Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 112

Fréttablaðið - 11.12.2009, Side 112
84 11. desember 2009 FÖSTUDAGUR HANDBOLTI Breiðhyltingurinn Kristinn Björgúlfsson hefur víða komið við á sínum ferli. Hann er uppalinn ÍR-ingur en hefur síð- ustu ár leikið meira og minna erlendis. Lengst af lék hann í Noregi en hann spilaði einnig eina leiktíð í Grikklandi. Hann skipti svo um vettvang eina ferðina enn í sumar er hann samdi við þýska félag- ið Rimpar en það félag leikur í 3. deild suður. Kristinn býr einn en hann unir sér vel með gæludýrinu sínu sem er broddgöltur. Ekki er það beint hefðbundið gæludýr en Kristinn hafði aldrei áhuga á því að vera með hefðbundið gæludýr. „Eftir að mér datt þetta í hug hafði ég samband við dýralækni og spurði hvort þetta væri í lagi, hvort ég myndi nokkuð drepa dýrið. Hann sagði að þetta væri í lagi. Svo kem ég úr sjúkraþjálfun dag einn og sé þá broddgölt í gras- inu fyrir utan. Bið sjúkraþjálfar- ann að redda mér kassa, setti dýrið í kassann og tók það með heim. Ég er örugglega fyrsti Íslendingurinn sem fær sér broddgölt. Ég vil ekki vera eins og aðrir. Það er bara til eitt eintak af mér,“ segir Kristinn um tilurð þess að hann ákvað að fá sér þetta óvenjulega gæludýr. Broddgeltir eru ekki seldir í gæludýrabúðum þannig að Krist- inn varð að redda sér sjálfur. Sam- búðin með broddgeltinum hefur gengið vel en Kristinn segir brodd- göltinn vera skemmtilegt gælu- dýr. „Hann fær að valsa hér um íbúð- ina og er aðallega í því að fela sig. Fara ofan í töskur og klifra upp lampa. Allt afar skemmtilegt,“ segir Kristinn en hvað gefur hann dýrinu að borða? „Hann borðar kattamat með kjúklingabragði. Læknirinn mælti með því. Svo borðar hann banana og á dögunum fékk hann súkkul- aðirúsínur frá Nóa. Þær hurfu á mettíma, hann var sjúkur í þær. Ég bauð honum venjulegar rúsín- ur daginn eftir en hann vildi ekki sjá þær. Bara íslensku súkkulaði- rúsinurnar.“ Kristinn segir að gölturinn stingi ekki eins mikið og margur held- ur. „Þetta er ekki eins og í teikni- myndunum,“ segir Kristinn. Hann nefndi broddgöltinn Hr. 109 þar sem hann er mikill Breiðhyltingur. Vinir Kristins fylgjast spenntir með bloggskrifum hans um dýrið og nú hefur Hr. 109 fengið sína eigin Fac- e book-síðu sem Kristinn segir dýrið hafa stofnað sjálft. Þó svo að heimilislífið sé skemmti- legt hefur ekki gengið eins vel á handboltavellinum. Rimpar situr í neðsta sæti deildarinnar. Liðið tap- aði átta fyrstu leikjum sínum í deild- inni en er að rétta úr kútnum. „Við höfum verið ótrúlega óheppn- ir með meiðsli. Níu leikmenn meidd- ust hjá okkur og flestir í langan tíma. Þetta var með hreinum ólík- indum,“ segir Kristinn, sem er fyrsti atvinnumaðurinn í liðinu. „Það er mjög gaman. Fólk í þess- um 5.800 manna bæ veit vel hver ég er og mér er heilsað hvert sem ég fer. Ég kann vel við mig hér. Það er alltaf fullt á leikjum hjá okkur og mikil stemning þó svo að við værum að tapa öllum leikjum,“ segir Krist- inn Björgúlfsson. henry@frettabladid.is Broddgölturinn sjúkur í Nóarúsínur Það verður seint sagt um handknattleikskappann Kristin Björgúlfsson að hann bindi bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. Þessi lunkni miðjumaður spilar nú í Þýskalandi þar sem hann býr með broddgeltinum sínum. Dýrið hefur verið nefnt Hr. 109 til heiðurs Breiðholtinu. UPPÁTÆKJASAMUR Herra 109 er mikið í því að klifra upp um alla íbúð og fela sig. FLOTTIR SAMAN Kristinn og broddgölturinn Hr. 109 saman á heimili þeirra í Rimpar í Þýskalandi. MYND/ÚR EINKASAFNI FÉLAGAR AÐ LEIK Kristinn og herra 109 eru duglegir að leika og horfa einnig á sjónvarpið saman. FÓTBOLTI Ítalinn Alberto Aquilani fékk langþráð tækifæri í liði Liver- pool gegn Fiorentina í Meistara- deildinni á miðvikudag. Hann átti engan stjörnuleik enda lítið spilað síðan hann kom til félagsins. Hann fékk þó að spila allan leikinn og það í fyrsta skipti fyrir félagið. Aquilani biður stuðningsmenn Liverpool um að sýna sér þolin- mæði enda muni það taka hann tíma að komast í leikform eftir margra mánaða fjarveru vegna meiðsla. „Það er mjög erfitt að hafa ekki spilað fótbolta í sjö eða átta mánuði. Ef maður spilar ekki er ástandið ekki gott. Ég þarf að fá að spila og eftir því sem ég spila meira, þeim mun betri verð ég,“ sagði Aquilani og bætti við að aðal- atriði liðsins núna væri að enda í einu af efstu fjórum sætunum í deildinni. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur. Við verðum að taka einn leik fyrir í einu og á sunnu- dag verðum við að vinna Arsenal,“ sagði Ítalinn. - hbg Alberto Aquilani: Sýnið mér þolinmæði ALBERTO AQUILANI Fékk loksins að spila fyrir Liverpool. NORDIC PHOTOS/GETTY
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.