Fréttablaðið - 11.12.2009, Blaðsíða 94
66 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Íslenska tónlistarútrásin er
svo sannarlega ekki gjald-
þrota ef marka má áratuga-
lista bandaríska stórblaðsins
Rolling Stone. Fánaberar Ís-
lands koma þó ekki á óvart.
Ameríska stórblaðið Rolling Stone
hefur birt lista sinn yfir hundr-
að bestu plötur áratugarins. List-
inn er valinn af meira en hundrað
tónlistamönnum, blaðamönnum og
fólki úr bransanum. Þrjár íslenskar
plötur eru á þessum lista, sem verð-
ur að teljast glæsilegur árangur hjá
örþjóð. Sigur Rós á tvær plötur á
listanum, Ágætis byrjun er númer
29 og (svigaplatan) er númer 76.
Platan Vespertine með Björk er
svo númer 67.
Svo við montum okkur aðeins
þá er eina norræna platan önnur á
listanum með hinum sænsku The
Hives (Veni Vidi Vicious, númer
91). Milljónaþjóðin Frakkland er
jafn dugleg og við í poppinu og á
þrjá listamenn sem eru með plöt-
ur á listanum (Daft Punk - Dis-
covery númer 33, Phoenix - Wolf-
gang Amadeus Phoenix númer 60
og Manu Chao - Próxima Estación
Esperanza númer 65). Að öðru leyti
er nánast allt annað efni á listan-
um frá Bretlandseyjum og Norður-
Ameríku.
Ótvíræðir sigurvegarar eru
Thom Yorke og félagar í Radio-
head, sem eiga fjórar plötur á list-
anum, þar af þá bestu, Kid A. U2 og
Coldplay eiga þrjár plötur á band,
en auk Sigur Rósar með tvær plöt-
ur á lista Rolling Stone eru Bob
Dylan, The White Stripes, Emin-
em, Arcade Fire og Wilco.
Þrjár íslenskar plötur á
áratugalista Rolling Stone
BESTIR Á ÁRATUGNUM
Sigur Rós á tvær plötur á áratug-
alista Rolling Stone. Þeir verða
því að teljast besta hljómsveit
Íslandssögunnar. Thom Yorke
og félagar í Radiohead eiga
fjórar plötur á listanum, þar með
talið bestu plötuna, Kid A. Björk
Guðmundsdóttir á eina plötu á
þessum lista, Vespertine.
Við höfum fengið mikil viðbrögð
frá íbúunum í hverfinu og stæð-
ið verður fullt af bílum,“ segir
Steinunn Þórhallsdóttir formaður
3. hverfis, Hlíða, Holta og Norð-
urmýrar. Íbúar hverfisins ætla
að endurtaka svokallaðan Skott-
markað frá því í haust á bíla-
stæði Kjarvalsstaða á morgun
milli klukkan 12 og 14. Á skott-
markaði er heimilisbíllinn notað-
ur sem sölubás og getur fólk selt
allt milli himins og jarðar úr bíl-
skottum sínum, en viðburðurinn
er ókeypis og opinn öllum.
„Stefnan að þessu sinni er að
hafa það dálítið jólalegt. Allir
luma á gömlu dóti sem þeir eru
hættir að nota en gæti reynst dýr-
mætt í jólapakkann eða skóinn.
Einnig hvetjum við þá sem hafa
föndrað eða bakað of mikið fyrir
jólin að mæta og selja það sem
ekki kemst í smákökudunkana,“
útskýrir Steinunn. „Eins eru jóla-
föt barnanna frá fyrri árum oft
óslitin og þjóðþrifaverk að koma
þeim í notkun að nýju,“ bætir hún
við.
„Allir eru hjartanlega velkomn-
ir, einstaklingar, foreldrafélög, og
félagasamtök og við hvetjum alla
til að mæta, stuðla að endurnýt-
ingu verðmæta og ekki síst til að
skapa gleði og samkennd í hverf-
inu okkar og borginni,“ segir
Steinunn, en áhugasamir geta
tekið frá stæði með því að senda
póst á skottmarkadur@gmail.com.
- ag
Skottmarkaður við
Kjarvalsstaði
JÓLAMARKAÐUR Í BÍLSKOTTI Íbúar 3. hverfis, Hlíða, Holta og Norðurmýrar ætla
að endurtaka Skottmarkað frá því í haust á bílastæði Kjarvalsstaða á morgun milli
klukkan 12 og 14. MYND/OTTÓ ÓLAFSSON
BESTU PLÖTUR ÁRATUGARINS SAMKVÆMT
ROLLING STONE
1. Radiohead - Kid A
2. The Strokes - Is This It
3. Wilco - Yankee Hotel Foxtrot
4. Jay-Z - The Blueprint
5. The White Stripes - Elephant
6. Arcade Fire - Funeral
7. Eminem - The Marshal Mathers
LP
8. Bob Dylan - Modern Times
9. M.I.A. - Kala
10. Kanye West - The College
Dropout
Bandaríska leikkonan Lindsay
Lohan heldur því fram á Tweet-
er-síður sinni að hún hafi bjargað
fjörutíu mannslífum á Indlandi.
Lindsay er þar á vegum BBC til
að gera heimildarmynd um man-
sal og segir jafnframt að starf
hennar sé þegar farið að bera
árangur. Lohan þarf nauðsynlega
á því að halda að lappa aðeins
upp á ímyndina eftir fremur
mögur ár í sviðsljósinu þar sem
allt hefur snúist um áfengi og
taumlaust líferni. „Þetta er það
sem lífið snýst um, þetta gerir
lífið þess virði að lifa því,“ held-
ur Lohan áfram.
Og leikkonan hvetur aðra til
að láta sitt ekki eftir liggja held-
ur koma þeim til hjálpar sem
minna mega sín. „Að einblína á
fræga fólkið og lygarnar er bara
blekking þegar við getum bjarg-
að börnum frá glötun.“ Linds-
ay mun fara frá Indlandi nú um
helgina en leikkonan hyggst
halda áfram að sinna góðgerðar-
starfsemi þegar hún snýr aftur
til Ameríku.
Bjargaði fjörutíu
mannslífum
VILL HJÁLPA Lindsay Lohan vill hjálpa
öðrum og einbeitir sér nú að því að
bjarga bæði konum og börnum frá
mansali á Indlandi. NORDIC PHOTOS/GETTY
Hljómsveitin Portishead frá Bristol á
Englandi hefur sent frá sér nýtt lag
sem nefnist Chase the Tear. Allur
ágóði lagsins rennur til mannrétt-
indasamtakanna Amnesty Inter-
national. Portishead er að undirbúa
sína fjórðu plötu sem kemur hugsan-
lega út seint á næsta ári. Þessi hröðu
vinnubrögð eru nýlunda fyrir aðdá-
endur sveitarinnar því þeir þurftu
að bíða í ellefu ár eftir þriðju plötu
sveitarinnar, Third, sem kom út í
fyrra. Hún fékk mjög góðar viðtökur
og þótti ein besta plata síðasta árs að
mati tónlistarsérfræðinga.
Amnesty fær nýtt lag
PORTISHEAD Nýtt lag frá ensku
hljómsveitinni er komið út.