Fréttablaðið - 11.12.2009, Síða 88
60 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Dan Brown er án efa í flokki vin-
sælustu rithöfunda allra tíma. Bók
hans Da Vinci-lykillinn hefur selst
í yfir áttatíu milljónum eintaka
á heimsvísu og nýjasta bók hans,
Týnda táknið, skaust beint í efsta
sæti metsölulista New York Times
þegar hún kom út nú í haust og sat
þar samfleytt í sjö vikur. Bókin
kom út á íslensku í lok nóvember
hjá bókaforlaginu Bjarti og hefur
hlotið fádæma góðar viðtökur hjá
íslenskum lesendum. Ásta Sóllilja
Guðmundsdóttir hitti Dan Brown í
miðborg Manhattan í síðustu viku
og ræddi við hann um ritstörf hans,
nýju bókina og áhuga hans á Frí-
múrarareglunni. Dan Brown segist
langa að heimsækja Ísland og telur
að hér gæti hann jafnvel fundið
efnivið í nýja bók.
Það er eins og Dan Brown sé nýstiginn upp
úr ljósmyndinni sem má finna á kápubroti
Týnda táknsins. Hann er rauðbirkinn með
hökuskarð, íklæddur tweed-jakkanum sem
er bæði eitt helsta einkennismerki hans og
aðalpersónu bóka hans, Roberts Langdon.
Þegar ég heilsa þessum mikla metsöluhöf-
undi í höfuðstöðvum Doubleday-útgáfunn-
ar á Manhattan kemur táknfræðingurinn
snjalli ósjálfrátt upp í hugann. Það liggur
því beint við að spyrja hvort Dan Brown
sé sjálfur fyrirmynd aðalsöguhetju sinnar.
„Þetta er erfið spurning,“ segir Dan Brown
og kímir. „Ætli Langdon sé ekki sú mann-
eskja sem ég vildi óska að ég væri sjálfur.
Hann er gáfaðri en ég, lifir áhugaverðara
lífi og er mun hugrakkari en ég. Við eigum
það þó sameiginlegt að hafa báðir brennandi
áhuga á táknum, fornum sögum, dulspeki og
menningarsögu almennt.“
Löng meðganga
Sex ár liðu frá útgáfu Da Vinci-lykilsins
þar til Týnda táknið kom út nú í haust.
Bæði lesendur og útgefendur var að vonum
farið að lengja eftir nýrri bók um Robert
Langdon. Ýmsir héldu því fram að ritstífla
hrjáði höfundinn. Hann blæs á allar slíkar
getgátur og segir ástæðu þessarar löngu
meðgöngu vera þá víðtæku rannsóknar-
vinnu sem liggi að baki bókinni.
„Ég vann að bókinni sjö daga vikunnar
samfellt í sex ár. Allan þann tíma tók ég
mér einungis tíu daga frí frá skriftunum.
Ég hef tamið mér að vakna alla morgna
klukkan fjögur og skrifa til hádegis og
hélt þeim hætti jafnvel á jóladag undan-
farin ár.“
„Skriftirnar eru að mörgu leyti erfiðar
og tímafrekar, ekki síst vegna þess að ég
umskrifa mikið. Fyrir hverja blaðsíðu sem
endaði í Týnda tákninu eru tíu síður sem
ég skrifaði en notaði ekki.“
Það hefur einnig skapað eftirvæntingu
hjá lesendum hversu vel Dan Brown hefur
tekist að halda efni bóka sinna leyndu allt
fram að útgáfudegi. Aðspurður segist hann
hafa frétt af því að óþreyjufullur lesandi
hafi brotist inn á skrifstofur bókaforlags-
ins Bjarts í Reykjavík og stolið próförk að
íslenskri þýðingu Týnda táknsins nokkru
fyrir útgáfudag bókarinnar. „Að sjálfsögðu
er ég ánægður með að fólk bíði spennt eftir
að lesa bækur mínar. En öllu eru takmörk
sett. Ég vil síður að aðdáendur mínir kom-
ist í kast við lögin,“ bætir hann við og
hlær.
Vísindagrein í sókn
Við lestur Týnda táknsins veltir maður því
fyrir sér hversu stór hluti bókarinnar sé
sannleikanum samkvæmt.
„Persónurnar í bókinni eru skáldskapur
en heimurinn sem þær hrærast í er raun-
heimurinn,“ segir Dan Brown.
„Allir staðir sem ég fjalla um eru til í raun
og veru. Sem dæmi má nefna að Safnaaðstoð
Smithsonian-stofnunarinnar er til og hefur
að geyma risasmokkfisk, loftstein og blaut-
skemmu, eins og lýst er í bókinni. Helgiat-
hafnir sem lesandinn verður vitni að eiga
sér einnig stað í raunveruleikanum. Aftur á
móti er Peter Solomon ekki til og ekki held-
ur sonur hans Zachary.“
En eru hugaraflsfræðin viðurkennd vís-
indagrein?
„Ég rannsakaði þessa vísindagrein árum
saman og var satt að segja ansi hikandi til
að byrja með. Það tók mig langan tíma að
átta mig á því að hugaraflsfræði eru alvöru
vísindi. Hver einasta vísindatilraun sem
ég lýsi í bókinni hefur raunverulega verið
gerð og niðurstöðurnar eru viðurkenndar.
Þetta hefur ekki síst komið mörgum amer-
ískum lesendum mínum mjög á óvart: „Ha,
hefur mönnum tekist að vigta mannssálina?
Er með hugarorkunni einni saman hægt að
hafa áhrif á hvers konar kristallar mynd-
ast í ís? Hvernig getur þetta staðist?“,“ segir
Dan Brown og bætir svo við: „Ég er hand-
viss um að hugaraflsfræði muni vaxa hrað-
ast allra vísindagreina næstu árin og eigi
eftir að kollvarpa því hvernig við lítum á
vísindi hugans.“
Dan Brown segist efast um að mann-
fólkinu takist að höndla slíka vitneskju af
ábyrgð. „Sagan kennir okkur að menn finni
ávallt leið til að nota nýja þekkingu og tækni
til ills. Þetta viðhorf vegur þungt í persónu
Mal’aks, illmennisins í Týnda tákninu. Séu
fornir leyndardómar jafn voldugir og ég hef
trú á, þá er kannski ekki nema von að þeim
hafi verið haldið leyndum. Komist slík þekk-
ing í hendur manna sem skortir andlegan
þroska til að hagnýta þekkinguna til góðs
er voðinn vís.“
Innblásinn af fræðunum
„Það einfaldar starf rithöfundar eins og mín
að þurfa einungis að fá góða hugmynd í koll-
inn á sex ára fresti,“ segir Dan Brown og
brosir. „Ég fæ innblástur úr öllu því sem ég
læri við skriftirnar. Mér finnst til dæmis
heillandi að uppgötva að í miðju bandaríska
þinghúsinu skuli vera málverk sem sýnir
George Washington stíga til himins sem
guð. Slík uppgötvun og rannsóknarvinnan
sem fylgir í kjölfarið heldur mér við efnið
í marga daga. Ég les mér til um verkið og
táknin sem þar er að finna og glími við að
miðla upplýsingunum áfram til lesenda
minna á spennandi hátt. Það er mjög gef-
andi þegar mér tekst að skemmta lesendum
mínum og fræða þá um leið.“
Dan Brown segist gefa sér lítinn tíma til
að lesa skáldsögur. Hann lesi helst fræði-
bækur sem tengist viðfangsefni sínu hverju
sinni. Aðspurður segist hann þó eiga sér
marga uppáhalds höfunda. Þeirra á meðal
nefnir hann John Steinbeck, William Shake-
speare og Robert Ludlum. Ég spyr hvort
hann þekki eitthvað til norrænna sakamála-
sagna. Hann þekkir hvorki Arnald Indriða-
son né Yrsu Sigurðardóttur en segist hafa
byrjað á bókinni Stúlkan sem lék sér að eld-
inum eftir Stieg Larsson. „Upphafskafli bók-
arinnar var svo óhugnanlegur að ég lagði
hana fljótlega frá mér og hef ekki komið
mér til að lesa lengra.“
Robert Langdon til Íslands?
Dan Brown segir að næsta bók sé þegar
byrjuð að gerjast í kollinum á sér og stað-
festir að Harvard-prófessorinn Robert
Langdon komi þar við sögu eins og fyrri
daginn. Orðrómur hefur verið uppi um að
næsta bók muni gerast í Rússlandi. Dan vill
hvorki játa því né neita en viðurkennir að
sér finnist Hermitage-safnið í St. Péturs-
borg vera stórfenglegt.
Ég spyr hvort hann hafi kynnt sér nor-
rænar goðsagnir og heiðin tákn. Megum við
eiga von á Robert Langdon í heimsókn?
„Það er ekki útilokað,“ segir Dan Brown.
„Robert Langdon hefur brennandi áhuga á
goðsögnum, táknum og baráttu góðs og ills.
Einn helsti kostur þess að skrifa um slík-
an táknfræðing er einmitt sá að hann getur
borið niður hvar sem er í heiminum. Nor-
ræn saga er sannarlega rík af slíkum efni-
viði svo það er aldrei að vita.“
Að lokum biður Dan Brown að heilsa
íslenskum aðdáendum sínum, segir sig
langa mikið til að heimsækja landið og
bætir við: „Hver veit nema ég finni efni í
næstu bók á Íslandi?“ astasollilja@gmail.com
Látlaus vinna sjö daga vikunnar í sex ár
BÓKMENNTIR Dan Brown í Róm sem er sögusvið engla og djöfla. Hin kirkjulega og guðfræðilega veröld tákna og miða hefur reynst honum drjúgt söguefni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Í LEIT AÐ LAUSN Tom Hanks og Audrey Tautou í kvikmyndinni sem gerð var eftir metsölubók Browns um
Da Vinci-lykilinn. Hanks hefur lýst áhuga á því að leika Robert Langdon í kvikmynd um Týnda táknið .
HEILLAÐUR AF FRÍMÚRURUM
Týnda táknið hefst á því að Robert Langdon er boðaður til Washington til að halda erindi í þing-
húsi Bandaríkjanna. Fyrr en varir dregst hann inn í óhugnanlega atburðarás sem leiðir hann um
óvæntar slóðir Washington-borgar, og inn í leynilegan heim frímúrara og framsækinna vísinda.
Hvað var það við frímúrara sem heillaði Dan Brown svo mjög?
„Um allan heim þjarkar fólk um það hver þekki Guð best og örlítil frávik í skilningi fólks á
almættinu valda sorglegum átökum og manndrápum. Frímúrarareglan sameinar fólk af ólíkum
trúarbrögðum og skapar því vettvang til að tilbiðja almættið sem bræður, hlið við hlið. Frímúrarar
sameinast í trú á æðri máttarvöld, þeir trúa á skapara alheimsins en hengja sig ekki í hvað skuli
kalla hann. Ég dáist að slíkri víðsýni og umburðarlyndi. Jafnframt hef ég alltaf heillast af leynifé-
lögum og frímúrarar eiga sér mjög áhugaverðar helgiathafnir.“
Ég spyr Dan Brown hvort það sé ekki vandkvæðum bundið að rannsaka leynifélög eins og
Frímúrararegluna? Hann svarar því til að það velti á því hvaða upplýsingum sé sóst eftir hverju
sinni.
„Frímúrarar voru opinskáir varðandi hugmyndir sínar um siðferði, Guð og æðra vald. Þegar kom
að helgisiðum og leyniathöfnum varð hins vegar fátt um svör. „Viðbrögð frímúrara við bókinni
hafa verið blendin. Almennt eru þeir ánægðir með að hún skuli fjalla um sögu þeirra, siðfræði
og merkingarfræði af virðingu og aðdáun en þeir eru ekki eins hrifnir af því að bókin skuli ljóstra
upp ýmsu um helgiathafnir reglunnar.“
Sögusvið fyrri bóka Dan Brown hefur iðulega verið bundið við gamlar menningarborgir Evrópu.
Hafði Dan engar áhyggjur af því að lesendum þætti Washington ekki jafn spennandi og borgir eins
og Róm og París? Hann segir svo ekki vera. „Mér finnst Washington ekki síður hafa aðdráttarafl
en París eða Róm. Byggingarstíll borgarinnar er stórfenglegur og hún á sér merkilega sögu. Sú
staðreynd að musteri, kirkjur, undirgöng og grafhvelfingar fyrirfinnist í höfuðborg svo ungs lands
gerir sögusviðið enn meira spennandi, eða það finnst mér að minnsta kosti.“