Vikan - 01.06.1961, Síða 30
Lítið hefur birzt af skákum frá
Firmakeppninni svokölluðu, sem hald-
in var í annað sinn s.l. vetur. Þessi
keppni er hin fjölmennasta og jafn-
framt hin ánægjulegasta sem haldin
er hérlendis. Margir góðir skákmenn
komu þarna fram sem lítt hafa komið
við sögu opinberlega í sambandi við
skák og ennfremur tefla í þessari
keppni margir þekktir og reyndir
skákmenn. I heild má segja að þessi
keppni sýni betur en nokkuð annað
þann mikla skákáhuga sem er hér
á landi. Sá, sem sennilega hefur kom-
ið einna mest á óvart er Jóhann
Árnason, sem tefldi fyrir hönd Út-
vegsbankans. Jóhann hefur aldrei
fyrr teflt i opinberu móti, en er þeirri
reynslu ríkari en margir aðrir að hafa
teflt við Engels og heimsmeistarann
Aljekhin er þeir voru hér á ferð.
Jóhann hefur ekki, svo sem margir
í þessari Firmakeppni, rannsakað eða
lært byrjanir upp úr bókum, en
stuðst þeim mun meira við sitt eigið
hyggjuvit.
Hvítt: Þorv. Jóhannsson, Hreyfill.
Svart: Högni Isleifsson, Stjórnar-
ráðið.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Bc5
(Þessum leik er alltof sjaldan leikið
í þessari stöðu. Hann er kannski ekki
beztur, en hann er alls ekki slæmur).
4. 0—0 Rge7 5. c3 a6 6. Ba4 Rg6 7.
d4 exd 8. cxd Be7 9. Rc3 0—0 (Hvitur
hefur heldur rýmra tafl og hefur gott
vald á miðborðinu). 10. Be3 d6 11.
h3 b5 12. Bc2 Bb7 13. Hcl Ra5 14.
Bd3 He8 15. Re2 Rc4 16. BxRc4 bxc4
Stööumynd eftir 15. leik svarts.
17. Rg3 d5 18. exd Bxd 19, Rd2 Bg5
20. BxBg5 DxBg5 21. Rxc4 Rf4 22.
Re3 ? HxRe3! 23. fxe3 DxRg3 og
hvítur gefst upp.
Hér er svo gott dæmi um hvern-
ig ekki á að tefla.
Hvítt: Gunnar Hvanndal, Veður-
stofan.
Svart: Jóhann Árnason, Útvegs-
banki Islands.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4.
c3 Rf6 5. d4 exd 6. e5 De 7 ? (Rétt er
og bezt að leika 6.—d5) 7. 0—0 Rg4
8. cxd Bb4 ? (Bb6) 9. h3 Rh6 10. a3
Ba5 11. b4 Bb6 12. d5 Rd8 13. Bg5
Df8 14. Hel c6 15. d6 Rg98.
Nú er komin upp furðuleg staða,
þar sem svartur er kominn upp í
borð til sín með alla sína menn.
Svona geta smámistök í byrjuninni
leitt til stórvandræða. Það er óþarfi
að rekja skákina lengra og úrslitin
sjá allir fyrir.
Furöuleg staöa eftir 15 leiki!!
hlj ómlist
Það er ekki alltaf, að þau lög sem
leikin eru erlendis í útvarpi, séu þau
sem mestum vinsældum eiga að fagna.
Víða voru vinsældir mældar eftir seld-
um nótum á einhverju lagi, en alls
ekki eftir seldum plötum og þá siður
verið að yasast i því að ganga úr
skugga um hver væri skemmtilegasta
og vinsælasta útsetningin á einu lagi.
Fyrir bragðið kom annað eins fyrir
og hér verður stuttlega sagt frá.
Russ Conway.
Pianoleikarinn Russ Conway hefur
líka samið þau lög sem hann lék inná
plötur og þá fylgdi hans útsetning
lögunum inná útvarpssendingarnar.
Og með því móti var hann lang-
efstur á listanum, þar sem lögin hans
voru vinsæl, en á plötumarkaðnum
voru kannski útsetningar annarra
teknar langt fram yfir hans. Þess
vegna mátti segja að staða hans svona
ofarlega á vinsældalistanum átti sér
enga stoð í plötusölunni. Og plötu-
salan er einmitt sá mælikvarði, sem
helzt er hægt að leggja á vinsældir.
Nú er þessu breytt og vinsældalist-
arnir í Evrópu og Ameríku fara nú
eftir plötusölunni svo og hversu oft
er óskað eftir vissum lagaútsetning-
um í útvarp. Hér á landi er dálítið
erfitt að fara eftir vinsældalistanum
úti, þar sem það vill brenna við að
lögin sem vinsælust eru þá stundina
verða ekki komin á markaðinn hérna
fyr en eftir dúk og disk. Það er að
segja, að þá eru unglingarnir búnir
að heyra lögin svo lengi í erlendu út-
varpi, að glansinn er að fara af þeim.
þétta?
Gesta og minningabækur hafa um
langt skeið verið vinsælar til gjafar
og margir hafa reynt að láta á mark-
aðinn skemmtilegar og eigulegar
bækur. Nú þykjumst .við hafa dottið
niður á gestabók, sem teljast má sér
verður og endurnýja það, sem er
orðið ónýtt. Og eigiröu ekki neitt i
slík ferðalög, þá verður að ganga frá
kaupum svona sæmilegan tíma, áður
en lagt er í hann. Fyrsta skilyrðið
verður vist að teljast svefnpoki, ef
menn vilja komast lifs af úr útilegum.
Þeir fást í öllum hugsanlegum stærð-
um og verðflokkum. T. d. má fá sér
mjög óbrotinn svefnpoka fyrir tæpar
300.00 krónur og einnig getur maður
losnað við tæpar þúsund krönur í slík
kaup. Bakpokar eru í öllu jafnari
verðflokkum eða frá 400.00 krónum i
hálft sjötta hundrað. Það er sjálf-
sagt að gæta Þess, þegar maður kaup-
ir bakpoka, að þeir séu þannig frá-
gengnir að ekki séu likur til þess að
í flokki. Kápan er islenzk gæra og
gefur hún bókinni það gildi, sem hún
hefur fram yfir aðrar slíkar. Bókinni
fylgir plasthylki, sem varnar óhrein-
indum að festast á henni þegar hún
er ekki höfð uppi við. Verðið er lika
sér á parti, eða um 400.00 krónur og
má það teljast dálagleg fjárfesting.
—O—
Nú er tími til kominn að undirbúa
sig undir útilegur sumarsins og má
varla seinna vera að ganga frá út-
búnaði sínum. Laga það sem lagað
maður eigi eftir að sjá alvarlega eftir
kaupunum. Sérstaklega ber að gæta
þess að allar burðarólar og festingar
séu þannig gerðar, að pokinn falli rétt
að bakinu og að pjönkur þær
sem festar eru á pokann valdi ekkl
verulegri röskun á jafnVsegi. Sumir
vilja ekki lengur una því að hreiðra
um sig á steinhnullungum milli þúfna,
heldur fá þeir sér vindsængur undir
svefnpokann og verður að segjast að
men.n eru ólíkt enduTnærðari eftir
fioual
KÖLDU
,0\jui búðingamir
ERU BRAGÐGÓÐIR
MATREIÐS LAN AUÐVELD
Fjórar bragðtegundir:
Súkkulaði
Vanillu
Karamellu
Hindberja
Ttl aölu I flestum
matvöruverzJunum
landsins.
30