Fréttablaðið - 11.12.2009, Qupperneq 108
80 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Hafnfirðingurinn Kristján Gauti Emilsson skrifaði í gær undir
þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool.
Hann mun fyrst um sinn æfa með U-18 ára liði félagsins en
markmið hans verður að vinna sér sæti í varaliðinu og von-
andi síðar sjálfu aðalliðinu.
„Við komum út í gær og ég fór svo á æfingu í morgun.
Eftir það var fundur þar sem ég skrifaði undir samn-
inginn,“ sagði Kristján Gauti við Fréttablaðið í gær en
hann var þá staddur í Liverpool með foreldrum sínum.
Kristján Gauti er sextán ára gamall og hefur leikið
með yngri flokkum FH alla tíð. Þrátt fyrir ungan aldur
kom hann þó við sögu í þremur leikjum FH í Pepsi-
deild karla nú í sumar. Hann mun flytja til Liverpool
eftir áramót og hefja þá æfingar í akademíu félagsins.
„Það sem tekur við hjá mér eru stífar æfingar en ég
ætla mér að reyna að komast í varaliðið.“
Kristján Gauti neitar því ekki að það sé góð tilfinning
að vera orðinn leikmaður Liverpool. „Það er mjög ljúf
tilfinning en nú er það bara harkan sem tekur við.“
Hann var á meðal áhorfenda á Anfield, heimavelli Liverpool,
þegar liðið tók á móti ítalska liðinu Fiorentina í Meistaradeild
Evrópu. Þetta var lokaleikur liðsins í Meistaradeildinni en liðið
var þegar fallið úr leik. Leikurinn var því þýðingarlaus fyrir þá
rauðklæddu. Fiorentina vann leikinn, 2-1, en sigurmarkið kom í
uppbótartíma.
„Mér fannst leikurinn skemmtilegur en var auðvitað ekki
ánægður með úrslitin,“ sagði Kristján Gauti. „Við reyndar
fórum á 90. mínútu leiksins og héldum því að leikurinn
hefði farið 1-1. Það var ekki fyrr en við komum heim að
við sáum hvernig leikurinn fór. Þá varð maður spældur.“
Eitt helsta umræðuefni stuðningsmanna Liverpool
þessa dagana er Alberto Aquilani, sem var í fyrsta sinn
í byrjunarliðinu í gær síðan hann kom til félagsins en
hann hefur verið að jafna sig á erfiðum meiðslum.
„Það er ekki nokkur spurning að hann er góður knatt-
spyrnumaður. Hann á bara eftir að verða sterkari eftir
því sem hann fær meira að spila,“ sagði Kristján Gauti, nýr
leikmaður Liverpool.
KRISTJÁN GAUTI EMILSSON: SKRIFAÐI Í GÆR UNDIR ÞRIGGJA ÁRA SAMNING VIÐ LIVERPOOL
Ljúf tilfinning að vera orðinn leikmaður Liverpool
> Þórir frá í tvær vikur
Þórir Ólafsson, leikmaður og fyrirliði þýska úrvalsdeildar-
félagsins TuS N-Lübbecke, verður frá næstu tvær vikurnar
eftir að hann meiddist á æfingu í fyrradag. Eftir því sem
kom fram í þýskum fjölmiðlum gær benti flest til að hann
hefði rifið vöðva aftan í læri. „Við vonumst til þess að
hann geti spilað í síðustu tveimur leikjum
ársins en það kemur betur í ljós eftir
ítarlegri læknisskoðun,“ sagði Patrik
Liljestrand, þjálfari Lübbecke, við þýska
miðla.
Við óskum öllum gleðilegra jóla
Tryggjum öllum börnum gleðileg jól
Taktu þátt í Pakkajólum Bylgjunnar við jólatréð í Smáralind
Gefðu eina aukagjöf um jólin og leggðu góðu málefni lið. Merkja þarf hverja gjöf með merkimiða þar
sem tekið er fram hvaða kyni hún hentar og hvaða aldri. Ef þú býrð úti á landi þá kemur Pósturinn
gjöfunum endurgjaldslaust til skila. Þú þarft bara að fara með pakkann á næsta pósthús. Jólapappír
og merkimiða er að finna við þjónustuborð Smáralindar á annarri hæð.
Fjölskylduhjálp Íslands, Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstarf kirkjunnar koma pökkunum til þeirra sem
á að gleðja.
Gefðu eina gjöf og vertu með í Pakkajólum Bylgjunnar.
SUND Íslensku keppendurnir hófu
keppni á EM í stuttri laug í Istan-
bul í Tyrklandi í gær. Þá var end-
anlega ákveðið að íslensku stelp-
urnar ætla að taka þátt í 4x50
metra skriðboðsundi í dag.
Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH
var sú eina af íslensku keppend-
unum sem náði að bæta sinn besta
tíma. „Það munaði mjög litlu hjá
mér og ég hefði örugglega kom-
ist inn í undanúrslitin ef ég hefði
náð Íslandsmetinu. Það hefði verið
frábært en verður bara í staðinn
markmiðið mitt fyrir næsta mót,“
sagði Hrafnhildur í gær.
„Þessi dagur reyndi vel á mig
enda að taka tvö sund á fyrsta
deginum. Ég var ennþá með flug-
þreytu en reyndi bara að nýta mitt
sem best. Ég gerði vel í 50 metra
bringusundinu en náði ekki alveg
að stilla mig af í fjórsundinu. Ég
náði samt næstbesta tímanum
mínum, sem mér finnst nú bara
vera ágætt,“ sagði Hrafnhildur,
sem var nokkuð sátt.
Hrafnhildur endaði í 29. sæti af
53 keppendum í 50 metra bringu-
sundi á tímanum 31,49 sekúndum
sem er aðeins 23/100 frá Íslands-
meti Erlu Daggar Haraldsdótt-
ur úr ÍRB. Sindri Þór Jakobsson
úr ÍRB varð í 38. sæti af 46 í 100
metra flugsundi en hann synti á
53,69 sekúndum sem er 1/10 úr
sekúndu frá hans besta tíma.
Hrafnhildur synti síðan aftur í
200 metra fjórsundi þar sem hún
var í riðli með bestu fjórsundskon-
um Evrópu. Hrafnhildur náði 28.
besta tímanum og synti á 2:16,97
mínútum, sekúndu frá sínu besta.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr
SH og Ragnheiður Ragnarsdótt-
ir úr KR syntu síðan í 100 metra
skriðsundi. Ingibjörg endaði í 55.
sæti á 56,87 sekúndum, sem er
um sekúndu frá hennar besta, og
Ragnheiður endaði í 36. sæti en
hún kom í mark á 55,10 eða 34/100
frá Íslandsmetinu sem hún setti á
ÍM25 um daginn.
Spennandi verður að sjá hvernig
gengur hjá stelpunum í dag þegar
þær taka þátt í 5x50 metra skrið-
sundi. „Það var ákveðið að skrá
okkur og sjá síðan til. Við erum
búnar að ákveða að taka þátt. Það
er ekki mjög algengt að Ísland sé
með boðsundssveit en við ákváðum
að skella okkur fyrst við vorum
hérna fjórar stelpurnar,“ sagði
Hrafnhildur. - óój
Hrafnhildur Lúthersdóttir var nálægt undanúrslitunum á fyrsta mótsdegi á EM í stuttri laug í Tyrklandi í gær:
Ísland verður með boðsundsveit á EM
ÍSLENSKA BOÐSUNDSVEITIN Ísland á fjórar stelpur á EM. MYND/RAGNAR MARTEINSSON
BORÐTENNIS Guðmundur Egg-
ert Stephensen, Íslandsmeist-
ari í borðtennis, hefur samið við
sænska úrvalsdeildarfélagið BTK
Warta um að leika með liðinu
það sem eftir lifir tímabils. Guð-
mundur varð sænskur meistari
með Eslöv árin 2007 og 2008.
BTK Warta er frá Gautaborg
og einn elsti klúbbur í Svíþjóð
með mikla borðtennishefð. - óój
Sænska borðtennisdeildin:
Guðmundur á
ný til Svíþjóðar
TVISVAR SÆNSKUR MEISTARI Guðmund-
ur Stephensen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON