Vikan - 01.06.1961, Blaðsíða 4
Guðni Þórðarson, forstjóri Ferða-
skrifstofunnar Sunnn.
Ljónaveiðar í Afríku
. 'íj
og lúxusskip á Rín
Rætt við Guðna Þórðarson, forstjóra Ferðaskrifstofunnar
Sunnu, um ferðalög íslendinga erlendis, vinsæla ferðamanna-
staði, hlutverk ferðaskrifstofa, þjónustu og verðlag.
— Hverju myndir þú svara, Guðni, ef til þin kæmi maður og spyrði:
Hvað er ferðaskrifstofa?
— Það væri hreint ekki óeðlileg spurning, og ég mundi ekki verða
hvumsa og líta undrandi á manninn. Ferðaskrifstofur eru svó nýjar
af nálinni hjá okkur, að tæplega er við því að búast, að almenningur
hafi fullkomna vitneskju um þær stofnanir. Ég mundi svara þessari
spurningu þannig, að ferðaskrifstofur séu leiðbeiningastofnanir og
ráðgjafar þeirra, sem ferðast. Það er um ferðalög eins og húsbyggingar
og margt annað: Við leitum ráða hjá sérfróðum aðilum til þess að
spara okkur fyrirhöfn og kostnað.
— íslendingar ferðast nú meir en nokkru sinni fyrr, eða er ekki
svo? 1
— Ekki aðeins íslendingar, heldur allar þjóðir. Ferðamannastraum-
ur hefur alls staðar aukizt, og ferðatækni er alltaf að verða betri og
betri. Stóru farþegaskipunum er alltaf að fjölga, og umferðin í loftinu
hefur öll bætzt við eftir strið. Ferðamannastraumurinn hefur leitt af
sér geysimikla samkeppni meðal flutningsaðila og líka milli þeirra
landa, sem mesta stund hafa lagt á að taka móti ferðámönnum.
BMgg'.ramr -■
— Hversu lengi hafa ferðaskrifstofur verið starfræktar?
— Mér vitanlega i hundrað ár. Jafnvel þá þótti þægilegt að geta
notið ráðlegginga sérfræðings um ferðalög á ókunnar slóðir. Við skul-
um taka dæmi, ekki um ferðalög fyrir hundrað árum, heldur eins og
þau eru nú á dögum. Maður ætlar til Sviss og ítalíu. Hann veit ekki,
hvaða staðir í þessum löndum eru eftirsóknarverðir, og þaðan af síður
veit hann um hagkvæmar ferðir milli staða og hótel. Ef þessi maður
kæmi hér á ferðaskrifstofuna til mín, þá hef ég handbærar alla-r hug)s-
anlegar upplýsingar. Góður ferðaskrifstofumaður getur sparað væntan-
legum ferðalang mikil hlaup og óþægindi við að útvega farmiða og
aðra hluti, sem hægt er að fá á ferðaskrifstofum, og um leið er mann-'
inum tryggt ódýrara og ánægjulegra ferðalag. Sá, sem stendur fyrir
ferðaskrifsíofu, þarf helzt að hafa komið sjálfur sem víðast til þess að
geta gefið upplýsingar af eigin reynslu.
— Getur ferðamaður haft af þvi einhver hlunnindi að láta ferðaskrif-
stofu skipuleggja fyrir sig ferð?
— Það er auðvelt að sýna fram á það. Vegna siaukinnar samkeppni
er ferðafólki veitt ýmiss ltonar friðindi, og það þekkja ferðaskrifstof-
urnar bezt. Til dæmis eru 8—10 mismunandi flugfargjöld á leiðinni frá
London til Parísar, og allt er það með viðurkienndum flugfélögum. Og
það er ekki aðeins verðmunur milli flugfélaga, heldur eru mismunandi
fargjöld með sams konar flugvélum á sömu leiðúm hjá BBA og Air
Frane.
— Fólk notar sjálfsagt mikið erlendis þá þjónustu, sem ferðaskrif-
stofur bjóða, þar sem þær stofnanir eru eldri og þekktari en hér.
— Þar kaupa nær allir farseðla hjá ferðaskrifstofum, en ekki hjá
skipa- eða flugfélögum. Það gera menn vegna þess, að ferðaskrifstofur
eru hlutlausar stofnanir, sem hafa áætlanir frá öllum og taka ekíki
einn fram yfir annan. Það er eðlilegt, að starfsmað(ur hjá skipai- eða
flugfélagi ráðleggi væntanlegum ferðamanni að ferðast með sínu eágin
félagi, enda þótt hann viti af lægri fargjöldum annars staðar.
— Nú hugsa ekki allir um það að spara peninga.
— Nei, en það er alveg sama, þótt menn hafi í hyggju að fá aðipins
hið allra bezta án tillits til kostnaðar, þá fá þeir líka öruggari upplýs-,
ingar um það á ferðaskrifstofu en hjá einstökum félögum.
— Ég veit, að fjöldi fólks fer utan á hverju ári án þess að ráðfæra
sig við ferðaskrifstofu, og mér dettur í hug, að það haldi, að það verðil
að borga fyrir upplýsingar og þjónustu, sem það fær.
— /Sjálfsagt er það að einhverju leyti rétt, og þetta er hlutur, sem
við verðum að leggja alveg sérstaka áherzlu á að sú þjónusta, sieta
hér er veitt, kostar væntanlegan ferðamann ekki eyri. Það eru flugfélög-
in, skipafélögin, járnbrautafélögin og hótelin, sem borga þessa þjón-
ustu. Eg fæ til dæmis ákveðnar prósentur af hverjum farseðli, sem ég
sel með skipum Hellenic Mediterranean Lines, sem ég hef einkaum-
boð fyrir. Það eru þeir og aðrir slíkir, sem borga brúsann.
— Hefur þess ekki gætt, að skipa- og flugfélögin vildu heldur af-
Ferðafólk lendir í alls konar amstri að óþörfu, Ferðalög með lúxusskipum eru ódýrari en marg- í Ferðaskrifstofunni Sunnu má kaupa farmiða
vegna þess að það leitar ekki ráða hjá ferða- ur hýggur, ef ferðazt er með hópferðakjörum. með lystiskipi, sem gengur eftir Rínarfljóti, —
skrifstofu, áður en það fer í ferðina. og borga með íslenzkum krónum.