnarstræti á Akur-
eyri.
19.30 Aðventutónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Háskólabíói við
Hagatorg. Flutt verður hátíðartónlist og
vinsæl jólalög. Einsöngvarar: Ingibjörg
Guðjónsdóttir og Gissur Páll Gissur-
arson.
20.30 Í Reykholtskirkju verða haldnir
aðventutónleikar í boði kóra í héraði og
Reykholtskirkju.
22.00 Sniglabandið flytur lög af jóla-
plötunni „jól meiri jól“ á tónleikum
á Græna hattinum við Hafnarstræti á
Akureyri. Húsið verður opnað kl. 21.
23.30 Hjaltalín heldur
tónleika á Sódómu
Reykjavík við Tryggva-
götu. Snorri
Helgason
sér um upp-
hitun. Húsið
verður opnað
kl. 23.
➜ Opnanir
16.30 Í Þjóðarbókhlöðunni við Arn-
grímsgötu verður opnuð sýning um
Einar H. Kvaran, rithöfund, leikstjóra
og blaðamann. Þar standa einnig yfir
jólasýning í þjóðdeild og kreppusýning
á ganginum. Opið mán.-fös. kl. 8.15-22
og lau.-sun. kl. 10-18.
17.00 Þórarinn Örn Egilsson opnar sýn-
ingu í sýningarsalnum Hurðir, VIRTUS,
Laugavegi 170 (3. hæð). Opið alla daga
kl. 9-16.
➜ Síðustu forvöð
Í Listasafni Reykjanesbæjar við Duus-
götu stendur yfir sýning á verkum í eigu
Landsbankans. Um er að ræða 30 mál-
verk frá tímabilinu 1900-1990 eftir ýmsa
af helstu listamönnum þjóðarinnar. Sýn-
ingu lýkur á sunnudag. Opið virka daga
kl. 11-17 og um helgar kl. 13-17.
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, Hrafnhild-
ur Arnardóttir og Þorbjörg Halldórsdóttir
hafa opnað sýninguna „Evudætur“ í
Listasafninu á Akureyri við Kaupvangs-
stræti. Sýningu lýkur á sunnudag. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 12-17
Í Artóteki á 1. hæð Borgarbókasafns
við Tryggvagötu stendur yfir sýning á
verkum Soffíu Sæmundsdóttur. Sýningu
lýkur á sunnudag. Opið mán.-fim. kl.
10-19, fös. kl. 11-19 og um helgar kl.
13-17.
Hinir árlegu jólatónleik-
ar Graduale Nobili verða
sunnudagskvöldið 13.
desember kl. 22 í Lang-
holtskirkju. Stjórnandi er
Jón Stefánsson. Flutt verða
verkin „Dancing Day“ eftir
John Rutter og „Ceremony
of Carols“ eftir Benjamin
Britten. Þeir Britten og
Rutter eru meðal fremstu
tónskálda okkar tíma.
Graduale Nobili var stofnaður
haustið 2000 og er skipaður 24
stúlkum völdum úr hópi þeirra
sem sungið hafa með Graduale kór
Langholtskirkju. Kórinn hefur
hlotið hástemmt lof gagnrýnenda,
unnið til verðlauna í alþjóðlegum
kórakeppnum og verið tilnefndur
til Íslensku tónlistarverðlaunanna
og Menningarverðlauna DV. Síð-
astliðið sumar hreppti kórinn silf-
ur í flokki kammerkóra og brons
í flokki kvennakóra í Llangollen í
Wales þar sem allir bestu kórar álf-
unnar keppa.
Á efnisskránni á sunnudag eru
tvö verk fyrir kvennakór og hörpu,
hið fyrra, „Dancing Day“ var frum-
flutt i dómkirkjunni í Coventry 26.
janúar 1974. Verkið er byggt á sex
jólasöngvum við latneska og enska
texta, m.a. hið þekkta lag „Coventry
Carol“. Höfundur þess, John Rutter,
er fæddur í London hinn 24. sept-
ember 1945. Hann er eitt af þekkt-
ari tónskáldum samtímans. Rut-
ter er frægastur fyrir jólasöngva.
Söngvar hans eru sérstaklega vin-
sælir í hinum enskumælandi heimi
og í þættinum „Today Show“ á
bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC
var hann til dæmis kallaður „mesta
núlifandi tónskáldið og stjórnandi
kórtónlistar“. Um jólasöngva segir
Rutter: „Smáir hlutir hafa alla tíð
heillað mig og jólasöngvar eru eins
konar samþjappað form tónlistar.
Mér finnst þeir vera heillandi litl-
ir hlutir sem snerta fólk í einfald-
leika sínum.“
Seinna verkið er „Ceremony
of Carols“ eftir Benjamin Brit-
ten (1913-1976). Britten samdi
þetta undursamlega jólaverk
eftir þriggja ára happasæla dvöl í
Bandaríkjunum. Hann tók sér far
heim um miðjan mars árið 1942
með sænsku flutningaskipi. Ferð-
in tók nærri mánuð og lenti hann í
allmiklu volki. Í ferðinni hóf hann
að semja þetta verk fyrir þríradda
kór og hörpu.
Jólatónleikar Gradualekórs-
ins í Langholtskirkjusókn hafa
lengi verið sóknarbörnum og gest-
um þeirra til ómældrar gleði í
skamm deginu. Sóknin hefur um
áratugaskeið lagt ríka áherslu á
tónlistarstarf og skilað samfélag-
inu langt út fyrir sóknina miklu
yndi og ánægju eins og vísast má
ganga að á sunnudag.
Miðasala er í kirkjunni.
pbb@frettabladid.is
Jólakeimur úr Langholtinu
TÓNLIST Graduale Nobili, kvennakór í Langholtskirkju, heldur tónleika á sunnudag.
Fyrsta leikna grænlenska kvik-
myndin í fullri lengd er komin í
keppni á Sundance-kvik-
myndahátíðinni sem verð-
ur haldin í janúar, segir í
fréttum frá Ritzau. Mynd-
in heitir Nuummioq, sem
þýðir Nuuk-búi, var
frumsýnd í Nuuk hinn
30. október og keppir í
deildinni Heimsmyndir
við þrettán aðrar. Mynd-
ina framleiddi fyrir-
tækið 3900 Pictures. Í
myndinni segir af ungum manni
sem hefur fundið ást lífs síns en
kemst þá að því að hann er með
ólæknandi sjúkdóm.
Mikil viðurkenning felst í að
komast í keppnina á Sundance
en hátíðin hefur reynst
evrópskum kvikmynd-
um gæfurík og opnað
mörgum þeirra aðgang
að hinum stóra banda-
ríska markaði . Þá
hefur verið tilkynnt að
danska heimildarmynd-
in sem var verðlaunuð
hér í Reykjavík í haust
á Nordisk Panorama,
Rauða kapellan eftir Mads
Brugger, keppi þar í flokki heim-
ildarmynda. Sundance stendur
fram í síðustu vikuna í janúar.
- pbb
Grænlensk mynd
fer á Sundance
ÓFALSAÐ / FALSAÐ
Skyggnst á bak við tjöldin. Þekkir þú muninn á frumgerð og fölsun?
ragna sigurðardót tir kynnir
skáldsögu sína Hið fullkomna landslag
í Listasafni Íslands, laugardaginn
12. desember kl. 14.
lafur Ingi Jónsson forvörður fræðir
esti um málverkafalsanir á Íslandi.
erið velkomin!