Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 95
FÖSTUDAGUR 11. desember 2009 67
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns
verður dugleg við dansleikjahald á
næstunni eftir nokkurra mánaða
hlé. Fyrst spilar sveitin á Nasa á
laugardagskvöld og viku síðar, eða
19. desember, spilar hún á Sjall-
anum á Akureyri. Á milli jóla og
nýárs spilar Sálin síðan í Hvíta
húsinu á Selfossi og á gamlárs-
kvöld verður hún á Broadway. Á
nýárskvöld verður dansleikur á
Spot í Kópavogi og jólarispunni
lýkur síðan í Officeraklúbbnum í
Keflavík laugardagskvöldið 2. jan-
úar.
Sálin með jólarispu
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Sálin hans Jóns
míns verður dugleg við spilamennsku á
næstunni.
DANSLEIKIR SÁLARINNAR
12. des: Nasa, Reykjavík
19. des: Sjallinn, Akureyri
26. des: Hvíta húsið, Selfossi
31. des: Broadway, Reykjavík
01. jan: Spot, Kópavogi
02. jan: Officeraklúbburinn,
Keflavík
Nóg að gera hjá Ragga Bjarna
„Ég er alltaf eins og brjálæðingur úti um allar
trissur,“ segir söngvarinn ástsæli Raggi
Bjarna. Hann hefur í nógu að snúast þessa
dagana, eins og svo oft áður. Hann hefur
verið að syngja í Officeraklúbbnum í Kefla-
vík á jólahlaðborðum auk þess sem hann
kemur fram á dvalarheimilum aldr-
aðra og í afmælum. „Það hefur verið
heilmikið að gerast síðustu fimm ár,
eða síðan ég varð sjötugur,“ segir
Raggi, sem virðist sjaldan eða
aldrei hafa verið vinsælli.
Raggi er að fylgja eftir þrefaldri
safnplötu sinni, Komdu í kvöld, sem
kom út í haust á svipuðum tíma og
tvennir afmælistónleikar hans voru
haldnir í Laugardalshöllinni. Þeir
heppnuðust gríðarlega vel og verða
fyrir vikið gefnir út á mynddiski
um páskana. Á safnplötunni eru 69 bestu
lög Ragga frá 1953 til 2009, þar á meðal
hinir ódauðlegu slagarar Vertu ekki að
horfa svona alltaf á mig, Komdu í kvöld,
Fröken Reykjavík og Vorkvöld í Reykja-
vík.
Einnig er væntanleg heimildarmynd
um Ragga en undanfarið eitt og hálft
ár hefur hann verið eltur á röndum af
leikstjóranum Árna Sveinssyni.
- fb
RAGGI BJARNA Raggi hefur í nógu að
snúast um þessar mundir. Þrátt fyrir árin
75 er hann enn í hörkuformi.
Gisele Bundchen eignaðist lítinn
dreng í gær. Samkvæmt banda-
ríska tímaritinu People gekk fæð-
ingin vel, en settur fæðingardag-
ur var næstkomandi mánudagur.
Brasilíska ofurfyrirsætan, sem
er 29 ára, er gift bandaríska fót-
boltakappanum Tom Brady, en
þau gengu í það heilaga í febrú-
ar síðastliðnum. Drengurinn er
fyrsta barn Gisele en fyrir á Tom
tveggja ára soninn Jack úr fyrra
sambandi sínu við leikkonuna
Bridget Moynahan. Sjálf vildi
Gisele ekki vita kynið á barn-
inu, en Brady fékk að vita það og
var einn um þá vitneskju þar til
í gærdag. „Ég er sá eini sem veit
kynið. Pabbi minn spurði mig en
ég sagði honum ekki frá því. Það
er frekar góð tilfinning að vita
eitthvað sem enginn annar veit,“
sagði Brady stuttu fyrir fæðing-
una.
Eignuðust
strák
HAMINGJUSÖM Gisele Bundchen og
Tom Brady eignuðust dreng í gærdag og
gekk fæðingin vel.
Jo Wood, fyrrverandi eiginkona
Ronnies Wood, hefur staðfest við
fjölmiðla að hann sé hættur með
hinni barnungu fyrirsætu Ekat-
erinu Ivanóvu. Jo hefur jafnframt
lýst því yfir að Ronnie fái ekki að
stíga fæti inn fyrir hennar dyr.
„Hann er ekki velkominn aftur,“
sagði Jo í samtali við Daily Mail.
Jo og Ronnie, sem er liðsmaður
The Rolling Stones, voru gift í 23
ár þegar þau skildu fremur óvænt
eftir að Ronnie vildi yngja aðeins
upp.
Nýverið var síðan greint frá
því að rússneska fyrirsætan og
Ronnie ættu ekki skap saman
og var stónsarinn meðal annars
handtekinn á heimili þeirra eftir
að hafa slegið til Ivanóvu. En nú
er þetta ástarævintýri Ronnies
úti og hann nagar sig eflaust í
handarbökin fyrir að hafa eyði-
lagt svona langlíft hjónaband sem
er nú álíka sjaldgæft í skemmt-
anabransanum og hvítir hrafnar.
Fær ekki að
snúa aftur
EINN Ronnie Wood er einn eftir að hafa
sagt skilið við Ivanóvu. Jo Wood, fyrrver-
andi eiginkona hans, vill ekki sjá hann
aftur. NORDIC PHOTOS/GETTY