Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 100
72 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Tónlistarmaðurinn Elton
John og leikkonan Judy
Garland hafa verið kjörin
mestu átrúnaðargoð allra
tíma í nýrri skoðanakönnun
sem var gerð á meðal sam-
kynhneigðra.
Elton John giftist kærasta sínum til
langs tíma, David Furnish, í borg-
aralegri athöfn fyrir fjórum árum.
Söngvarinn hefur notið mikilla vin-
sælda um árin og kemur valið því
kannski lítið á óvart. Á meðal ann-
arra sem komust á karlalistann
voru Freddie Mercury, hinn sálugi
söngvari Queen, leikarinn Stephen
Fry og tónlistarmaðurinnn George
Michael. Eini gagnkynhneigði mað-
urinn á listanum er metrómaðurinn
og fótboltatöffarinn David Beckham
sem hefur bæði spilað í Bandaríkj-
unum og á Ítalíu að undanförnu.
Valið á Judy Garland, sem lést
árið 1969 aðeins 47 ára, kemur held-
ur ekki á óvart. Þrátt fyrir gagnkyn-
hneigð sína hefur hún lengi verið í
guðatölu hjá samkynhneigðum.
Spilar þar inn í stuðningur henn-
ar við réttindabaráttu homma í
Bandaríkjunum auk þess sem eftir-
minnileg frammistaða hennar sem
Dorothy Gale í söngvamyndinni vin-
sælu The Wizard of Oz hefur ekki
skemmt fyrir. Athygli vekur að dótt-
ir hennar, leik- og söngkonan Lisa
Minnelli, kemst einnig á listann. Á
kvennalistanum fengu fleiri frægar
gagnkynhneigðar söngkonur einn-
ig góða kosningu, þar á meðal Kylie
Minogue, Madonna og Cher. Þær
eru allar þekktar fyrir djarfa og
skrautlega sviðsframkomu og virð-
ist það hafa höfðað vel til þeirra sem
tóku þátt í könnuninni. „Það vekur
athygli að aðeins einn af körlunum
sem komust á topp tíu listann er
gagnkynhneigður, David Beckham.
Á sama tíma eru flestar konurnar
sem urðu fyrir valinu gagnkyn-
hneigðar,“ sagði talsmaður Onepoll,
sem framkvæmdi könnunina.
Hollywood-stjarnan Marilyn
Monroe fær einnig sinn sess á listan-
um. Hún hefur ávallt notið vinsælda,
jafnt hjá gagn- og samkynhneigðum,
enda þótti hún kynþokkafull með
eindæmum þegar hún var uppi.
Garland og Elton
John í guðatölu
ÞESSI VORU NEFND Á NAFN
Flestir samkynhneigðir völdu Judy
Garland sem mesta átrúnaðargoðið í
kvennaflokki. Kylie Minogue komst
einnig á þann lista. Elton John er
helsta átrúnaðargoðið í karlaflokki
ásamt David Beckham.
KARLKYNS
ÁTRÚNAÐARGOÐ
1. Elton John
2. Freddie Mercury
3. Stephen Fry
4. George Michael
5. Oscar Wilde
6. Will Young
7. Alan Carr
8. Paul O’Grady
9. Boy George
10. David Beckham
KVENKYNS
ÁTRÚNAÐARGOÐ
1. Judy Garland
2. Kylie Minogue
3. Madonna
4. Cher
5. Liza Minelli
6. Marilyn Monroe
7. Shirley Bassey
8. Lily Savage
9. Dusty Springfield
10. Barbra Streisand
Michael Jackson-bræðurnir
fjórir, þeir Marlon, Tito, Jerma-
ine og Jackie, tilkynntu í spjall-
þætti Larry King á CNN nýver-
ið að þeir hygðust koma saman
sem Jackson Four og fara í kjöl-
farið í tónleikaferð um heiminn
á næsta ári. Slíkt tónleikahald
yrði til minningar um bróður
þeirra, Michael, sem lést langt
fyrir aldur fram í júní á þessu
ári. „Í fjörutíu ár höfum við átt
stuðning aðdáenda og við skuld-
um þeim frábæra tónleika,“
sagði Jackie við Larry King.
„Við viljum bara fara upp á svið
og skemmta okkur,“ bætti Jerm-
aine við.
Í viðtalinu kemur jafnframt
fram að þeir hafi frétt af and-
láti bróður síns í gegnum fjöl-
miðla. Einn vegfarandi vatt sér
meira að segja að Jackie og sagði
honum að Michael Jackson væri
dáinn. Vegfarandinn vissi ekki
við hvern hann var að tala. „Ég
sá þetta á CNN,“ sagði Jerma-
ine.
Jackson 4 snúa aftur
Í TÓNLEIKAFERÐ Jackson-bræðurnir fjórir, þeir Tito, Marlon, Jermaine og Jackie, ætla í
tónleikaferð um heiminn á næsta ári. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Hin unga söngkona Miley Cyrus
ætlar að endurgera rokkballöð-
una Every Rose Has It‘s Thorn
sem hárprúða hljómsveitin
Poison gerði vinsælt á sínum
tíma. Cyrus hefur eytt mikl-
um tíma í hljóðveri ásamt Bret
Michaels, söngvara Poison, við
upptökur á laginu. „Every Rose
er eitt af uppáhaldslögum Miley,“
var haft eftir Trish Cyrus, móður
Miley.
Miley sjálf sagðist hlakka til
þess að verða eldri og geta hætt
að syngja popptónlist og einbeitt
sér heldur að þeirri tónlist sem
hún sjálf hefur unun af. „Ég er að
eldast og aðdáendur mínir líka,
það þýðir að bráðum fæ ég frelsi
til að gera framsæknari tónlist.“
Endurgerir
rokkballöðu
FRAMSÆKNARI MILEY Miley Cyrus ætlar
að endurgera gamla rokkballöðu.
Myndlistarmaðurinn og rithöfund-
urinn Hugleikur Dagsson mun rappa
ásamt hljómsveitinni Human Woman á
tónlistarhátíðinni Jól Jólsson sem verður
haldin á Hótel Íslandi 18. desember. Human
Woman er ný hljómsveit þeirra Jóns Atla
Helgasonar og Gísla Galdurs Þorvaldssonar.
Jón Atli hefur áður spilað með hljómsveit-
um á borð við Hairdoctor, Bang Gang
og Fídel. Gísla Galdur þekkir fólk úr
sveitum á borð við Trabant, Mot-
ion Boys og Ghostigital. Hugleik-
ur hefur áður getið sér orð á tón-
listarsviðinu, meðal annars með
hljómsveitinni Útburðir. Þetta
verða fyrstu tónleikar Human
Woman og kemur hún fram á
hátíðinni ásamt flytjendum
á borð við Gus Gus, FM Belf-
ast, Egil Sæbjörnsson, Lúdó og
Stefán og Ben Frost.
Hugleikur
rappar
HUGLEIKUR Hugleikur Dagsson
rappar með hljómsveitinni
Human Woman á Jól Jólsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM