Fréttablaðið - 16.12.2009, Síða 26

Fréttablaðið - 16.12.2009, Síða 26
26 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR J Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn KOLBEINN ÓTTARSSON PROPPÉ skrifar frá Kaupmannahöfn kolbeinn@frettabladid.is Connie Hedegård, forseti lofts- lagsráðstefnunnar, þykir hafa haldið vel á spilum þegar hún náði samkomulagi um vinnuáætl- un næstu daga. Afríkuríkin höfðu uppi mikla gagnrýni og Connie var sökuð um að draga taum iðn- ríkjanna. Hún fullvissaði þó alla um að ekkert yrði ákveðið fyrr en á föstudag og eru flestir sammála um að hún hafi staðið sig vel. Connie fór þó ekki í grafgötur með að hver dagur skipti máli. „Næstu 48 tímar ráða úrslitum,“ sagði hún á blaðamannafundi í hádeginu í gær. Víst er að það hefur aukið á áhyggjur þróunar- ríkjanna, en sum þeirra hafa svo fámennar sendinefndir að þau geta ekki tekið þátt í öllum þeim fund- um sem haldnir eru hér í Bella Center. Þau leggja því ríka áherslu á að ekki verði samið um neitt fyrr en þjóðarleiðtogarnir mæta á svæðið. Þeir byrja að streyma að í dag og á föstudag má reikna með að hér verði 120 leiðtogar. Connie var spurð hvers vegna tíminn hafi ekki verið nýttur betr síðustu tvö árin, en þar voru línur lagðar fyrir ráðstefnuna árið 2007. Hún líkti stjórnmálamönnum í alþjóðlegum samningum við skóla- börn sem nýttu alltaf frestinn til að skila ritgerð til fulls og fengju hann svo framlengdan. Skiluðu ekki fyrr en á allra, allra síðustu stundu. Þá mætti ekki gleyma því að Bandaríkin hefðu verið treg í taumi undir forystu fyrrum for- seta. Með komu Baracks Obama í Hvíta húsið hefðu orðið breytingar þar á og því væri útlitið allt öðru- vísi nú. Hún sagði menn þó fráleitt hafa setið auðum höndum síðustu tvö ár. „Hefði einhver sagt mér í Balí að eftir tvö ár myndu allir þessir þjóðarleiðtogar telja það svo mik- ilvægt að mæta hingað, hefði ég ekki trúað því.“ Connie Hedegård þykir hafa náð góðum árangri í samningaviðræðum: Útkoman ræðst á morgun MIKIÐ VERK Forseti loftslagsráðstefn- unnar hefur átt ófáa fundina til að tryggja að umræður sigli ekki í strand. FRÉTTABLAÐIÐ/KÓP Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. FRÁ SÓMA ER KOMINN NÝTT FYRIR JÓL IN Hamborgarahryggur og kartöflusalat Dönsk lifrakæfa, sveppir og beikonJólasíldarsalat Auglýsingasími – Mest lesið Bandaríkin áréttuðu enn í gær afstöðu sína í loftslags- málum og að þau ætluðu ekki að ganga lengra en lýst hefur verið yfir í samdrætti útblásturs. Eiga í viðræð- um við Kína. Skotin ganga á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. „Ég á ekki von á neinum breyt- ingum á afstöðu Bandaríkjanna,“ sagði Todd Stern, yfirmaður bandarísku sendinefndarinnar hér í Kaupmannahöfn. Varla er þó við öðru að búast en yfirlýs- ing um slíkt geti aðeins komið frá Obama sjálfum. Á blaðamannafundi í gær eyddi hann löngum tíma í að sýna fram á að tillögur Bandaríkjanna gengju jafnlangt, ef ekki lengra, en tillögur Evrópusambands- ins og annarra ríkja. Um það er deilt. Obama Bandaríkjaforseti lýsti því yfir fyrir skemmstu að Bandaríkin myndu draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 17 prósent árið 2020, miðað við það sem hann var árið 2005. Þetta hefur Evrópusambandið gagnrýnt, sem heldur sig við við- miðunarárið 1990, nokkuð sem náðist samstaða um árið 1992. Todd sagði Bandaríkin ekki vera á móti því að önnur ríki not- uðu enn það viðmiðunarár, þó að raunin væri sú að flest lönd, önnur en Evrópusambandið, not- uðu annað viðmiðunarár. Miklu máli skiptir við hvaða ár er miðað, samdrátturinn sem Bandarík- in hafa boðað er til dæmis ekki nema 4 prósent ef miðað er við árið 1990, langt frá þeim 30 pró- sentum sem Evrópusambandið hefur lagt til. Todd Stern minnti á að afstaða Bandaríkjastjórar væri í sam- ræmi við frumvarp sem lægi fyrir þinginu og því væri ólíklegt að út af henni yrði brugðið. Mikið hefur verið pískrað hér í Bella Center um að Obama hafi lagt hönd á plóginn í samninga- viðræðum við þróunarríkin á mánudag, en þá var upplýst að hann hefði hringt tvö símtöl tengd ráðstefnunni. Svo er ekki, forset- inn hringdi í starfsbræður sína í Eþíópíu og Bangladess, líklegast til að afla hugmyndum Bandaríkj- anna stuðnings. Yfirmaður bandarísku sendi- nefndarinnar sagðist hafa verið í miklum samskiptum við Kín- verja undanfarna daga og átti von á fundum fram á nótt. Hann sagð- ist bjartsýnn á niðurstöður þeirra viðræðna, sem meðal annars snú- ast um alþjóðlega viðurkenninu á því hvernig ástandið er í raun í Kína í dag svo ljóst sé við hvað er miðað, en sagðist búast við erfið- um viðræðum. Þá hafa Bandaríkjamenn ekki getað sætt sig við að Kína fái sérmeðferð sem þróunarland og njóti efnahagsstuðnings sem slíkt. Viðræður um það hafa staðið yfir og einnig um stöðu Indlands. Þá fullyrti hann að hugmynd- ir Bandaríkjanna gengju lengra en Evrópusambandsins ef ýmsir aðrir mælikvarðar væru notaðir, svo sem að miða við höfðatölu. Spurður hvort bandaríska stjórnin lægi undir þrýstingi frá kola- og olíuiðnaðinum, sagð- ist hann ekki vilja orða það svo. Lobbíismi væri partur af banda- rísku samfélagi og ekkert athuga- vert við það. Bandaríkin segjast ekki munu gefa meira eftir FRAMHALD Á SÍÐU 28 N O R D IC PH O TO S/A FP BANDARÍKJAFORSETI Barack Obama hefur gefið út að stefna Bandaríkjanna sé að árið 2020 hafi Bandaríkin dregið úr losun gróðurhúsa- lofttegunda um 17 prósent miðað við árið 2005. Hér er hann á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.