Vikan - 01.06.1961, Blaðsíða 19
4
l
■
i
Fegurðarsamkeppnin
Nú er komið að því að greiða atkvæði.
Atkvæðaseðillinn er á bls. 18.
Hér með lýkur þeim þætti fegurðarsamkeppninnar, sem snýr að Vikunni
og nú er komið að ykkur, lesendur góðir. Atkvæðaseðill er á bls. 18 og nú
er aðeins eftir að útfylla hann og senda hann sem allra fyrst til dómnefnd-
arinnar í fegurðarsamkeppninni, póstbox 368. Atkvæði, sem berast síðar en
á hádegi hinn 10. júní, verða ekki tekin til greina.
Vikan hefur tekið á móti fjölda ábendinga og valið úr ellefu þátttak-
endur. Þar af féll ein úr af óviðráðanlegum orsökum og er hún því ekki hér
með. Við birtum hér tvær myndir af hverjum þátttakanda til þess að hæg-
ara sé um samanburð. Stúlkurnar munu væntanlega allar koma fram í
Austurbæjarbíói, þar sem kjörin verður Ungfrú ísland 1961, Ungfrú
Reykjavík 1961 og Bezta Ijósmyndafyrirsætan 1961. Atkvæði ykkar, les-
endur góðir, mun dómnefndin hafa til hliðsjónar við kosninguna.
Úrslitakeppnin mun fara fram í Austurbæjarbíói dagana 10.-11. júní
næstkomandi. Þar munu stúlkurnar koma fram á kjólum og sundfötum
fyrri daginn, en aðeins á sundfötum síðari daginn.
Ásamt fegurðarsamkeppninni verður ýmislegt annað til skemmtunar í
Austurbæjarbíói, t. d. áhaldaleikfimi karla og kvenna, munnhörputríó Ing-
þórs Haraldssonar, gamanþáttur í umsjá Áróru og Emelíu og hljómsveit
leikur milli atriða. Unglingar undir sextán ára aldri munu ekki fá aðgang
að úrslitakeppninni. Keppninni lýkur með krýningarhátíð að kvöldi 11.
júní. Mun hún fara fram að Hótel Borg.
Myndir af þátttakendunum birtast hér í sömu röð og með sömu númer-
um og áður.
Dómnefndina skipa:
Frú Ásta Johnson, fegrunarsérfræð-
ingur
Ásdís Alexandersdóttir, flugfreyja
hjá Loftleiðum
Frú Anna Guðmundsdóttir, þátttak-
andi í Miss Evr. 1958
Jón Eiríksson, læknir
Guðni Þórðarson, forstjóri Ferða-
skrifstofunnar Sunnu
Eggert Guðmundsson, listmálari
Guðmundur Karlsson, blaðamaður
Jóhannes Jörundsson, auglýsingastj.
Vikunnar
Gestur Einarsson, ljósmyndari
AtkvæðaseðMlinn er
hér og atkvæðin verða
að hafa borizt fyrir
hádegi 10. júní
1
Anna Harðardóttir.
Bræðraborgarstíg 15. Reykjavík.