Vikan


Vikan - 01.06.1961, Blaðsíða 37

Vikan - 01.06.1961, Blaðsíða 37
Sígaunabaróninn sýndur í Þjóðleikhúsinu Nýlega frumsýndi Þjóðlcik- húsið óperettuna Sigaunabarón- inn eftir Jóhann Strauss. Þetta er ein af hinum sígildu óperettum eins J. Strauss. Leikhúsgestir virðast kunna vel að meta létta tónlist á vorin. LEIKSTJÓRI. Sænski leikstjórinn Soini Wall- enius frá stóra leikhúsinu í Gauta- borg sviðsetur Sigaunabaróninn. Walleníus er þekktur ieikstjóri í heimalandi sinu og hefur sviðsett margar óperur og söngleiki í lieima- landi sinu og er talinn mjög fær maður í sinni listgrein. Mikið er af skemmtilegum dönsum og ballett í Sigaunabaróninum og verða þeir æfðir og samdir af Veit Betche ballettmeistara Þjóðleikhússins. Aðalkvenhlutverkið verður sung- ið af óperusöngkonunni Christini Von Widmann, austurríski söng- konu, sem margoft hefur sungið þetta hlutverk við frábæra dóma gagnrýnenda. Önnur hlutverk verða sungin af Guðmundi Guðjónssyni en hann fer með hlutverk sigaunabar- ónsins, Guðmundur Jónsson syngur stórt hlutverk ásamt Þuriði Páls- dóttur, Sigurveigu Hjaltested og Þorsteini Hannessyni. Auk þeirra og kunnugt er og kannast flestir við mörg lögin úr þessum söngleik. Leðurblakan eftir Strauss var fyrsti söngleikurinn, sem Þjóðleikhúsið tók til sýningar, og átti sá söngleik- ur miklum vinsældum að fagna, sýndur alls 35 sinnum. Það er orðin föst venja í starf- semi Þjóðleikhússins að sýna söng- leik í lok leikársins og hefur það fyrirkomulag orðið mjög vinsælt. Hreinsum gólfteppi ÞRIF H.F. Sfmi S5S57. ' • t **. • ' iS.-n* *'• Soine Wallenius leikstjóri frá Stóra leikhúsinu í Gautaborg, er þekktur sem leikstjóri og söngvari í heimalandi sínu. Hann hefur sett upp óperur og söngleiki og hefur hlotið mikið lof fyrir sviðsetningu á Sigaunabaróninum í Svíþjóð. Hann hefur í fjölda ára sungið í óperum og söngleikjum en hefur hin síðari ár gefið sig meira að leikstjórn. syngja Erlingur Vigfússon, Guðrún Þorsteinsdóttir og margir fleiri. Þjóðleikhúskórinn syngur hlulverk kórsins sem er mjög stórt. Bohdan Wodiczko verður liljómsveitarstjóri. Æfingar á Sigaunabaróninum eru þegar hafnar fyrir nokkru en eins og kunnugt er tekur það langan tíma að æfa söngleiki. Þýðingin er gerð af Agli Bjarna- syni. Sigaunabaróninn verður svo sýnd- ur út leikárið en sýningum lýkur .eins og venjulega 1. júlí. — sem fer sigurför um alla Evrópu, og er nú komið í flestar verzlanir. Sannfærist um gæðin og reynið túbu næst er þér þurfið á tannkremi að halda, og þér munið verða ánægðari með tennur yðar, en nokkru sinni fyrr. Heildsölubirgðir: Snjfrtívörur b.f. Box 834 .. Sími 17177. Italska tannkremið — Myndin er af Christini Von Wid- mánn en hún syngur aðalkvenhlut- verkið, Sigaunastúlkuna í Sigauna- baróninum. Hún er mjög glæsileg kona með töfrandi „sópran“-rödd og hefivr sungið í öllum helztu leikhús- um í Austurríki og Þýzkalandi. Fyrir skömmu söng hún þetta sama hlutverk í Vín. og fékk mjög góða dóma fyrir túlkun sína á því. Á E iTRINNI. Framhald af bls. 12. við að máli og kom það nú reyndar í Ijós að hann var þó nokkuð eldri en við héldum hann vera. Hann heit- ir Vilhjálmur Kristjánsspn og er íæplega (i(i ára. .4 Flateyri sá hann fyrst giætu og sú vestfirzka birta hefur. dugað honum til lífs. Sjó- mennsku hefur hann stundað, bæði á skelum þeim er áður tiðkuðust svo og bjargráði íslendinga togurunum. Fuíl þrjátíu og fimm ár hefur hann þjónað Eimskipafélaginu og.má með sanni segja, að ekki er hann fjöl- lyndur gagrivart atvinnurekanda. Hann stjórnar bifreið hjá fyrirtæk- inu og unir því að líkindum vel, þar sem hann er orðinn svona langlífur í starfinu. Svona reyndist þessi Eyrarferð og nú er mál að hætta. 37 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.