Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 16.12.2009, Qupperneq 2
2 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR Jón Viðar, mega menn þá nota búrhníf? „Nei, það má bara nota guðsgafflana í búrinu.“ Bardagaíþróttafélagið Mjölnir hefur flutt til landsins fyrsta bardagabúrið. Jón Viðar Arnþórsson er formaður Mjölnis. HEILBRIGÐISMÁL Landspítalinn hefur setið eftir í fjárveitingum borið saman við þróun heildarútgjalda til annarrar heilbrigðisþjónustu í landinu á undanförnum árum. Framlög til Landspítalans hafa dregist saman um þrjú prósent frá árinu 2001, samkvæmt tölum Hag- stofu Íslands. Á sama tíma hækk- aði framlag til heilbrigðismála í heild, reiknað án Landspítalans, um tæp sextán prósent. Björn Zoëga, forstjóri LSH, segir að fjárveitingar til spítalans hafi farið stiglækkandi allt frá árinu 2003, og áberandi mest hafi sú lækkun verið á milli áranna 2007 og 2008. „Ég skil mætavel þá erfiðu fjárhagslegu stöðu sem ríkið er í og spítalinn mun leggja sitt af mörkum í sparnaði. Mér finnst þó ástæða til þess að taka tillit til þeirrar hagræðingar sem náðst hefur á undanförnum árum og því þráláta gengistapi umfram forsendur fjár- laga sem LSH hefu r orð ið fyrir í fyrra og í ár.“ Gengistap- ið sem um ræðir er um þrír millj- arðar króna. Eins og áður sagði er mis- mu nur i n n á heildarfjárveit- ingum til heilbrigðismála annars vegar og til Landspítalans sér- staklega hins vegar um tuttugu prósent. Björn segir að rekstrar- fé spítalans væri mun hærra í dag ef framlög til LSH hefðu þróast í samræmi við annað. „Tölurnar á bak við þetta tala sínu máli. Ef þróun fjárframlaga til LSH hefði verið með sama hætti og til ann- arra heilbrigðismála væri upphæð- in sem við hefðum úr að spila í ár um 40,5 milljarðar en ekki í kring- um 35 milljarðar. Þetta er varlega áætlað.“ Spurður hvort þessi mikli munur sé ekki tilkominn vegna tilfærslna innan heilbrigðiskerfisins segir Björn að það skýri ekki þennan mun. Í þessari umræðu komi til- færsla svokallaðra s-merktra lyfja frá LSH til almannatrygginga ekki inn í myndina. Sú færsla hafi komið til á þessu ári og numið 3,2 milljörðum króna. „Benda má á að þar til á þessu ári jókst starfsemi á spítalanum öll árin frá sameiningu Landspítalans og Borgarspítalans árið 2001. Í ár stendur starfsemin í stað. Á þessum tíma hefur eitthvað verið um það að aðgerðir og þjón- usta hafi flust til sjálfstætt starf- andi sérfræðinga en það er óveru- legt þegar allt er skoðað. Þetta hefur til dæmis verið staðfest í skýrslum Ríkisendurskoðunar um LSH og mælingum á framleiðslu vinnuafls.“ svavar@frettabladid.is Landspítalinn naut ekki útgjaldaþenslu Forstjóri LSH telur að taka þurfi tillit til gengistaps þegar spítalanum er skammtað fé til starfseminnar. Ef fjárframlög til LSH hefðu fylgt útgjöldum til heilbrigðismála í heild hefði spítalinn 5,5 milljörðum meira úr að spila á ári. LSH Í FOSSVOGI Sameining Landspítala og Borgarspítalans hafði mikinn sparnað í för með sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BJÖRN ZOËGA Friðjón Þórðarson, fyrrver- andi dómsmálaráðherra, lést í fyrradag, 86 ára. Friðjón var þingmaður Dalasýslu frá 1956 til 1959 og sat samfellt á Alþingi sem þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Vestur- landskjör- dæmi frá 1967 til 1991. Hann var dómsmála- ráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen frá febrúar 1980 þar til í maí 1983. Friðjón var lögfræðingur að mennt og starfaði sem sýslu- maður í heimahéraði sínu, Dalasýslu, frá 1955-1965 og aftur eftir að hann lét af þing- mennsku, og þar til hann lét af störfum vegna aldurs árið 1993. Hann var einnig sýslu- maður Snæfellinga um tíu ára skeið. Eftirlifandi eiginkona Friðjóns er Guðlaug Guð- mundsdóttir. Hann eignaðist fimm börn með fyrri eigin- konu sinni, Kristínu Sigurðar- dóttur, sem lést árið 1989. - pg Friðjón Þórð- arson látinn STJÓRNMÁL Utanríkismálanefnd Alþingis ákvað á fundi um Icesave- málið í gær að óska eftir því að Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanrík- isráðherra, geri nefndinni skrif- lega grein fyrir viðhorfum sínum til forsenda Brussel-viðmiðanna svokölluðu, sem og til misræmis í túlkun forsætisráðherra Íslands og Bretlands á tilteknum efnisat- riðum málsins. Kemur því ekki til þess að þau verði beðin um að koma fyrir nefndina. „Við viljum hafa þetta skriflegt frekar en munnlegar frásagnir,“ segir Árni Þór Sigurðsson, formað- ur utanríkismálanefndar. Óskar nefndin þess að Geir og Ingibjörg skili svörum sínum á föstudag. Í dag er von á álitum tveggja erlendra lögfræðistofa á samn- ingunum við Breta og Hollend- inga sem og álitsgerðum lagapróf- essoranna Bjargar Thorarensen og Eiríks Tómassonar um stjórn- arskrárþáttinn. Þá er stefnt að því að efnahags- og skattanefnd ljúki sinni meðferð málsins í dag. „Nú förum við í gegnum þetta og reynum að afgreiða málið sem fyrst,“ segir Guðbjartur Hannes- son, formaður fjárlaganefndar. Alls óvíst sé hvenær málið fari til þriðju umræðu en það verði í öllu falli fyrir áramót. „Þingið verður að fá tækifæri til að afgreiða þetta, til þess er lýðræðið,“ segir hann. - bþs Von er á álitum og umsögnum til fjárlaganefndar vegna Icesave-málsins í dag: Geir og Ingibjörg veiti skrifleg álit INGIBJÖRG S. GÍSLADÓTTIR GEIR H. HAARDE SAMFÉLAGSMÁL Jólaúthlutun Fjöl- skylduhjálpar Íslands hefur sett af stað símasöfnun sem fer fram með SMS-skilaboðum. Söfnunin fer þannig fram að fólk sendir FHI í símanúmerið 1900 til að skrá sig á styrktar- lista matvælasöfnunar. Eftir það fá þeir sem hafa skráð á sig eitt SMS á mánuði og dragast í hvert sinn 100 krónur af símareikningi viðkomandi. Jólaúthlutun Fjölskylduhjálp- arinnar fer fram dagana 16. og 21. desember, frá kl. 15 til 18 að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík. - gb Jólaaðstoð Fjölskylduhjálpar: Helmingi fleiri þiggja aðstoð VÍSINDI, AP Ástralskir vísindamenn hafa fundið kol- krabbategund í Indónesíu sem safnar kókoshnetu- skeljum og notar þær til að skýla sér. Þetta er líklega í fyrsta sinn sem hryggleysingi sést nota verkfæri. Teknar voru kvikmyndir af atferli kolkrabbans, þar sem hann sést ná sér í hálfar kókoshnetuskelj- ar af hafsbotni. Hann byrjar á að tæma skeljarnar og dregur þær síðan undir sér allt að 20 metra. Loks setur hann tvær skeljar saman þannig að þær mynda kúlulaga skjól sem hann getur falið sig í. „Ég hef séð marga kolkrabba fela sig í skeljum, en ég hef aldrei séð neinn þeirra taka eina slíka upp og burðast með hana á hafsbotninum. Það var erf- itt að fara ekki að hlæja,“ sagði Julian Finn, sem ásamt félaga sínum Mark Norman frá Viktoríusafn- inu í Melbourne í Ástralíu tók eftir þessu atferli kol- krabbanna. Ekki er vitað til þess að aðrir hryggleysingjar noti verkfæri, en reyndar er misjafnt hvernig vísinda- menn vilja skilgreina verkfæranotkun. Þeir Finn og Norman telja nægja að dýrið nái sér í hlut og búi hann undir notkun síðar meir. „Það er þessi söfnun til seinni tíma notkunar sem er óvenjuleg,“ segir Finn. - gb Óvenjulegt atferli kolkrabba við strendur Indónesíu vekur athygli vísindamanna: Notar kókoshnetur til skjóls KOLKRABBINN MEÐ KÓKOSHNETUNA Líklega fyrsta dæmið um hryggleysingja sem notar verkfæri. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Dómsmálaráðuneyt- ið fellst á framsalsbeiðni bras- ilískra yfirvalda varðandi Hosmany Ramos. Hosmany var dæmdur í 24 ára fangelsi árið 1998 fyrir rán, mannrán og mótþróa við handtöku í heimalandi sínu. Hann sneri ekki úr jólafríi sem hann fékk um jólin í fyrra og var handtek- inn á Íslandi í ágúst. „Komist dómstólar að þeirri niðurstöðu að ekki megi fram- selja Hosmany til Brasilíu þá er mögulegt að hann verði sendur til Frakklands en það var fyrsta landið sem tilheyrir Schengen sem hann kom til frá Suður- Ameríku,“ segir visir.is. - gar Ráðuneytið styður framsal: Hosmany fari til síns heima RAMOS HOSMANY GRIKKLAND, AP George Papand- reou, forsætisráðherra Grikk- lands, segir mikla hættu á því að landið sökkvi í skuldafen. Til að forðast slíkt boðar hann strangar sparnaðaraðgerðir. Meðal annars ætlar sósíal- istastjórnin að draga mjög úr útgjöldum til varnarmála. Allt að níutíu prósenta skattur verð- ur lagður á - gb Forsætisráðherra Grikklands: Grikkland er að sökkva í skuldir SVISS, AP Jarðfræðingurinn Mark- us Häring sætir nú málaferlum í Sviss fyrir að hafa valdið nokkr- um jarðskjálftum með tilraunum sínum með djúpboranir árið 2006. Stærsti jarðskjálftinn mældist 3,4 stig og olli ýmsum skemmd- um á húsum í borginni Basel. Häring segist ekki vísvitandi hafa ætlað að framkalla jarð- skjálfta. Tilgangur djúpborananna var að framkalla hreina orku. Til- raunirnar fólust í því að borað var niður á fimm kílómetra dýpi og köldu vatni dælt niður í sjóð- andi heit berglög. Vatnið kom síðan heitt til baka. - gb Svissneskur jarðfræðingur: Olli jarðskjálfta með djúpborun SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.