Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 92
64 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ENN Á LAUSU
Leikarinn Robert Pattinson heldur
því enn fram að hann sé laus og lið-
ugur. „Ég er á lausu. Eiginlega er allt
sem hefur verið skrifað um einka-
líf mitt rangt. Ég held að það
sé vegna þess að í rauninni
er ekkert merkilegt að ger-
ast hjá mér.“ Hann segir líf
sitt aðallega snúast í kring-
um vinnu.
Útgáfufyrirtækið Kimi Records
heldur árlegan útgáfu- og jólafögn-
uð sinn á Sódómu Reykjavík laug-
ardaginn 12. desember. Þar stíga
á svið fimm hljómsveitir sem allar
hafa gefið út hjá Kimi á árinu. Þær
eru Sudden Weather Change, Ret-
rön, Morðingjarnir, Kimono og
Me, The Slumbering Napoleon.
Miðaverð er 1.000 krónur. Einnig
er hægt að borga 2.000 krónur og
fá plötu í kaupbæti.
Kimi Records ætlar einnig að
gefa áhugasömum jólasafnplötu á
rafrænu formi. Hún nefnist Jóla-
steik Kimi Records 2009 og inni-
heldur tvö lög frá hverri af þeim
hljómsveitum sem gáfu út hjá Kimi
á árinu. Plötuna má nálgast í vef-
búðum Kimi Records, www.kimir-
ecords.net og kimi.grapewire.net,
frá og með degi íslenskrar tungu
í dag.
Kimi í jólaskapi
SUDDEN WEATHER CHANGE Hljómsveit-
in Sudden Weather Change spilar á
tónleikunum á laugardaginn.
Bragi J. Ingibergsson, sókn-
arprestur í Víðistaðakrikju
í Hafnarfirði, var valinn
Digital-ljósmyndari ársins
af Photo Radar. Keppnin
er ein stærsta ljósmynda-
keppni ársins og er á vegum
Digital Camera Magazine.
Þetta er í þriðja sinn sem Bragi
tekur þátt en keppt er í tíu efnis-
flokkum. Auk þess að vera valinn
Digital-ljósmyndari ársins lenti
hann einnig í þriðja sæti í flokki
landslagsmynda. „Ég sendi inn
nokkrar myndir og tvær af þeim
komust í úrslit. Þetta er vissu-
lega mikill heiður og viðurkenn-
ing fyrir mig sem ljósmyndara
að hafa unnið þennan titil,“ segir
Bragi sem er nýkominn heim frá
London þar sem hann var stadd-
ur til að veita verðlaununum mót-
töku. Bragi segist hafa vitað áður
en hann fór út að hann ætti tvær
myndir í úrslitum en vissi þó ekki
að hann hefði unnið titilinn Digi-
tal-ljósmyndari ársins fyrr en dag-
inn sem verðlaunin voru afhent.
Spurður segir hann ljósmynd-
un hafa verið sitt aðaláhugamál
allt frá því hann var tólf ára gam-
all og fékk sína fyrstu myndavél.
Bragi er að eigin sögn sjálflærður
í ljósmyndun en hefur verið dug-
legur að lesa sér til bæði í tímarit-
um og á vefnum í gegnum tíðina.
„Ég hef mest verið að taka lands-
lags- og dýramyndir, það er það
sem mér finnst skemmtilegast að
mynda. Það er kannski vegna þess
að ég er alinn upp í sveit og mik-
ill náttúruunnandi og hef gaman
af göngum og útivist. Mér finnst
líka gott starfsins vegna að geta
farið út í kyrrðina og slakað á
endrum og sinnum. Starf sóknar-
prests er mjög gefandi en getur
oft verið tímafrekt því maður er á
vakt allan sólarhringinn,“ útskýr-
ir Bragi.
Í verðlaun hlaut hann 10.000
pund og segist Bragi reikna með
að endurnýja ljósmyndagræjur
sínar fyrir peninginn. Hann segir
ljósmyndun vera dýrt áhugamál
en hefur sjálfur verið lítið í því að
kaupa dýrar græjur.
„Ég á ágæta myndavél og tvær
góðar linsur, en það eru þær sem
skipta mestu máli. Ég reikna með
að kaupa mér nýja linsu fyrir verð-
launapeninginn, en ætli þetta fari
ekki fyrst og fremst í skuldir, það
er nóg til af þeim,“ segir hann og
hlær. sara@frettabladid.is
ÍSLENSKUR PRESTUR VAL-
INN LJÓSMYNDARI ÁRSINS
SIGURMYNDIN Þessi fallega ljósmynd af tveimur hestum á beit varð til þess að Bragi var valinn ljósmyndari ársins.
MYND/BRAGI INGIBERGSSON
LJÓSMYNDARI ÁRSINS Bragi J. Ingibergsson, sóknarprestur í Víðistaðakirkju, var
valinn Digital-ljósmyndari ársins af Photo Radar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐ
„Það er frí þetta árið en ég
vonast til að koma sterkur inn
á næsta ári,“ segir útvarps-
maðurinn Ólafur Páll Gunn-
arsson, eða Óli Palli á Rás
2. Rokklands-safnplata
hans sem hefur komið út
fyrir jól síðastliðin átta
ár, kemur ekki út í ár. Hin
alræmda kreppa hefur þar
töluvert að segja. „Ég hef
haft mikið að gera og for-
sendur hafa örlítið breyst.
Plötusala hefur dreg-
ist saman og það er ekki
hægt að segja að þetta
hafi verið mest seldu plöt-
urnar fyrir jólin,“ segir
Óli Palli. „Ég hef reynt
að hafa þetta vandaðar
útgáfur og í rauninni hefur
þetta verið eins og lítil bók
með músík. En þetta hefur
ekki verið að mokast út eins
og Jólagestir Björgvins, Páll
Óskar eða Bubbi. Og þegar
framleiðslan á diskunum
hækkar um helming er tæpt
að þetta hafist. Það vill eng-
inn borga með því sem hann
er að gera.“
Óli er hvergi nærri af baki
dottinn og stefnir á að halda
áfram með Rokklands-plöt-
urnar næstu árin. „Það komu
átta plötur í röð og ég vona að
næstu átta árin hefjist strax
á næsta ári. Ég er með mynd
af Dalai Lama fyrir aftan mig
og ég gefst aldrei upp, enda
hef ég svo gaman af þessu,“
segir hann og bætir við að
safnplöturnar séu góð viðbót
við útvarpsþáttinn Rokkland.
„Það er gaman að skapa eitt-
hvað, þótt það sé ekki merki-
legra en að raða saman lögum
á kassettur.“
- fb
Engin Rokklands-plata í ár
ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON
Engin Rokklands-plata
kemur út fyrir þessi
jól. Framleiðslu-
kostnaður hefur
tvöfaldast á
skömmum tíma.
ST
O
FA
5
3
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Jólasveinninn getur keypt
Friendtex bangsa til styrktar
Krabbameinsfélaginu
hjá okkur á 1.000.- krónur
Opið í dag mán-fös kl. 11-18, lau 11-16
Útsala á haust-
og vetrarlistanum
er hafi n!
Mikið úrval að
fallegum fatnaði