Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 110
11. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Vínlandsleið 6-8
113 Reykjavík
Opið: Virka daga kl. 11-18
Laugardaga kl. 11-16
Sunnudaga kl. 12-16
FRÁBÆR VERÐ!
Puma First Round
Stærðir 36-41
Verð kr. 16.990
Puma First Round
Stærðir 37-41
Verð kr. 16.990
Puma First Round
Stærðir 36-39
Verð kr. 16.990
Puma Etoile Fade
Stærðir 36-41
Verð kr. 12.990
K-Swiss götuskór
Stærðir 37-41
Verð kr. 13.990
Vans götuskór
Stærðir 41-46
Verð kr. 14.990
Puma rennd peysa
Stærðir XS-M
Verð kr. 11.990
Puma bakpokar
Mikið úrval
Upprunalegt verð er
breytilegt milli poka
Outlet
verð:
Kr. 11.9
90 O
utlet ve
rð:
Kr. 11.9
90
Outlet
verð:
Kr. 8.99
0 Ou
tlet ver
ð:
Kr. 11.9
90
Outlet
verð:
Kr. 6.99
0 Ou
tlet ver
ð:
Kr. 7.99
0
Outlet
verð:
Kr. 2.99
0 Ou
tlet ver
ð:
Kr. 7.99
0
KÖRFUBOLTI Sean Burton lætur ekki
mikið yfir sér. Hann er grannvax-
inn og ekki hár í loftinu og það er
fátt sem bendir til þess að þar fari
bandarískur atvinnumaður sem
er nýbúinn að setja met í þriggja
stiga körfum. Hamarsmenn og
Njarðvíkingar geta hins vegar
vottað um það að menn mega ekki
láta útlitið blekkja sig því þar er á
ferðinni svakaleg skytta.
„Þeir voru að spila 2:3 svæðis-
vörn og voru að gefa okkur opin
skot. Ég hitti úr fyrsta þriggja
stiga skotinu mínu og eftir það fór
allt ofan í hjá mér,“ segir Sean,
sem endaði með 55 stig og sextán
þriggja stiga körfur úr 20 skotum
í leiknum á móti Hamri.
„Ég hafði aldrei skorað svona
marga þrista í einum leik og hafði
sett nýtt persónulegt met með því
að skora átta þrista í leiknum á
undan sem var á móti Njarðvík,“
segir Sean. Leikurinn á undan var
enginn meðalleikur heldur þar
sem hann skoraði 41 stig og hitti
úr 8 af 12 þriggja stiga körfum í
98-94 sigri á toppliði Njarðvíkur.
„Þegar ég kom hingað fyrst var
ég að spila í fyrsta sinn með þess-
um strákum og ég þurfti tíma til
þess að venjast þeim. Leikstíllinn,
íþróttahúsin og boltarnir voru líka
allt öðruvísi en ég átti að venjast.
Ég er farinn að venjast öllu núna
enda er ég búinn að vera hérna í að
verða meira en mánuð,“ segir Sean
Burton, sem kom ekki til landsins
fyrr en nokkuð var liðið á mótið.
„Eftir síðasta árið mitt í háskóla-
boltanum reyndi ég að koma mér á
framfæri því ég vildi halda áfram
að spila körfubolta. Ingi hafði
samband við mig og sagði mér að
hann hefði áhuga á því að fá mig.
Ég varð strax spenntur því þetta
leit út fyrir að vera frábær staður
og Ingi leit út fyrir að vera góður
þjálfari. Ég var því heppin með
hvernig þetta gekk upp,“ segir
Sean Burton.
Hann var ekki að hitta mikið
í fyrstu leikjum sínum en Hlyn-
ur Bæringsson, fyrirliði liðsins,
talaði um það eftir leik á móti ÍR
að þar færi ein mesta skytta sem
hann hefði séð. Það kom líka á dag-
inn að skyttan Sean Burton fór í
gang.
„Ég elska það að eyða tíma í
íþróttahúsinu og æfa skotið mitt.
Það var mér sérstaklega mikil-
vægt rétt eftir að ég kom hingað
því þá var ég ekki að hitta úr skot-
unum mínum. Ég fór því og æfði
skotið mitt á hverjum degi og það
er farið að skila sér,“ segir Sean.
Þeir sem sjá Sean spila taka
strax eftir því að hann er fljótur að
skjóta. „Ég hef allan minn körfu-
boltaferil verið einn af minnstu
mönnunum á vellinum þannig að
ég þurfti að læra það að skjóta
hratt ef ég ætlaði mér að skjóta á
körfuna,“ segir Sean.
Sean ætlaði sér aldrei að bæta
einhver met og segist leggja ofur-
kapp á að sinna sínu mikilvægasta
starfi, sem er að stýra sóknar-
leik Snæfellsliðsins. „Ég hef meiri
áhyggjur af því að stjórna hraðan-
um og reyna að stýra leiknum en
því að skora svona mikið. Ég veit
að ég mun fá mín skot og hef því
ekki neinar áhyggjur af því.
Á meðan við erum að vinna og
liðið er að spila vel er það það sem
mestu máli skiptir,“ segir Sean.
Snæfell hefur byrjað vel með
Sean Burton innanborðs en bikar-
sigurinn á Hamri á sunnudaginn
var sjötti sigur liðsins í sjö leikjum
með þennan snaggaralega bakvörð
innanborðs. Eina tap liðsins var
með minnsta mun í framlengdum
leik í Grindavík.
„Við erum rétt að koma upp á
yfirborðið sem lið. Við erum að
verða betri og betri á æfingum enda
ennþá að læra inn á hver annan. Ég
er viss um að í janúar og febrúar
verðum við búnir að smella alveg
saman og farnir að spila mjög góðan
körfubolta,“ segir Sean.
Áður en kemur að næsta alvöru-
leik, sem er á heimavelli Íslands-
meistaranna í KR, ætlar Sean að
bjóða upp á aðra þriggja stiga sýn-
ingu í þriggja stiga skotkeppni
Stjörnuleiksins sem fer fram í Graf-
arvogi á laugardaginn.
„Ég finn enga pressu á mér í
þriggja stiga keppninni þrátt fyrir
þessa tvo síðustu leiki. Ég ætla bara
að reyna að skemmta mér og hafa
gaman,“ segir Sean að lokum en
þar talar maðurinn sem hefur sett
niður 24 þriggja stiga skot af 32 í
síðustu tveimur leikjum og verður
því að teljast afar sigurstranglegur
um helgina. ooj@frettabladid.is
Elskar að æfa skotið sitt
Sean Burton bætti tæplega 19 ára gamalt met Francs Booker þegar hann skor-
aði sextán þriggja stiga körfur á móti Hamri síðastliðinn sunnudag. Burton er
búinn að hitta úr 24 af 32 þriggja stiga skotum í síðustu tveimur leikjum.
SJÓÐHEITUR Sean
Burton lék frá-
bærlega í síðustu
tveimur leikjum þar
sem hann skoraði
samanlagt 96 stig.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Ingi Þór Steinþórs-
son, þjálfari Snæfells í Iceland
Express deild karla, datt í lukku-
pottinn þegar hann krækti í
Bandaríkjamanninn Sean Burton.
„Ég bjóst kannski ekki við svona
hittni en það var hans alhliða
leikur sem heillaði mig,“ segir
Ingi Þór um heitustu skyttuna á
Íslandi í dag.
„Hann var búinn að vera aðalmað-
urinn í litlum skóla í litlu samfé-
lagi og ég hafði trú á því að hann
myndi þrífast vel í svona samfé-
lagi og að hann myndi sætta sig
við að koma í bæjarfélag eins og
við búum í hér í Hólminum,“ segir
Ingi en Sean Burton var með 22,4
stig og 7,7 stoðsendingar að með-
tali á lokaári sínu hjá Ithaca-skól-
anum.
„Ég ætlaði að fá hann í sumar
en þá var stjórnin ábyrg og fjár-
magnið var ekki til staðar. Á
meðan samdi hann við London
Leopards á Englandi. Svo þegar
fór að glæðast í fjáröflun hérna
og stjórnin gaf mér grænt ljós að
fá erlendan leikmann kom í ljós
að hann var ekki enn búinn að fá
atvinnuleyfi í Englandi,“ rifjar
Ingi upp.
„Við fundum það út að hann
var ennþá að bíða eftir atvinnu-
og dvalarleyfi í Englandi og hafði
verið að bíða í þrjár vikur. Ég
setti mig í samband við hann og
tveimur dögum seinna var búið
að græja málið. Það er eins og
hann hafi átt að koma hingað,“
segir Ingi Þór.
Sean Burton byrjaði ekki allt
of vel og hitti „bara“ úr 11 af 39
fyrstu þriggja stiga skotunum sem
hann tók í fyrstu fjórum leikjun-
um. „Hann hitti ekki vel í byrjun
en hjá skyttum er þetta spurning
um ryþma og sjálfstraust.
Í síðustu tveimur leikj-
um hefur hann verið að
hitta og skjóta meira. Ég
er búinn að vera mjög
ánægður með hann
allan tímann þó svo að
hann hafi ekki verið
að skora. Hann er leik-
stjórnandi sem getur skor-
að. Hann er ekki að
taka frá einum
eða neinum
og st ý r -
ir liðinu
mjög vel.
Hann
fékk
algjört
skotleyfi eftir Hamarsleikinn,“
sagði Ingi Þór hlæjandi og bætti
við: „Hann sagði við mig: Ég vona
að þú ætlist ekki til þess að ég
skori 40 stig í leik“,“ segir Ingi
og bendir á að Sean hafi bætt sitt
persónulega met tvo leiki í röð.
„Hann sér völlinn mjög vel og
ég held að það sé mjög gaman að
spila með honum. Hann gefur
okkur nýja vídd með þessum
leik sínum, sem er mjög jákvætt.
Væntingarnar til hans rjúka núna
upp en það er stutt á milli í þessu
því það voru margir óánægð-
ir með hann í byrjun og
fannst hann þá ekki vera
að spila vel,“ segir Ingi
en þeir hinir sömu eru
örugglega búnir að
skipta um skoðun núna.
- óój
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, fann Sean Burton milliliðalaust:
Eins og hann hafi átt að koma
INGI ÞÓR STEINÞÓRSSON
Þjálfari Snæfells.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON