Fréttablaðið - 16.12.2009, Page 37
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ sýnir jólaleikritið Jólasveinar Grýlusynir í
Arnardal við Ísafjörð helgina 19. og 20. desember. Þetta eru þriðju
jólin í röð sem leikritið er sýnt og hefur notið mikilla vinsælda. Þetta
er sprellfjörugur leikur um gömlu íslensku jólasveinana og ýmsum
spurningum reynt að svara um þessa skrítnu karla.
„Ein eftirminnilegasta ferð sem
ég hef farið í var til Póllands með
foreldrum mínum árið 1996. Við
bjuggum þá í Danmörku og auðsótt
var að heimsækja nágrannalönd-
in fyrir spottprís,“ segir Líf Magn-
eudóttir vefritstjóri, þegar hún er
spurð um eftirminnilegt ferðalag.
Foreldrum Lífar bauðst pakka-
ferð til bæjar rétt fyrir utan borg-
ina Stettín fyrir einungis fimm
hundruð danskar krónur. Innifal-
ið í því var ferja, rúta, matur og
gisting í höll. Líf segir alla hafa
verið glaða og spennta þar til rútu-
bílstjórinn villtist. „Við enduðum á
kornakri við einhvern sveitabæ og
það var ekki hægt að snúa við. Við
þurftum því að bakka til baka. Um
það leyti bilaði salernið í rútunni
mönnum til mikils ama. Þegar
við komum loksins að höllinni var
hún að hruni komin og líktist ekk-
ert þeirri glæsibyggingu sem við
héldum að biði okkar.“
Í herbergjum niðurníddu hallar-
innar voru sturtur en ekkert vatn,
skotgöt á veggjum eftir stríðið og
sums staðar mátti greina blóðbletti
á veggjum. Sjónvörpin voru hol að
innan, en Líf segir það ekki hafa
komið að sök þar sem flest her-
bergin hafi verið rafmagnslaus.
Eitt salerni var í höllinni, en
það var bilað. Í matsalnum var
einungis boðið upp á kartöflur og
svínakótelettur, og sömu sögu var
að segja af flottasta veitingastað
bæjarins. „Nokkrir af þeim allra
svengstu fengu sér pylsu hjá götu-
sala og fengu eftir það væga mat-
areitrun,“ segir Líf og glottir við
minninguna. „Svona var öll ferðin.
Alls staðar var maturinn óætur og
hvergi var hægt að fá mjólk. Róm-
antíska vatnið sem höllin stóð við
og glampaði á í tunglskininu var
eini ljósi punkturinn í ferðinni þar
til að eina nóttina kom flutninga-
bíll sem á stóð TOXIC og sturtaði
torkennilegum vökva í vatnið.“
Að sögn Lífar kórónaði heim-
ferðin þó allt saman. „Á landa-
mærunum stöðvuðu tollverðirnir
okkur til að rukka mútur og vændu
okkur um að vera með of mikið af
sígarettum. Ein úr hópnum, sem
var orðin langþreytt, sagðist ætla
að taka þetta á sig. Tollvörður-
inn benti henni á að hún reykti of
mikið því þetta væru tvö þúsund
karton. Þá kom í ljós að hótelstjór-
inn í höllinni góðu hafði eytt nótt-
inni í að hlaða smygli í rútuna,“
segir Líf og skellir upp úr.
„Þegar við náðum loksins
áfangastað, Kaupmannahöfn, beið
danska lögreglan þar og vildi að
við biðum í rútunni þar til glæp-
onanir kæmu til að ná í góssið. Þá
vorum við búin að fá meira en nóg
og afþökkuðum. Ég hef aldrei verið
jafn fegin að koma heim. Eftir á að
hyggja er þetta samt eitt skemmti-
legasta ferðalag sem ég hef farið í,
þar sem ég verð ætíð kát þegar ég
rifja upp sögurnar úr því,“ segir
Líf. kjartan@frettabladid.is
Blóðblettir á veggjunum
Ferðalag Lífar Magneudóttur til Póllands fyrir rúmlega áratug er henni eftirminnilegt. Hótelið bauð upp
á kartöflur, biluð salerni og hol sjónvörp, og í ofanálag var fjölskyldan rukkuð um mútur á heimleiðinni.
Í pólsku höllinni sem Líf og fjölskylda gistu í var einungis boðið upp á kampavín og vodka til drykkjar. Það átti líka við um veit-
ingastaði bæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
•
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Opið laugardaga til jóla kl. 11-16
Auglýsingasími
– Mest lesið