Vikan - 01.06.1961, Qupperneq 18
ÞEKK T U
SJALFAN
ÞIG
WS-X&hX'íáV&ZVSXk
Ékrn^É
Dr. Matthías Jónasson:
Nálarauga menntunarinnar
Mannkynið hefur reynt margvíslega stéttaskiptingu: eftir kynjum, frelsi,
efnahag, og nú er búið að búa til fjórðu ástæðuna fyrir myndun lágstétt-
ar: gáfnatregðuna, sem meinar fólki að komast gegnum nálarauga
menntunarinnar.
SKILVINDAN.
Þegar ég var drengur var notuS
skilvinda á heimili foreldra minna.
Þafi Þótli mér merkilegt tæki. Oft
braut ég heilann um það, hvernig
hún gæti skilið rjómann frá undan-
rennunni. Undanrennan flaut i
breiðum boga út úr viðri leiSslu, en
r.jóminn sitraSi hægt og letilega.
Merkilegast þótti mér, aS skilvind-
an skyldi alltaf vita, hve mikinn
rjóma hún átti aS skilja úr mjólk-
inni.
Einnig samfélagiS á sér skilvindu,
sem greinir inannfólkiS eftir á-
kveSnum auSkennum. ÞaS er nálar-
auga menntunarinnar, sem hverri
uppvaxandi kynslóS nú á dögum er
ætlaS aS ganga i gegnum. Fyrr á
tíS sluppu menn inn um ýmis önn-
ur hh'ð og þóttu liðtækir samt. En
nú, siðan nálarauga menntunarinnar
stendur öllum opið, sleppa fáir við
að þreyta þessa raun. Sumir fljúga
viSstöðulaust i gegn, öðrum er troðið
i gegn með harmkvælum, en ófáum
sýnist hiS sögufræga hlið fullvitt til
aS sjá, þó aS þeir fái meS engu móti
þrengt sér i gegn.
ÞaS eru menntastofnanir hverrar
þjóðar, eða nánar til tekið: sivax-
andi menntunarkröfur nútlmans,
sem vinna þetta skilvindustarf. Hver
uppvaxandi kynslóð greinist eftir
þvi, hversu framsækin hún er til
menntunar og hversti vel hún veld-
ur menntunarkröfunum. Hvort sem
okkur líkar betur eða verr, þá orka
menntastofnanir okkar f þá átt að
draga markalínu, að greina mann-
fólkið eftir þröngt mörkuðum gæða-
einkcnnum. Þetta skilvindustarf
hefir ekki aðeins djúp áhrif á líf ein-
staklingsins; það grípur djúpt inn i
samfélagsskipan okkar og gerbreyt-
ir stéttarskiptingunni.
STÉTTASKIPTING FYRR OG NÚ.
Fyrst og fremst rótar hún við
gömlu stéttaskiptingunni. Fyrr á tið
réðu ætterni og efnahagur þvi, i
hvaða stétt einstaklingurinn féll.
Þá var ekki auðhlaupið úr einni stétt
í aðra, enda lögðu heldri stéttir kapp
á að vernda forréttindi sin og arf-
leiða börn sín að þeim. Stéttaskipt-
ingin hélzt þvi lengi óbreytt að
mestu.
Hin stranga stéttaskipting var
hindrun í vegi félagslegrar þróunar.
Milli stétta hlóðust ókleifir múrar,
sem héldu afburða hæfileikamönn-
um lir lægri stétt frá menntun og
starfi, sem þeim hæfði. Afburðagáfur
voru hlekkjaðar við moldarverk og
fjárgæzlu. Á hinn bóginn vernduðu
stéttamúrarnir undirmálsgáfur i
þægilegum yfirstéttarstöðum.
Hlunnindi fylgdu ætterni og stétt,
þó að gáfurnar kynnu að reynast i
lakasta lagi
Enginn furða, jiótt menn væntu
þess, aS aukin menntun bryti niður
þessa múra! Og það hefir hún gert.
Nú eT auðvelt orðið að flytjast á
milli stétta. AS minnsta kosti hér á
landi á sonur erfiðismannsins oftast
kost á æðri menntun, ef hneigð hans
beinist i há átt og gáfurnar hrökkva
til. Af sömu ástæðu er yfirstéttar-
harnið að glata forréttindum sinum.
f samkeppni hæfileikanna ber öll-
um sami réttur. Skilvinda mennt-
unarinnar skilur hið kostamikla
efni frá hinu magra og spyr ekki
um ætterni.
Af þvi leiðir aftur ýmsa erfiðleika,
sem verða mönnum nokkurt á-
hyggjuefni. Skilvindan er tekin að
vinna verk sitt svo rækilega, að
hún mun bráðum skila undanrenn-
unni fjörvislausri. Gömlu múrarnir
höfðu hann kost, hrátt fyrir alla
galla, að hver stétt nant að mestu
þeirra afburðamanna, sem hún ól.
Þeir gerðu hana rismeiri og fram-
sæknari og færari til þess að eiga
hlut að þjóðmenningunni 1 heild.
Þannig efldist alþýðleg verktækni,
list og fræði. Nú sia menntunarkröf-
urnar úr hverri stétt, ekki aðeins
það, sem flýgur viðstöðulaust gegn-
um nálaraugað, heldur einnig mik-
inn fjölda, sem þarf að þrýsta i
gegn. Þetta gengur furðu jafnt yfir
allar stéttir, þó að efnahagur skapi
auðvitað verulegan aðstððumun,
þegar troða þarf lærdómi i gáfna-
sljó ungmenni.
Hörð nauðsyn knýr þessa sam-
félagsskilvindu. Flókin visindi og
verktækni nútimans krefjast greini-
legs úrvals úr gáfum þjóðarinnar.
Fámenn yfirstétt er ekki einfær um
að leggia þessar gáfur fram. Við get-
um ekki fullnægt þessum krðfum,
nema með þvi að nýta undantekn-
ingarlaust þær gáfur, sem spretta
fram hjá öllum almenningi og i
hverri stétt. Það virðist þvi óhjá-
kvæmilegt, að mjólkin fari ðll i
hina miklu skilvindu.
ER MÚGMENNIÐ NÆSTA
LÁGSTÉTT?
Mannkynið hefir revnt margvis-
lega stéttaskiptingu. í fyrsta lagi
eftir kynjum, þar sem lægstu og
erfiðustu störfin féllu i hlut kon-
Framhald á bls. 33.
|---------------------------------------------------------
Klippið hér.
I
ATKVÆDASEÐILL.
I
I
p Ég greiði atkvæði með því, að ungfrú ..........
I
I
| verði kjörin „Ungfrú ísland 1961“.
I
| Sendist 1 pósthólf 368, merkt Fegurðarsamkeppnin 1961.
18 VIKAN