Fréttablaðið - 16.12.2009, Page 40

Fréttablaðið - 16.12.2009, Page 40
 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR4 „Besta jólagjöf sem ég hef feng- ið er klárlega rafmagnsgítarinn sem ég fékk þegar ég var sextán ára. Það voru foreldrar mínir sem létu þetta eftir mér þó þau hefðu nú sínar efasemdir fyrst,“ segir Davíð sem steig með þessum gítar fyrstu skrefin á tónlistarbrautinni. „Ég hafði aldrei verið neitt í tón- list áður en fannst kominn tími til að prófa eitthvað nýtt. Ég hlust- aði mikið á rokk á þessum tíma og dreymdi um að spila í rokk- hljómsveit en það varð nú ekkert af því. Hins vegar sat ég tímunum saman með heyrnartólin og æfði mig og var algerlega í mínum eigin heimi.“ Davíð neitar því að jólapakkinn hafi valdið honum miklum heila- brotum á aðfangadagskvöld. „Ég fékk að velja gítarinn sjálfur svo það var enginn leyndardómsfull- ur gítarlaga pakki undir trénu en ég fékk hins vegar ekki að stinga í samband fyrr en á aðfangadags- kvöld.“ Gítarinn hefur síðan yfir- gefið fórur Davíðs og farið í næstu hendur. „Ég á þennan gítar ekki lengur því ég gaf frænda mínum hann sem hefur líka mikinn áhuga á gíturum. Nú er þessi gítar orð- inn ættargripur, fyrsti gítar allra í fjölskyldunni. En kannski á hann eftir að seljast dýrum dómum á eBay þegar ég er orðinn heims- frægur,“ segir Davíð og skelli- hlær. Gítarinn góði tengist jólunum enn í huga hans enda fluttu Þeir saman mörg jólalög. „Uppáhalds- jólalagið mitt er Last Christmas með Wham og það kom mjög vel út á þennan gítar og fékk að dúndrast í magnaranum.“ Davíð er að senda frá sér plöt- una Lover in the dark með frum- sömdu efni en neitar því að þar sé að finna nokkur jólalög. „Nei, ég hef aldrei lagt í að semja jólalag en þegar grannt er hlustað má heyra áhrifin frá Wham í tónlistinni minni og einhverjir naskir hlust- endur heyra jafnvel óminn af Last Christmas í bakgrunninum.“ - bb Rafmagnsgítarinn er klárlega besta jólagjöfin Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen fékk jólagjöf þegar hann var sextán ára sem olli straumhvörfum í lífi hans. Á rafmagnsgítarinn spilaði hann meðal annars jólalagið Last Christmas við góðan róm. Davíð skilur gítarinn vart við sig um jólin og spilar Last Christmas fyrir alla sem heyra vilja. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MAXIWELL II NUDDARINN • LÍTILL OG ÞÆGILEGUR • HÆGT AÐ NOTA Á ALLAN LÍKAMANN • LOSAR UM VÖÐVABÓLGU OG HARÐSPERRUR • ENDURNÆRIR HÁLS, AXLIR, BAK OG FÆTUR • STERKUR OG ENDINGARGÓÐUR • TVEGGJA ÁRA VERKSMIÐJUÁBYRGÐ LOGY EHF - SÖLUVAGN 1. HÆÐ KRINGLUNNI BEINT Á MÓTI VÍNBÚÐINI - SÍMI. 661 2580 WWW.LOGY.IS Engjateigur 5 - 105 Reykjavík - s: 581 2141 Bæjarlind 6 - Eddufelli 2 Sími 554-7030 Sími 557-1730 www.rita.is VÖNDUÐ FÓÐRUÐ DÖMUSTÍGVÉL ÚR LEÐRI Í ÚRVALI Til dæmis: Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 • Fax: 517-6465 www.belladonna.is Flott föt fyrir flottar konur, stærðir 40-60. Munið gjafabréfin! Fimmtudaga

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.