Fréttablaðið - 16.12.2009, Blaðsíða 24
24 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Það er rosalega mikið að gera hjá okkur. Vefrit-
ið fer mjög vel af stað og okkur hefur alls staðar
verið tekið mjög vel,“ segir Þórhildur Ólafs-
dóttir, einn eigenda og blaðamaður á netritinu
Miðjan.is, sem var ýtt úr vör fyrir tæpum
þremur vikum.
Miðjan.is er hugarfóstur Brynd-
ísar Ísfoldar og er í eigu fjögurra
einstaklinga auk þeirra Bryndísar og
Þórhildar.
Hún segir mjög gaman að vinna
með fólki eins og Bryndísi, sem fái
hugmynd og geri hana að veru-
leika. Allir þar sinni vinnunni af
fullum krafti og snúist lífið um fátt
annað hjá þeim þessa dagana.
Þrátt fyrir þetta segir Þórhild-
ur að hátíð frelsarans verði ekki
slegið á frest. Hún lagði lóð sitt á
vogarskálarnar og gerði tilraun til þess að baka
piparkökur. Það lukkaðist ekki betur en svo að
ilmur jólanna tengist nú skaðbrunnum kökum.
„Ég reyndi að baka piparkökurnar á mánu-
dag. Ég hef ekki lagt mig eftir því í gegnum
tíðina og áttaði mig ekki á því hversu
auðvelt það er að gleyma þeim inni
í þessum ofni,“ segir Þórhildur og
bendir á að af fimm skúffum
sem hún setti í ofninn skað-
brunnu tvær og piparkökurn-
ar á þeirri þriðju voru sem
grjót undir tönn. „Ein skúffa
heppnaðist vel. Piparkök-
unum af henni þarf ekki
að dýfa í mjólk,“ segir
Þórhildur og viðurkennir
að hún sé nýgræðingur
í eldhúsinu.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞÓRHILDUR ÓLAFSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR
Nýgræðingur í piparkökubakstri
Takk fyrir kreditkortin
„Á tímabili var algengt að
Íslendingar sem voru að
koma heim væru það ölvaðir
að þeir báðu starfsfólkið að
fylla út ávísanir fyrir því sem
keypt var.“
AFMÆLISRIT FRÍHAFNARINNAR 1959
TIL 2009
Ríkissjóð í kjörþyngd?
„Þegar er verið að tala um
að við þurfum að skera niður
þá getum við gert það því við
höfum bætt svo mikið við á
undanförnum árum.“
SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON
ÞINGMAÐUR Á DV.IS„
Útlit er fyrir hvít jól á Norður-
og Austurlandi, að sögn Óla Þórs
Árnasonar veðurfræðings á Veður-
stofu Íslands. Óljósara er hvernig
veður íbúar Suður- og Vesturlands
hreppa, hvort jólin þar verði hvít
eða rauð. Óli Þór segir líta út fyrir
að lægð verði undir landinu á Þor-
láksmessu eða jafnvel á aðfanga-
dag, henni fylgi úrkoma sem erf-
itt sé að fullyrða sem sakir standa
hvort það verði snjór eða rigning.
Helmingslíkur eru því á hvítum
jólum á höfuðborgarsvæðinu nú
þegar átta dagar eru til jóla.
Spáð er frosti um allt land um
næstu helgi sem snjókoma mun
fylgja fyrir norðan og austan.
Allt í kortunum bendir til þess
að sá snjór haldist til jóla. Frost
og bjartviðri verður í Reykjavík
og nágrenni næstu helgi og engin
ofankoma í kortum fyrr en þá á
Þorláksmessu eða aðfangadag sem
fyrr segir.
Á vef Veðurstofu Íslands, www.
vedur.is, er að finna nákvæmar
upplýsingar um jólasnjó í Reykja-
vík aftur til ársins 1920 og nokkuð
góðar upplýsingar aftur til ársins
1875. 37 sinnum hefur jörð verið
hvít frá árinu 1920 þannig að hvít
jól eru óalgengari en rauð sé litið
yfir svo langt tímabil. Ef horft er
tuttugu ár aftur í tímann þá eru
hvít jól algengari en rauð. Síðustu
tíu árin hafa fjórum sinnum verið
hvít jól í Reykjavík, fjórum sinn-
um rauð og tvisvar flekkótt. - sbt
■ Árni Björnsson
þjóðháttafræðingur
fjallar um þennan
skemmtilega jólasið í bók sinni
Saga daganna: „Um miðja 20.
öld fóru jólasveinarnir að gefa
börnum í skóinn að norðurevr-
ópskum sið en þetta varð hins
vegar mjög hamslaust á Íslandi
fyrst eftir 1950. Fóstrur og ömmur
leituðu þó ráða hjá þjóðháttadeild
Þjóðminjasafnsins, og af hennar
hálfu var fjallað um málið í Ríkis-
útvarpinu. Árangurinn varð sá að
upp úr 1970 tókst smám saman
að innræta þá meginreglu að
ekkert komi í skóinn fyrr en fyrsti
jólasveinninn kemur til byggða 13
eða 9 nóttum fyrir jól, og ekki væri
annað en smáræði í skónum.“
FRÓÐLEIKUR
AÐ GEFA Í SKÓINN
● „Span, förum á span/ framfyrir tímans tönn./Span, förum á
span,/hraðar en ljósið,/ hraðar en liðin stund.“ Svo orti og söng Stef-
án Hilmarsson í laginu Span í flutningi Pláhnetunnar um árið. Eins
og ráða má af textanum merkir nafnorðið span að vera á hraðri
ferð, gan eða flas. Sögnin að spanna merkir aftur á móti að ná eða
taka yfir, til dæmis: Bókin spannar hálfa öld.
Í ensku merkir orðið span aftur á móti það sama og íslenska
sögnin að spanna, það er yfirgrip. Af því eru önnur orð dregin, til
dæmis life span, sem merkir æviskeið, lífdagar eða lífshlaup.
Þessu virðist hafa slegið saman í fréttatilkynningu Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar borgarfulltrúa í vikunni. Þar talar hann um „lífs-
span“ sitt á vettvangi borgarinnar, þegar hann á við starfsferil
sinn hjá borginni eða þann tíma sem starf hans spannaði. Úr þess-
um misskilningi mætti búa til illkvittinn orðaleik í þá veru að fer-
ill Vilhjálms í borgarmálum hafi verið samfellt gönuhlaup. Það var
hann eflaust ekki en það borgar sig að flýta sér hægt þegar semja á
fréttatilkynningu. -bs
TUNGUTAK
Spannað á spani
Mörg hundruð manns hafa
lært innhverfa íhugun hjá
Íslenska íhugunarfélaginu
síðan kvikmyndaleikstjór-
inn kunni David Lynch kom
hingað til lands síðastliðið
vor. Lynch niðurgreiðir
námskeiðin.
Íslenska íhugunarfélagið hefur stað-
ið fyrir námskeiðum hverja einustu
helgi síðan í byrjun júlí til að anna
eftirspurn óþreyjufullra Íslend-
inga til að læra íhugun. Mikill áhugi
kviknaði á þessum námskeiðum í
kjölfar heimsóknar David Lynch
kvikmyndaleikstjóra sem hélt fjöl-
sóttan fyrirlestur um íhugun síð-
astliðið vor á málþingi á vegum
íslenska íhugunarfélagsin. „Það
skráðu sig nokkur hundruð manns
hjá okkur eftir að heimsókn hans
lauk og höfum við haldið fimm daga
námskeið sem hefjast á föstudög-
um og hafa gert hverja helgi síðan í
byrjun júlí,“ segir Ari Halldórsson.
Þátttakendur greiða tíu þúsund
krónur fyrir námskeiðið en David
Lynch greiðir tíu þúsund og segir
Ara þann stuðning koma til vegna
þess að Lynch vildi ekki að Íslend-
ingar í efnahagsþrengingum settu
há skólagjöld fyrir sig. Auk þess að
njóta stuðnings Lynch er Íslenska
íhugunarfélagið á höttunum eftir
öðrum leiðum til að fjármagna
starfsemina og hefur í því skyni
meðal annars gefið út bókin Fisk-
að í djúpinu: íhugun, vitund og
sköpunarkraftur eftir Lynch.
Bókin kom úr prentsmiðju í
gær og Ari vonast til þess að sem
flestir festi kaup á gripn-
um en í bókinni veitir
Lynch innsýn í aðferð-
ir sínar sem lista-
manns, hvernig hann
vinnur og hvern-
ig innhverf íhug-
un hefur hjálpað
honum í lífi og
starfi.
Lynch hefur
íhugað í 35 ár
og segir íhug-
un mikilvægt
hjálpartæki við
listsköpun. Ari
segir íhugun
geta nýst hverj-
um sem er: „Ég
hef sjálfur íhug-
að í 32 ár og
finnst það mjög góður undirbún-
ingur undir daglegt líf.“
Ari hefur undanfarið hálft ár
sinnt störfum fyrir Íslenska íhug-
unarfélagið í fullu starfi en hverfur
brátt aftur til síns fyrri starfa sem
er kennslustjórn lista- og fjölmiðla-
sviðs Borgarholtsskóla.
sigridur@frettabladid.is
Innhverf íhugun vinsæl
ARI HALLDÓRSSON Hvetur fólk til að kynna sér innhverfa íhugun að hætti
David Lynch en í nýútkominni bók hans lýsir hann reynslunni af því að
kafa inn á við og krækja íhugmyndir líkt og fiska. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Helmingslíkur á hvítum jólum í höfuðborginni:
Hvít jól á Norður- og Austurlandi
Frá árinu 1990 hefur sex sinnum verið auð jörð í Reykjavík, ellefu sinnum
hefur jörð verið hvít, en snjór misdjúpur. Tvisvar sinnum hefur jörð verið
flekkótt.
OFTAR HVÍT EN RAUÐ JÓL Í REYKJAVÍK*
Ár snjór
1990 17 cm
1991 6 cm
1992 5 cm
1993 16 cm
1994 4 cm
1995 2 cm
Ár snjór
1996 alautt
1997 alautt
1998 4 cm
1999 flekkótt
2000 alautt
2001 alautt
Ár snjór
2002 alautt
2003 4 cm
2004 flekkótt
2005 alautt
2006 1 cm
2007 4 cm
2008 1 cm*HEIMILD: WWW.VEDUR.IS
Fagor þvottavél
1400 snúninga þeytivinda. 6 kg hleðsla.
Tímaseinkun. Stillanleg vinda. 32 cm hurðarop.
89.900
Fagor þvottavél
Reykjavík . Skútuvogi 1 . Sími 562 4011
Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800
Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020
Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200
Þeytivinda Jólatilboð
Verð kr. 99.900
GARÐABÆ - Sími 563 5411
Útivist og sport
Opið 10 til 22 til jóla
ÖRUGG JÓLAGJÖF
Útivistarfatnaður frá Nazran
fyrir mótorhjól, snjósleða,
fjórhjól og snjóbretti. Fly
mótorkross- og enduroföt.
Full búð af nýjum
og vönduðum vörum
á frábæru verði!